Bæjarins besta - 28.04.2004, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 200414
> RÚV: 1. maí kl. 22:05
George Clooney, Mark Wahl-
berg, Ice Cube og Spike
Jonze leika aðalhlutverkin í
stríðsmyndinni Þrír kóngar
sem segir frá fjórum banda-
rískum hermönnum í Persa-
flóastríðinu. Þeir gera sér
lítið fyrir og stela gullstöngum frá Kúveit sem Saddam
Hussein hefur tekið og falið í eyðimörkinni. Þeir komast
yfir kort og hefja leitina og drífur þá margt á daga þeirra.
Þrír kóngar
> Stöð 2: 30. apríl kl. 22:25
Hnefaleikameistarinn er hörku-
mynd frá árinu 2002. James
Chambers er besti boxarinn í
þungavigtinni. Honum er spáð
frekari frama en er ákærður
fyrir nauðgun og sendur í tugt-
húsið. Fangarnir þekkja orðspor
hans en í þeirra röðum er maður
sem stendur Chambers jafnfætis
í boxinu og láta þeir reyna á hæfileikana.
Hnefaleikameistarinn
> Sýn: 1. maí kl. 11:20
Keppnistímabilið í enska boltan-
um er senn á enda. Arsenal hef-
ur haft mikla yfirburði og á
köflum leikið hreint stórkostleg-
an fótbolta. Hjá Skyttunum er
valinn maður í hverju rúmi með
Thierry Henry þar fremstan. Í
dag tekur liðið á móti Birming-
ham sem er í mikilli baráttu um
Evrópusæti að ári.
Meistararnir sýna listir sínar
Helgarveðrið
Horfur á fimmtudag:
Hægviðri, skýjað að
mestu og yfirleitt þurrt.
Hiti víða 4-10 stig.
Horfur á föstudag:
Suðvestlæg eða breytileg
átt, 3-8 m/s og víða þoku-
súld eða rigning, en þurrt
austanlands fyrri hluta
dags. Hiti 5 til 13 stig.
Horfur á laugardag:
Norðaustan- og austanátt,
víða 8-13m/s og rigning
víða um land. Hiti 3-9 stig.
Horfur á sunnudag:
Hægviðri og víða bjart
veður vestanlands,
annars súld eða rigning,
einkum austan- og
suðaustanlands. Hlýnandi
veður.
Horfur á mánudag:
Útlit fyrir norðlægar áttir,
kólnandi veður og vætu
norðantil en nokkuð björtu
veðri syðra.
Spurningin
Netspurningin er birt vikulega
á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Aðeins
er tekið við einu svari frá hverri
tölvu. Niðurstöðurnar eru
síðan birtar hér.
Alls svöruðu 397.
Innanlands sögðu
214 eða 54%
Til útlanda sögðu
120 eða 30%
Fer ekki í frí, sögðu
63 eða 16%
Kirkjustarf
Ísafjarðarkirkja:
Fermingarmessa sunnu-
daginn 2. maí kl. 14:00.
Efnt til samskota á áttatíu
ára afmæli Reykjaneslaugar
Á næsta ári verður sund-
laugin í Reykjanesi við Djúp
áttatíu ára. Af því tilefni hafa
nokkrir velunnarar laugar-
innar ákveðið að efna til
samskota til viðhalds henn-
ar. Í hvatningarbréfi sem
Sigríður Salvarsdóttir húsfrú
í Vigur hefur ritað af því
tilefni segir m.a: „Mikið fram-
tak var það á sinni tíð að
byggja þessa laug. Áður
hafði sund verið kennt í torf-
laug sem byggð var um
1890 innar á nesinu, og þar
áður hafði sundkennsla
farið þar fram í „smápollum“
sem gerðir voru með fyrir-
hlöðum í afrennslið frá
hverunum. Sundkennslan í
Reykjanesi hafði þá átt sér
sögu til margra ára. Engin
hús voru reist, fólk hélt við í
tjöldum meðan sundnámið
fór fram.
