Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.04.2004, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 28.04.2004, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 2004 11 Golfbúnaði stolið úr bíl Aðfararnótt laugardags var framið skemmdarverk á mannlausum bíl sem stóð fyrir utan byggingarvöru- verslunina Núp við Skeiði á Ísafirði. Rúða var brotin í bílnum og tekinn úr hon- um golfbúnaður, kylfur og kúlur, sem var síðan dreift á hefðbundinni gönguleið frá versluninni og út eftir Seljalandsvegi áleiðis í miðbæinn. Hafi einhver upplýsingar um hver framdi verknaðinn er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregl- una á Ísafirði sem fer með rannsókn málsins. Helgi ráðinn Helgi Sigmundsson hefur verið ráðinn yfirlæknir lyflækninga við Heilbrigð- isstofnunina Ísafjarðarbæ á Ísafirði og mun hann koma til starfa í sumar. Helgi er ekki ókunnugur á Ísafirði. Hann starfaði sem læknir á stofnuninni fyrir nokkrum árum en hefur undanfarið verið búsettur í Bandaríkjunum þar sem hann hefur stundað sérfræðinám. Sigurður í landsliðið Tveir liðsmenn KFÍ hafa verið valdir í drengja- landslið Íslands í körfu- knattleik. Valið var í liðið að loknum landsliðsæfing- um sem fram fóru í Reykjavík um helgina. Leikmennirnir eru þeir Sigurður Þorsteinsson og Þórir Guðmundsson. Þeir eru í 12 manna landsliði drengja sem fæddir eru 1988. Liðið fer til keppni á Polar Cup í Svíþjóð seinni hluta maí mánaðar. Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir á Ísafirði, var eini umsækjandinn um nýja stöðu lækningafor- stjóra Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar en um- sóknafrestur rann út í síðustu viku. Umsóknin fer til umsagnar matsnefndar hjá landlæknisembættinu sem metur hæfi umsækj- enda um stöður sem þessar. Þá sóttu tveir um nýja stöðu hjúkrunarfor- stjóra stofnunarinnar. Þeir eru Dagný Hængsdóttir, hjúkrunarfræðingur, í Reykjavík og Hörður Högnason, hjúkrunarfræð- ingur á Ísafirði. Umsóknir þeirra fara til umsagnar hjúkrunarráðs sem metur hæfi umsækjendanna. Einn sækir um starf hjúkrunar- forstjóra Endurbætur innandyra á Þingeyrarkirkju ganga vel. Bú- ið er að setja upp lagnir fyrir sambyggt loftræsti- og hitun- arkerfi og einungis er eftir frá- gangur og uppsetning á stjórn- búnaði. Uppsetningin er í höndum véla- og bílaþjónustu Kristjáns á Þingeyri. Smíða- vinna gengur vel. Búið er að lagfæra gólfbita, en þeir voru nokkuð skemmdir sérstaklega út við steininn. Stoðir hafa ver- ið lagfærðar og réttar af. Sett hafa verið ný gólfborð í kirkju- skip og einangrað undir þeim. Vinna stendur yfir við kór- inn. Þar er búið er að lagfæra gólfbita og einangra gólf og verða gólfborðin sett á eftir helgi. Vinna við söngloft er langt komin. Töluverð vinna er eftir við bekki en líma þarf þá upp og einnig þarf að lag- færa skrautlista. Verktaki við smíðavinnu er Sigmundur F. Þórðarson húsasmíðameistari á Þingeyri. Vinna við raflagnir er að mestu leiti lokið, en skipt var nánast um allar raflagnir. Líni H. Sigurðsson rafvirkjameist- ari á þingeyri annaðist verkið. Málarar eru mættir og er und- irbúningsvinna vegna málunar í fullum gangi, en það er stefnt að framkvæmdum verði lokið fyrir hvítasunnu. Þingeyrarkirkja Endurbætur á kirkjunni ganga vel Aðalfundur Aðalfundur Ísafjarðardeildar Rauða kross Íslands verður haldinn þriðjudaginn 11. maí nk. kl. 20:30 í húsnæði deildarinnar að Suðurgötu 12. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Á fundi Hafnarstjórnar Súðavíkurhrepps sem haldinn var fyrir stuttu var rædd nauð- syn sjóvarna í þorpinu og var þar nefnd nauðsyn þess að klára framkvæmdir við varn- argarð neðan Njarðarbrautar. Einnig var samþykkt bókun þar sem lögð er áhersla á verndun Langeyrartjarnar. „Jafnframt ítrekar hafnar- stjórn fyrri beiðnir sínar um að komið verði í veg fyrir frek- ari rof við tjörnina á Langeyri. Þar brýtur sjór land og hefur valdið verulegu landbroti á stuttum tíma. Mikilvægt er að stöðva landbrotið sem fyrst, því ef sjór nær inn í tjörnina veldur það óbætanlegu tjóni á náttúru Langeyrartjarnar.“ Þeir sem fara á hraðferð um Álftarfjörð verða trúlega ekki mikið varir við Langeyrar- tjörn. Sumir nefna hana eitt best geymda leyndarmálið í náttúrufegurð Álftafjarðar. Þar hefur í áranna rás þrifist fjöl- skrúðugt fuglalíf og gróðurfar en á síðari árum hefur landbrot lagt þessa perlu í hættu. – hj@bb.is Vill verja Langeyrartjörn Hafnarstjórn Súðavíkur Færeyskir grunnskólanemar heimsækja kollegana á Ísafirði Nemendur í 8. bekk Grunn- skólans á Ísafirði tóku á móti fjölmennum hópi kollega sinna frá Skála í Færeyjum á Ísafjarðarflugvelli í gærmorg- un. Færeyingarnir eru að end- urgjalda heimsókn Ísfirðing- ana til Færeyja síðasta haust. Grunnskólanemarnir munu skoða sig um á Ísafirði og í nágrenni næstu daga og halda aftur til baka á laugardag. Fær- eyingarnir gista í heimahúsum og fá þannig að kynnast vel daglegu lífi gestgjafanna líkt og ísfirsku nemarnir fengu að upplifa í Skála í haust. Gestunum verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem m.a. verður farið á kvikmynda- sýningu í Ísafjarðarbíó, synt á Suðureyri, náttúrugripasafnið í Bolungarvík heimsótt og gengið upp í Naustahvilft, svo fátt eitt sé nefnt. Að öðrum viðburðum og skoðunarferðum ólöstuðum má ætla að hápunkturinn í hug- um margra verði á morgun þegar fram fer „landsleikur“ milli Íslands og Færeyja. Þá ætla krakkarnir að etja kappi á gervigrasvellinum á Torfnesi og verður dómari enginn annar en Björn Helgason, íþrótta- fulltrúi Ísafjarðarbæjar, sem eins og kunnugt er, þekkir vel til knattspyrnuiðkunar bæði á Ísafirði og í Skála, síðan hann þjálfaði þar. Færeyski hópurinn og gest- gjafar þeirra snæddu léttan morgunverð á sal GÍ í gær- morgun og stilltu krakkarnir sér upp fyrir ljósmyndara við það tækifæri. – kristinn@bb.is Færeysku og íslensku krakkarnir samankomnir á sal GÍ.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.