Bæjarins besta - 28.04.2004, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 3
Rækjuveiðar og –vinnsla í Súðavík
Frosti hf. tekur við
frá mánaðamótum
Ómar Már Jónsson, sveit-
arstjóri Súðavíkurhrepps,
segir stefnt að því að Frosti
hf., nýstofnað félag í eigu
Hraðfrystihússins - Gunn-
varar hf. og Súðavíkur-
hrepps, taki til starfa í næsta
mánuði. „Þetta er ferli sem
tekur töluvert langan tíma
en stefnan er að um næstu
mánaðamót verðum við
komin með fyrirtækið Frosta
af stað sem verði sjálfstæð
eining í eigu þessara tveggja
aðila“, sagði Ómar.
Í kjölfar yfirtöku Yt ehf. á
hlutafé í HG fóru af stað við-
ræður um aðkomu hreppsins
að rækjuveiðum og -vinnslu í
Súðavík. Hreppsnefnd sam-
þykkti samhljóða í síðasta
mánuði viljayfirlýsingu um
stofnun hins nýja félags sem
mun reka rækjuverksmiðjuna
í Súðavík og rækjuveiðiskipið
Andey ÍS og eiga 1.956 tonn
af varanlegum rækjukvóta.
Fyrir yfirtökuna var Súða-
víkurhreppur einn af stærstu
hluthöfunum í HG með um
9% hlutafjár. Að Yt ehf.
standa stjórnendur HG og
stórir hluthafar úr hópi
heimamanna sem komu að
fyrirtækinu í gegnum fyrir-
rennarana Gunnvöru hf. og
Hraðfrystihúsið hf.
– kristinn@bb.is
Starfstími leikskóla á Vestfjörðum hefur verið að styttast á liðnum árum
Leikskólabörnum á Vestfjörð-
um fækkar en starfsfólki fjölgar
Leikskólabörn á Vestfjörð-
um voru 430 talsins í fyrra og
hafði þá fækkað úr 518 frá
árinu 1998 eða um tæp 17%,
meðan leikskólabörnum á
landinu öllu fjölgaði um
10,4%. Þetta kemur fram í töl-
um frá Hagstofu Íslands. Á
sama tíma hefur viðvera barna
á leikskólum aukist mjög. Á
árinu 1998 var um helmingur
leikskólabarna á Vestfjörðum
á leikskóla í fjórar stundir á
dag en árið 2003 var það hlut-
fall komið niður í tæp 36%.
Árið 1998 var um 19% leik-
skólabarna á Vestfjörðum 8
klukkustundir eða lengur á
leikskólum en það hlutfall var
komið í tæp 27% árið 2003.
Lengd viðveru hefur einnig
aukist á landinu öllu og er við-
veran mun lengri en á Vest-
fjörðum. Árið 1998 voru rúm
40% leikskólabarna á landinu
öllu 8 klukkustundir eða leng-
ur á leikskólum en það hlutfall
var komið í 65% árið 2003. Í
Reykjavík hafði hlutfall þeirra
sem dvelja 8 tíma eða lengur
hækkað milli áranna 1998 og
2003 úr 53% í tæp 81%. Er
því yfirgnæfandi hluti leik-
skólabarna í Reykjavík í vistun
8 tíma á dag eða lengur.
Á árinu 1998 voru svokölluð
barngildi í leikskólum á Vest-
fjörðum 380 talsins en voru
356 árið 2003. Barngildi er
reiknað gildi til að meta starfs-
mannaþörf leikskóla og reikn-
ast út frá aldri og dvalartíma
barns. Þannig reiknast 5 ára
barn sem er allan daginn í leik-
skólanum sem 0,8 barngildi,
4 ára barn sem 1,0 barngildi, 3
ára barn sem 1,3 barngildi, 2
ára barn sem 1,6 barngildi og
barn sem er yngra en 2 ára
sem 2,0 barngildi. Á sama tíma
og barngildum á Vestfjörðum
hefur fækkað um rúm 6%
hefur starfsmönnum leikskól-
anna fjölgað úr 122 í 129 eða
um tæp 6%. Á sama tíma hefur
barngildum á landinu öllu
fjölgað um 34% en starfsfólki
um rúm 28%.