Veturinn 1923 lagði ung-
mennafélagið Huld í Naut-
eyrarhreppi (forsvarsmaður
Jakobína Þórðardóttir á
Laugabóli) fram áskorun til
sýslunefndar Norður-Ísa-
fjarðarsýslu þess efnis, að
láta byggja nýja laug í
Reykjanesi. Svo var þingað
í þinghúsi Nauteyrarhrepps
að Arngerðareyri. Þá fóru
þrír sýslunefndarmanna til
Jakobínu til að vita hvort
ungmennafélagið Huld
„myndi vilja og geta tekið
að sér að fjármagna bygg-
inguna“. Jakobína varð
„hálfhreykin“ af því trausti
sem fámennu og fátæku
ungmennafélagi var sýnt af
sýslunefndinni. Svo segir
Jakobína í blaðinu Vestur-
landi hinn 30. september
1924:
„Mennirnir töldu þetta allt
gott og blessað sem búið
var að gera, marseruðu
brosandi upp í þinghús,
ræddu þar nýjustu og merk-
ustu uppfundningar sínar í
þessu máli, og skoruðu þar
með á ungmennafélögin
„Huld“ í Nauteyrarhreppi
og „Vísi“ í Vatnsfjarðarsveit
að safna nú peningum með
frjálsum samskotum og
fleiru til byggingar nýrrar
sundlaugar í Reykjanesi, og
lofaði sýslan drjúgum styrk
til byggingarinnar. Einnig
hefur Fiskifélagi Íslands lof-
að 1200 króna styrk, sem
borgast eiga þegar bygg-
ingunni er lokið“.
„Talið er að sundlaugin
hafi kostað 10.974 krónur.
Hvað væri það í dag? Fram-
lög voru frá ungmennafé-
laginu Huld, ungmennafé-
laginu Vísi, Norður-Ísafjarð-
arsýslu, Ísafjarðarkaupstað,
ríkissjóði, Fiskifélagi Íslands,
sem og frjáls samskot frá
fólki héðan og þaðan“,
segir Sigríður í bréfi sínu.
Um núverandi stöðu
mála í Reykjanesi segir
Sigríður í hvatningu sinni:
„Þetta var í „dentíð“. Nú er
komið árið 2004 – og þessi
sama sundlaug á dagskrá.
Okkur, nokkra gamla nem-
endur sem höfum lært sund
nærsveitunum í Reykjanes
til að hreinsa og fegra í
kring um skólann. Margur
steinninn var borinn burt
af skólalóðinni og allt um-
hverfið snyrt og fegrað.
Dagurinn endaði svo með
skemmtun fyrir alla. Ég held
að þá hafi enginn hafi séð
eftir því að gefa dagsverk til
framfaramála.“
Um fyrirhugaða söfnun
segir Sigríður:„Ég, sem er í
forsvari fyrir „Velunnendur
Reykjaneslaugarinnar“,
vona að sem flestir sjái sér
fært að styrkja þá fram-
kvæmd sem þarf til að koma
lauginni í viðunandi ástand
aftur. Stofnaður hefur verið
sérstakur bankareikningur
fyrir viðhaldssjóð sundlaug-
arinnar í Reykjanesi. Reikn-
ingurinn heitir „Gamla.
Sundl. R.nesi“ og er vistaður
í Landsbankanum á Ísafirði.
Reikningsnúmerið er: 0156-
05-2580. Kennitalan er
450594-2299. „Margt smátt
gerir eitt stórt“ og það mun-
ar um hvert framlag.“ segir
að lokum í bréfi frú Sigríðar.
Eins og fram kom í bréfi
Sigríðar gegndi sundlaugin
í Reykjanesi mjög mikil-
vægu hlutverki í sundkenn-
slu við Djúp. Í því sambandi
skal nefnt hér að áður en
Ísfirðingar eignuðust sína
sundlaug um miðja síðustu
öld fór sundkennsla barna
m.a frá Ísafirði þar fram. Um
það má meðal annars lesa í
Sögu Ísafjarðar.
