Bæjarins besta - 28.04.2004, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 20042
ISSN 1670 - 021X
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9, 400 Ísafjörður
Sími 456 4560,
Fax 456 4564
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson,
sími 892 5362, bb@bb.is
Blaðamenn:
Kristinn Hermannsson
sími 863 1623
kristinn@bb.is
Halldór Jónsson
sími 892 2132
hj@bb.is
Ritstjóri netútgáfu:
Sigurjón J. Sigurðsson
sími 892 5362
Ljósmyndari:
Halldór Sveinbjörnsson
sími 894 6125,
halldor@bb.is
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson og
Halldór Sveinbjörnsson
Sölustaðir á Ísafirði:
Hamraborg, Hafnarstræti
7, sími 456 3166. Flug-
barinn, Ísafjarðarflugvelli,
sími 456 4772. Bónus,
Ljóninu, Skeiði, sími 456
3230. Bókhlaðan, Hafn-
arstræti 2, sími 456 3123.
Bensínstöðin, Hafnarstræti,
sími 456 3574. Samkaup,
Hafnarstræti 9-13, sími 456
5460. Krílið, Sindragata 6,
sími 456 3556.
Umboðsaðilar BB:
Eftirtaldir aðilar sjá um
dreifingu á blaðinu á þétt-
býlisstöðum utan Ísa-
fjarðar: Bolungarvík:
Sólveig Sigurðardóttir,
Hlíðarstræti 3, sími 456
7305. Súðavík: Sólveig
Gísladóttir, Arnarflöt 7, sími
456 4106. Suðureyri:
Deborah Anne Ólafsson,
Aðalgötu 20, sími 898
6328. Flateyri: Gunnhildur
Brynjólfsdóttir, Brimnesvegi
12a, sími 456 7752.
Þingeyri: Anna Signý
Magnúsdóttir, Hlíðargötu
14, sími 456 8233.
RITSTJÓRNARGREIN
Er þetta réttlætið sem við viljum hafa?
Lausasöluverð er kr. 250
eintakið m.vsk. Áskriftarverð
er kr. 215 eintakið. Veittur
er afsláttur til elli- og
örorkulífeyrisþega. Einnig
sé greitt með greiðslukorti.
ÚTGÁFAN
Nýverið samþykkti Alþingi breytingu á lögum um erfðafjárskatt. Lögin voru einfölduð til
muna, undanþágur afnumdar og eitt 5% skattþrep tekið upp í stað þriggja áður. Helstu rökin
fyrir breytingunum gat að líta í grein eftir Gunnar I. Birgisson, alþingismann, í Morgunblaðinu
27. mars, en þar sagði hann m.a.: ,,Erfðafjárskatturinn er skattur þar sem verið er að greiða
skatt af fjármunum, sem þegar er búið að greiða skatt af.“ (Leturbr.BB) Síðan rakti þing-
maðurinn hvernig hann, ásamt fleirum beitti sér fyrir því ,,að leiðrétta þessa ósanngjörnu
skattheimtu“.
Gleðiefni er þingmenn skuli hafa komið auga á ósanngirni tvísköttunar tekna. Það er hins
vegar dapurlegt að vart hefur rifað nema í annað augað þegar tvísköttun erfðafjár opinberaðist
þeim. Þannig eru þingmenn áfram slengir blindu hvað varðar tvísköttun lífeyristekna fjölda
eftirlaunaþega, sem greiddu fullan skatt af framlagi til lífeyrissjóðanna á sínum tíma. Við-
brögð þingmanna við þeirri sjálfsögðu kröfu eftirlaunaþega, að af ávöxtun fjármuna hjá
lífeyrissjóðunum verði greiddur fjármagnstekjuskattur, líkt og af öðrum vaxtatekjum, eru
axlaypping þegar best lætur, en þegar verst stendur í bólið er mönnum sagt að fara bara í mál
við ríkið! Því er svo við að bæta að þeir þegnar þjóðfélagsins, sem þingmenn gera áfram að
búa við tvísköttun tekna, unnu fyrir öllum þeim fjármunum, sem um að ræða, og vilja þar af
leiðandi sjálfir fá að njóta þeirra. Arfarnir, sem þingmennirnir báru svo mjög fyrir brjósti,
komu aftur á móti hvergi nærri öflun þeirra fjámuna, sem eftir lagabreytinguna falla þeim í
hendur í ríkari mæli en áður.
Skoðum fleiri hliðar á skattateningi ríkisvaldsins. Hvaða réttlæti felst í því að 3ja milljón
króna tekjur, sem unnið er fyrir hörðum höndum, oft myrkranna á milli, skuli skattlagðar
með nær 39% meðan á vaxtatekjur sömu fjárhæðar er reiknaður 10% skattur? Segir réttlætis-
kennd þingmanna þeim, að vaxtatekjur skuli vera nær fjórum sinnum rétthærri en launatekjur?
Felst réttlætið í því að refsa mönnum fyrir mikla vinnu en verðlauna fyrir oft á tíðum skjót-
fenginn gróða? Hvers vegna eru ekki allar tekjur einstaklinga skattlagðar að jöfnu? Trúðu
þingmenn virkilega að ehf-einstaklingsvæðingin væri skref í réttlætisátt?