Leikskólakennurum og öðru
starfsfólki með uppeldis-
menntun er að fjölga í leik-
skólum á Vestfjörðum. Árið
1998 var fjöldi þeirra 21 en
árið 2003 var fjöldinn kominn
í 30 talsins. Hlutfall leikskóla-
kennara og starfsfólks með
uppeldismenntun er um 23%
á Vestfjörðum en um 30% á
landinu öllu.
Starfstími leikskóla á Vest-
fjörðum hefur verið að styttast
á liðnum árum. Árið 1998 voru
tveir leikskólar af 13 opnir allt
árið og tveur leikskólar voru
opnir 50-52 vikur á ári og níu
leikskólar voru opnir 46-48
vikur á ári. Í fyrra voru allir
leikskólarnir 13 opnir 46-48
vikur á árinu. Er það mun
styttri opnunartími en á land-
inu öllu í fyrra. Af 267 leik-
skólum á landinu í fyrra voru
157 þeirra opnir 48 vikur eða
lengur á árinu þar af 23 allt
árið.
– hj@bb.is
Sólborg á Ísafirði er stærsti leikskólinn á Vestfjörðum.
Síðdegis á föstudag var
útkeyrslubifreið Pizza 67 á
Ísafirði stolið þar sem hún
stóð mannlaus við veitinga-
staðinn í miðbænum. Bíll-
inn fannst í nótt sem leið
utan við hús á Hólmavík
og er talið að honum hafi
verið ekið þangað síðdegis
á föstudag eða á föstudags-
kvöld. Lögreglan á Ísafirði
hefur málið til rannsóknar
og nýtur aðstoðar lögregl-
unnar á Hólmavík. Lög-
reglan óskar eftir upplýs-
ingum frá þeim sem hafa
hugsanleg orðið varir við
ferðir bílsins. Um er að
ræða rauðan MMC Lancer
árg. 1990 með hvítt hægra
frambretti (NE-213).
Útkeyrslubíl Pizza 67 stolið
Slagsmál brutust út á milli
tveggja farþega í leigubíl á
leiðinni frá Bolungarvík,
þar sem þeir voru í sam-
kvæmi, áleiðis til Ísafjarð-
ar á aðfararnótt sumar-
dagsins fyrsta. Bílstjórinn
stöðvaði á Óshlíð og bárust
slagsmál farþeganna út úr
bílnum. Var þá óskað að-
stoðar lögreglunnar í Bol-
ungarvík því óttast var að
mennirnir færu sér að
voða. Þegar lögreglan kom
á staðinn höfðu slagsmálin
borist upp fyrir veg og nið-
ur í vegræsi. Tókst að stöð-
va slagsmálin og mun lítill
samkvæmisbragur hafa
verið á mönnunum er þeir
komu úr vegræsinu.
Mennirnir fengu far með
lögreglunni sem mun hafa
komið á sáttum. Ekki
munu þeir hafa orðið lík-
amlega sárir en lítilsháttar
skemmdir urðu á bílnum.
Slagsmál í leigubíl
enduðu úti í skurði
Íþrótta- og æskulýðsráð Bolungarvíkur
Vill sparkvöll við grunnskólann
Á fundi íþrótta- og æsku-
lýðsráðs Bolungarvíkur fyrir
stuttu var fjallað um spark-
vallaátakið sem Knattspyrnu-
samband Íslands stendur fyrir
ásamt fleiri aðilum og sagt
hefur verið frá hér í blaðinu.
Samþykkti ráðið áskorun til
bæjaryfirvalda um að óska eft-
ir sparkvelli.
„Íþrótta- og æskulýðsráð
hvetur bæjaryfirvöld eindreg-
ið til að sækja um KSÍ-spark-
völl. Sparkvallaátak KSÍ er
einstakt tækifæri fyrir Bolung-
arvík til að eignast skemmti-
legt og öruggt leiksvæði sem
nýta má til íþróttaiðkunar og
við kennslu, þar sem mögu-
leiki er á staðsetningu spark-
vallarins við grunnskólann.
Þekkt er að Bolvíkingar hafa
með samtakamætti sínum
byggt upp glæsileg íþrótta-
mannvirki og því vill ráðið
hvetja bæjaryfirvöld til að
skoða alla kosti varðandi
byggingu sparkvallar.“