í lauginni, tekur sárt til þess
hve lítið hefur verið gert til
að halda henni við. Skóli
var byggður í Reykjanesi ár-
ið 1934 og miklar bygging-
ar hafa þar verið reistar síð-
an. Nú eru þær allar komn-
ar í einkaeigu og rekið í
þeim hótel. Mikið þurfa
þessar byggingar til við-
halds og við látum eigend-
ur sjá um það.
En okkur „velunnendum“
sundlaugarinnar finnst nú
eins og hún sé enn „al-
menningseign“ og því datt
okkur í hug hvort einhverjir
af þeim mörgu sem lært
hafa sund í lauginni gætu
ekki lagt fram einhverjar
krónur í viðhaldssjóð Sund-
laugarinnar í Reykjanesi til
að hún geti státað af „góðri
andlitslyftingu“ á áttatíu ára
afmælinu.“
Um mikilvægi sundlaug-
arinnar segir Sigríður:
„Djúpinu er lífsnauðsyn að
í Reykjanesi sé líf og fjör,
þar sem fólk getur komið
saman eins og í gamla
daga. Hver man ekki eftir
sundprófunum og þeim
mikla bátaflota sem kom þá
inn í Reykjanes? Margir
komu líka að á hestum.
Sundmótin og héraðsmót-
in í Reykjanesi eru nú því
miður liðin tíð – en við hafa
tekið ættarmótin. Hundruð
Íslendinga, einkum brott-
fluttir Djúpmenn og afkom-
endur þeirra, sækja mjög í
að halda ættarmót í Reykja-
nesi. Það er mikið fagnaðar-
efni og vonandi verður
óþrjótandi framhald á því
um ókomin ár.
Eftir að skólinn var stofn-
aður var á hverju ári efnt til
„Vordagsins“. Þá komu allir
sem vettlingi gátu valdið úr
Sundlaugin í Reykjanesi.
Hvert ætlar þú að
ferðast í sumar?
Vestfirðingar sigursælir á
Íslandsmótinu í kassaklifri
Vestfirðingar voru sigur-
sælir á Íslandsmótinu í
kassaklifri sem fram fór í húsi
Orkuveitu Reykjavíkur um
síðustu helgi og komu heim
með tvö gull og tvö brons-
verðlaun. Hákon Valdi-
marsson frá Ísafirði sigraði í
flokki stráka 13-15 ára með
því að fara upp 32 kassa á 7
mínútum og 9 sekúndum,
og varði því titilinn frá því í
fyrra. Kristín Ósk Jónsdóttir
frá Suðureyri sigraði í flokki
16-18 ára stelpna með því
að klífa 31 kassa á 7 mínút-
um og 33 sekúndum.
Þá hafnaði Ragnheiður
Sjöfn Reynisdóttir frá Bol-
ungarvík í 3. sæti í flokki 13-
15 ára stelpna og Ómar
Örn Sigmundsson frá Ísa-
firði hafnaði í 3. sæti í flokki
stráka 16-18 ára.
Halldóra Auður Jónsdótt-
ir frá Neskaupsstað sigraði í
flokki stelpna 13-15 ára
með því að komast upp um
21 kassa á 4 mínútum og
20 sekúndum og Andri
Buchholz frá Grindavík fór
með sigur af hólmi í flokki
16-18 ára stráka með því
að klifra 33 kassa á 12 mín-
útum og 54 sekúndum. Það
dugði honum til sigurs í
heildarkeppni þátttakanda
og er hann því nýkrýndur
Íslandsmeistari í kassaklifri.
– kristinn@bb.is
Hákon Valdimarsson, hátt uppi í húsi Orkuveitunnar.
Áskrift borgar sig!
Gerist áskrifendur
í síma 456 4560