Þegar ,,réttlæti“ Alþingis í skattlagninu þegnanna opinberast með þessum hætti er ekki að
undra þótt spurt sé: ,,Er þetta réttlætið sem við viljum hafa?“, svo gripið sé til spurningar
þingmanns af öðru tilefni.
s.h.
„Samþætting fyrirtækjanna
hefur í rauninni gengið betur
en við þorðum að vona. Það er
mjög jákvætt viðhorf á Ísafirði
og menn vinna hörðum hönd-
um að tæknilegum lausnum
til þess að hægt verði að nýta
vörur fyrirtækjanna sem best
saman“, segir Ásgeir Ásgeirs-
son, framkvæmdastjóri Póls
hf. og framkvæmdastjóri vöru-
þróunar hjá Marel. Ásgeir tók
við stöðu framkvæmdastjóra í
síðustu viku af Halldóri Hall-
dórssyni sem hafði gegnt stöð-
unni í rúmt ár. Hann segir
framkvæmdastjóraskiptin
hafa verið rökrétt framhald í
samþættingu fyrirtækjanna og
unnið hafi verið að þeim með
fullum vilja Halldórs sjálfs.
„Við erum að minnka yfir-
byggingu með því að færa þá
starfsemi sem var í Reykjavík,
þ.e. sölu- og markaðsstarf, inn
í Marel og styrkja á sama tíma
framleiðslu- og tæknistjórnun
á Ísafirði. Við þessa breytingu
verður meiri þörf fyrir tækni-
lega framkvæmdastjórn. Sér-
staða Póls er á tæknisviðinu
og við hyggjumst nýta okkur
þá viðskiptalegu þekkingu
sem er innandyra hjá Marel“,
segir Ásgeir.
Aðspurður um rekstrarhorf-
ur segir hann að þær aðgerðir
sem gerðar hafa verið í kjölfar
mjög erfiðs rekstrarárs í fyrra
séu byrjaðar að skila sér og
muni fara að gæta til fulls á
seinni árshelmingi. „Salan
hefur verið góð það sem af er
ári og verkefnastaða Póls er
mjög góð í augnablikinu. Auk
þess vonumst við til þess að
aðgangur að söluneti Marel
gefi okkur tryggari sölutekjur
í framtíðinni.“, sagði Ásgeir
Ásgeirsson. – kristinn@bb.is Húsakynni Póls á Ísafirði.
Yfirbygging fyrirtækisins minnkuð
Samþætting rafeindafyrirtækjanna Póls á Ísafirði og Marels í Reykjavík gengur vel
Söngleikurinn Litla stúlkan með eldspíturnar settur upp í Íslensku óperunni
Þórunn Arna í aðalhlutverkinu
Þórunn Arna Kristjánsdóttir
mun fara með aðalhlutverkið í
söngleiknum Litla stúlkan
með eldspýturnar sem byggð-
ur er á samnefndri sögu H.C.
Andersen og verður settur upp
í Íslensku óperunni í haust.
„Þetta er stórkostlegt tæki-
færi fyrir mig – þetta er akkúrat
það sem ég hef verið að stefna
að og langar mest til að gera“,
segir Þórunn. Í fyrravor lauk
hún stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Ísafirði og er nú á
fyrsta ári í söngnámi við Lista-
háskóla Íslands. Áður hafði
hún stundað tónlistarnám við
Tónlistarskóla Ísafjarðar og
m.a. lagt stund á söng undir
handleiðslu Guðrúnar Jóns-
dóttur.
Þórunn verður ekki eini Ís-
firðingurinn á sviðinu í óper-
unni því auk hennar mun Bryn-
jar Már Brynjólfsson, laga-
nemi við Háskólann í Reykja-
vík, samstúdent Þórunnar frá
MÍ og fyrrum söngnemandi í
Tónlistarskóla Ísafjarðar, taka
þátt í uppfærslunni. Hún segir
þau hafa farið í áheyrnarpróf í
febrúar og úr hafi orðið að þau
taki þátt í sýningunni. Ætlunin
er að frumsýna verkið í októ-
ber og er gert ráð fyrir um
tuttugu sýningum fram að jól-
um. Því er ljóst að talsvert
annríki verður hjá söngvurun-
um.
„Ég ætla að reyna að vera í
skólanum ásamt því að taka
þátt í uppfærslunni svo það
verður nóg að gera en það er
skemmtilegra að hafa meira
en minna fyrir stafni. Síðast-
liðinn vetur hefur frekar róleg-
ur hjá mér þar sem ég hef ekki
verið á kafi í neinni sýningu“,
sagði Þórunn sem tók þátt í
vinsælli uppfærslu Litla Leik-
klúbbsins og Tónlistarskóla
Ísafjarðar á Söngvaseiði síð-
asta vetur.
Ástrós Gunnarsdóttir mun
leikstýra Litlu stúlkunni með
eldspýturnar og er búist við
eftirminnilegri sýningu enda
valinn maður í hverju rúmi.
– kristinn@bb.is
Brynjar Már Brynjólfsson og Þórunn Arna Kristjánsdóttir.