Bæjarins besta - 07.01.2004, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 2004
Ásdís Pálsdóttir,
sveitarstjóri á Hólmavík.
Brynjólfur Gíslason,
bæjarstjóri í Vesturbyggð.
Einar Pétursson,
bæjarstjóri í Bolungarvík.
Einar Örn Thorlacius,
sveitarstjóri á Reykhólum.
Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.
Ólafur M. Birgisson,
sveitarstjóri á Tálknafirði.
Hvað segja bæjar- og sveitarstjórar-
nir um liðið ár og árið framundan?
Jón Helgason prófessor í Kaupmannahöfn
sagði einhverju sinni í ræðu að áramótin væru
í sjálfu sér eins og hver önnur mannaverk sem
ekki væri ástæða til að taka með miklum hátíð-
leik. Þau táknuðu ekki annað en það að mönn-
um hafi komið saman um að á þessari tilteknu
stundu skuli breytt um tölustafi í ártalinu.
Þrátt fyrir þessa skoðun skáldjöfursins Jóns
eru þeir margir sem finnst þetta hátíðleg tíma-
mót. Góður tímapunktur til þess að líta yfir
farinn veg og spá í framtíðina. Meðal þeirra
sem oftar en ekki þurfa að líta í kringum sig og
sína eru stjórnendur sveitarfélaga. Bæjarins
besta óskaði eftir því að bæjar og sveitarstjórar
á Vestfjörðum settu niður á blað hugleiðingar
í framhaldi af eftirfarandi spurningum:
Hvað er að þínu mati eftirminnilegast af at-
burðum á innlendum vettvangi á árinu sem er
að líða?
Hvað er að þínu mati eftirminnilegast af at-
burðum af erlendum vettvangi á árinum sem
er að líða?
Hvað er eftirminnilegast á árinu hvað þig
sjálfa(n) varðar á árinu sem er að líða?
Hvaða væntingar berð þú til ársins 2004?
Svör þeirra fara hér á eftir.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum á inn-
lendum vettvangi á árinu sem
er að líða?
Af eftirminnilegum atburð-
um á innlendum vettvangi má
fyrst nefna þær miklu svipt-
ingar sem urðu á fjármála-
markaðinum og breytingar á
eignaraðild í fyrirtækjum. Af-
leiðingar þessara breytinga
eiga eftir að koma fram í dags-
ljósið og verður fróðlegt að
fylgjast með framvindu mála
á nýju ári. Þá eru framkvæmd-
irnar við Kárahnjúkavirkjun
einnig ofarlega í huga sem og
kosningarnar til Alþingis í
byrjun sumars.
Hvað varðar þá atburði sem
standa nær mínu sveitarfélagi
kemur fyrst upp í huga mér
útnefning Jóns Jónssonar á
Kirkjubóli á Ströndum sem
ferðamálafrömuður ársins af
útgáfufélaginu Heimi og er
hann vel að þeirri viðurkenn-
ingu kominn. Þakka ég ekki
síst hans framtaki þá miklu
aukningu ferðamanna hér á
Ströndum á líðandi ári. Eins
var ánægjuleg fréttin á árinu
um að veita ætti aukalega fé
til vegaframkvæmda á Vest-
fjörðum um einn milljarð
króna og veit ég að margir eru
sammála um að ekki sé van-
þörf á. Þá er einnig eftirminni-
legt vel heppnað unglinga-
landsmót UMFÍ á Ísafirði sem
var öllum, er að því komu, til
mikils sóma.
perluna Vestfirði.
Hvaða væntingar berð þú
til ársins 2004?
Eins og þorri landsmanna
vonast ég til að komandi ár
verði friðsælla en árið á undan
og okkur lærist að lifa í sátt og
samlyndi. Þá vænti ég þess að
hafnar verði framkvæmdir á
lagningu vegar um Arnkötlu-
dal og Gautsdal til þess að
styrkja byggðirnar á þessu
svæði. Einnig vil ég sjá áfram-
haldandi aðgerðir, frá stjórn-
völdum jafnt sem heimamönn-
um, sem styrkja búsetuskilyrði
hér á Vestfjörðum s.s. með
bættum samgöngum, fjöl-
breyttara atvinnulífi og auk-
inni þjónustu. Að endingu
vænti ég þess að við stöndum
saman um að gera árið 2004
að ári Vestfirðinga.
Að lokum vil ég nota tæki-
færið og óska öllum gæfu og
velfarnaðar á komandi ári.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum af er-
lendum vettvangi á árinum
sem er að líða?
Af atburðum á erlendum
vettvangi er innrásin í Írak eft-
irminnilegust og handtaka
Saddams Husseins. Varla líður
sá dagur að ekki fréttist af
dauðsföllum vegna skæru-
hernaðar á svæðinu og óneit-
anlega spyr maður hvort rétt
hafi verið að málum staðið í
ljósi reynslunnar af innrásinni
í Afganistan og stöðu mála
þar. Eins er ófriðurinn á milli
Ísraela og Palestínumanna of-
arlega í sinni og fer vonin um
varanlegan frið á þessu svæði
dvínandi. Þá er morðið á Önnu
Lindh, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, sú frétt sem situr einnig
eftir, þegar litið er til baka á
líðandi ár.
Hvað er eftirminnilegast á
árinu hvað þig sjálfa(n) varðar
á árinu sem er að líða?
Hvað mig sjálfa varðar þá
er eftirminnilegust hestaferðin
í sumar með Svaðilfara sem
farin var í byrjun júlímánaðar.
Lagt var af stað frá Laugalandi
og farið sem leið lá með Snæ-
fjallaströndinni og yfir í
Grunnavík. Þaðan var farið
yfir í Leirufjörð og Hrafnfjörð
og haldið á Skorarheiði yfir í
Furufjörð. Áfram var haldið
yfir í Þaralátursfjörð, Reykjar-
fjörð og Skjaldabjarnarvík og
síðan upp Meyjardalinn, yfir
Drangajökul og niður í Skjald-
fannardal. Þessi ferð verður
ógleymanleg fyrir margar sak-
ir og er vonandi aðeins sú fyr-
sta af mörgum um náttúru-
Ásdís Leifsdóttir,
sveitarstjóri
á Hólmavík
Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum á
innlendum vettvangi á árinu
sem er að líða?
Síðasti vetur var mildur og
snjóléttur. Sumarið einstak-
lega gott og Landsmót UMFÍ
á Ísafirði um verslunarmanna-
helgina var mjög vel heppnað.
Til að svo mætti verða fór fram
myndarleg uppbygging
íþróttamannvirkja á Torfnesi.
Framkvæmdir á vegum bæj-
arins voru með meira móti
enda mörg verk sem þarf að
vinna áður en ríkið hættir að
greiða sinn hlut. Sveitarfélög-
um er skylt að ljúka snjóflóða-
vörnum í síðasta lagi 2010.
Bæjarsjóður hefur greitt niður
lán um tæpar 700 milljónir á
síðustu þremur árum og er bet-
ur í stakk búinn til fram-
kvæmda en áður.
Það var kosið til Alþingis á
árinu og niðurstaðan varð
sama ríkisstjórn sem er
ánægjulegt með þjóðarhag í
huga. Það eru sífellt færri sem
muna hvernig ástandið var fyr-
ir 1990 þegar verðbólga og
ýmis óáran í efnahagsstjórn
kom í veg fyrir bætt lífskjör í
landinu.
Núverandi ríkisstjórn gefur
góð fyrirheit varðandi Vest-
firði ekki síst uppbyggingu
byggðakjarnans Ísafjarðar í
samræmi við byggðaáætlun.
Dæmi um það er skipun verk-
efnisstjórnar um byggðamál,
nefnd á vegum menntamála-
ráðherra um háskólamál, stór
samningur um uppbyggingu
menningarhúsa, fjármagn til
starfrækslu snjóflóðarann-
sóknarmiðstöðvar og fleira.
Það hefur verið mikil um-
ræða um samþjöppun valds
og fjármagns og auðvitað
ástæða fyrir kjörna fulltrúa
okkar á Alþingi til að skoða
það mál af varfærni en ákveð-
ni.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum af er-
lendum vettvangi á árinum
sem er að líða?
Það er því miður stríðið í
Írak og púðurtunnan fyrir botni
Miðjarðarhafs en þar virðist
ástandið versna sífellt. Nátt-
úruhamfarir víða um heiminn
eru miklar, nú síðast gríðarlegt
manntjón í Íran vegna jarð-
skjálfta.
Það slær mig hversu ónæm-
ur maður er fyrir öllum þessum
hrikalegu atburðum sem sýnd-
ir eru í sjónvarpinu, þetta er
langt í burtu og snertir okkur
ekki hér á Íslandi – eða hvað?
Gerum við okkur grein fyrir
hversu gott við höfum það í
samanburði við stærstan hluta
heimsbúa?
Hvað er eftirminnilegast á
árinu hvað þig sjálfa(n) varðar
á árinu sem er að líða?
Góðar stundir með fjöl-
skyldunni í sumarfríi í bústað-
num okkar. Vel heppnað Ög-
urball og góð myndasýning
konu minnar í Samkomuhús-
inu í Ögri. Börnin vaxa hratt
og samvera með þeim þarf að
vera meiri. Árið var án stór-
tíðinda í einkalífinu en þannig
á það að vera.
Hvaða væntingar berð þú
til ársins 2004?
Ég ber sömu væntingar og
til liðinna ára, þ.e. að árið verði
okkur hagstætt og við berum
gæfu til að standa saman um
mikilvæga þætti samfélagsins.
Það verða auðvitað einhverjar
ágjafir á árinu en við eigum að
standa þær af okkur minnug
þess að hér er gott að búa og
það er okkar sjálfra að sjá til
að svo verði áfram.
Einar Örn Thorlacius,
sveitarstjóri
Reykhólahrepps
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum á inn-
lendum vettvangi á árinu sem
er að líða?
Hvað landsmálin varðar
kemur fyrst upp í hugann sá
kraftur sem verið hefur í ís-
lensku viðskiptalífi og þau
miklu uppskipti sem þar urðu
á árinu. Það virðist vera bjart
yfir íslensku þjóðlífi og góðar
horfur í efnahagsmálum þjóð-
arinnar. Íslendingar virðast
hafa allar forsendur til að skapa
sér bjarta framtíð í þessu landi.
Mikilvægt er þó að forðast
óþarfa togstreitu á milli höfuð-
borgarsvæðis og hinna dreifð-
ari byggða. Að mörgu leyti
hefur byggðin úti á landi átt
undir högg að sækja en sjálfur
hef ég reyndar tröllatrú á
landsbyggðinni og held að að
mörgu leyti sé hvergi betra að
vera en þar. Það er líka lífs-
nauðsynlegt fyrir íbúa suðvest-
urhornsins að hafa gott og
traust bakland í öðrum lands-
hlutum.
Hvað er að þínu mati eftir-
minnilegast af atburðum af er-
lendum vettvangi á árinum
sem er að líða?
Því miður koma fréttir af
hryðjuverkum fyrst upp í hug-
ann. Það er orðinn daglegur
viðburður að heyra um fólk
sem sprengir sig í loft upp í
sjálfsmorðsárásum til þess að
eyðileggja eins mörg mannslíf
og það getur um leið og það
tekur sitt eigið. Ástæðan er
hatur. Ég er sjálfur alinn upp í
skugga frétta af Víetnam-stríð-
inu en mér verður oft hugsað
til þess hvað börnin mín séu
að hugsa þegar þau heyra þess-
ar fréttir um öll þessi grimmd-
arverk. Ég held þó að þrátt
fyrir allt sé gott hjartalag að
finna í flestum manneskjum
og vil trúa á hið góða í mönn-
unum.
Hvað er eftirminnilegast á
árinu hvað þig sjálfa(n) varðar
á árinu sem er að líða?
Árið 2003 var fyrsta heila
árið mitt í starfi sveitarstjóra.
Það er talsverð breyting að
koma frá rekstri einkafyrirtæk-
is í rekstur sveitarfélags. Þrátt
fyrir að Reykhólahreppur sé
fámennt sveitarfélag eru verk-
efnin mörg og ótrúlega fjöl-
breytt. Mig grunar reyndar að
framkvæmdastjórar sveitarfé-
laga búi við einhverja mestu
fjölbreytni í starfi sem þekkist.
Skemmtilegast var þó að
kynnast íbúunum hérna betur,
þessu stórkostlega landssvæði
(1.150 ferkílómetrar fyrir utan
óteljandi eyjar) og sjá fyrir sér
hvaða vaxtarmöguleikum
sveitarfélagið mitt býr yfir.
Hvaða væntingar berð þú
til ársins 2004?
Hvað Reykhólahrepp varðar
vonast ég til að nýtt íþróttahús
rísi á árinu á Reykhólum. Þetta
01.PM5 12.4.2017, 09:0010