Bæjarins besta - 28.04.2004, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 20046
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Hef til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
Til sölu
Einbýlishúsið að Fagraholti 10 á Ísafirði
er til sölu. Um er að ræða timburhús á einni
hæð, 140m² ásamt 35m² bílskúr, byggt
árið 1976.
Góður sólpallur og sólstofa. Hellulagt
bílaplan. Lóð frágengin.
Upplýsingar gefur Ágúst Gíslason í sím-
um 894 5053 og 456 4160.
Sérfræðingur
óskast til starfa
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf) ósk-
ar eftir að ráða sérfræðing á Ísafirði.
Sérfræðingurinn mun, í samvinnu við ís-
lensk fyrirtæki, vinna að og stjórna verkefn-
um sem hafa það að markmiði að auka verð-
mæti sjávarfangs.
Hæfniskröfur:
Framhaldsmenntun í verkfræði eða raun-
vísindum.
Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi.
Samstarfshæfni, skipulagshæfileikar og
sjálfstæð vinnubrögð.
Launakjör skv. kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyld-
ur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2004. Um-
sóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf ásamt afritum af prófgögnum ósk-
ast sendar með tölvupósti sjofn@rf.is eða
til Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Skúla-
götu 4, 101 Reykjavík. Upplýsingar um starf-
ið veitir Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er sjálfstæð ríkisstofnun
sem starfar samkvæmt lögum 64/1965 um rannsóknir í þágu at-
vinnuveganna og heyrir undir sjávarútvegsráðuneytið. Stefna
Rf er að auka verðmæti sjávarfangs með rannsóknum, þróunar-
vinnu, miðlun þekkingar og ráðgjöf. Sérfræðisvið Rf eru m.a.
vinnslutækni, líftækni, efna- og eðliseiginleikar matvæla, gæði
og öryggi sjávarfangs, fóður og fóðurtækni í fiskeldi og umhverfis-
rannsóknir.
Útgerðarfélagið Rekavík ehf., í Bolungarvík
Kaupir Albatros GK frá Grindavík
Útgerðarfyrirtækið Rekavík
ehf. í Bolungarvík hefur fest
kaup á línuskipinu Albatros
GK-60 frá Þorbirni-Fiskanesi
hf. í Grindavík. Skipinu fylgir
350 tonna þorskkvóti og 1.000
tonna rækjukvóti. Rekavík
ehf. er dótturfyrirtæki Bakka-
víkur hf. í Bolungarvík. Meðal
annarra hlutahafa í Rekavík er
útgerðarfyrirtækið Ós ehf. sem
gerir út smábátana aflasælu
Hrólf Einarsson ÍS og Guð-
mund Einarsson ÍS.
Að sögn Agnars Ebenesers-
sonar, framkvæmdastjóra
Bakkavíkur, tekur Rekavík
ehf. nú yfir útgerðina sem
Bakkavík hefur haft með
höndum þ.e. útgerð smábát-
anna Einars Hálfdáns og Haf-
dísar auk annars af bátum Óss
ehf.
Agnar vildi ekki gefa upp
kaupverð Albatross. Hann
segir að kaupin verði að hluta
til fjármögnuð með eigin fé en
Rekavík ehf. hefur nú verið
lagt til um 350 milljónir króna
í hlutafé. Hann segir kaupin
gerð til þess að styrkja hráefn-
isöflun Bakkavíkur ehf. til
lengri tíma litið bæði í bolfisk-
vinnslu og rækjuvinnslu. Skip-
ið verður gert út til línuveiða
enda búinn beitningavél. Skip-
ið verður afhent í lok maí.
Skipstjóri hefur verið ráðinn
aflamaðurinn Guðmundur
Einarsson sem um árabil hefur
gert úr smábátinn Guðmund
Einarsson ÍS en var áður m.a.
stýrimaður á Guðbjörgu ÍS.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er ekki óraunhæft að
ætla að kaupverð Albatross
geti verið á bilinu 7-800 millj-
ónir króna.
Sem kunnugt er var Þor-
björn-Fiskanes hf. afskráð úr
Kauphöll Íslands í kjölfar yfir-
töku Þorbjarnarfjölskyldunnar
svokölluðu á félaginu. Í kjöl-
farið virðist hafin mikil eigna-
sala frá fyrirtækinu því í síð-
ustu viku var einnig tilkynnt
um sölu nótaveiðiskipsins
Grindvíkings með töluverðum
aflaheimildum til Vestmanna-
eyja. Að sögn fjölmiðla var
söluverð Grindvíkings um
tveir milljarðar króna. Hafa
skip og kvóti að verðmæti 2,8
milljarða því verið seldir frá
Grindavík.
Þorbjörn hf. sameinaðist á
sínum tíma Bakka hf. í Bol-
ungarvík og skömmu síðar
hvarf aflakvóti og skip Bakka
hf. til Grindavíkur. Með nokk-
urri einföldun má því segja að
sá aflakvóti sé nú að hluta til
að skila sér til baka.
Skipið Albatros er ekki
ókunnugt við Djúp. Það var
smíðað í Flekkefjord í Noregi
árið 1967 fyrir Hraðfrystihúsið
Norðurtangann hf. og hét í
fyrstu Guðbjartur Kristján ÍS-
20 og síðan Orri ÍS-20. Skipið
var síðan selt Bakka hf. í Bol-
ungarvík og fékk þá nafnið
Vinur ÍS. Síðar var skipið selt
Fiskanesi hf. í Grindavík og
fékk þá núverandi nafn.
– hj@bb.is
Nýr síubúnaður sorpbrenn-
slustöðvarinnar Funa í Engidal
var tekinn í notkun í síðustu
viku og þykir gefa góða raun.
„Það er náttúrlega of fljótt að
tala um að málið sé leyst en
strax þegar við tengdum síuna
varð sjáanlegur munur á út-
blæstrinum. Nú vantar okkur
bara gott logn og erfið skilyrði
til að láta reyna á virknina“,
segir Víðir Ólafsson, stöðvar-
stjóri í Funa.
Sorpbrennslustöðin er búin
vothreinsibúnaði en nýi búnað-
urinn er ætlaður til viðbótar
og á að hreinsa ryk úr útblæstr-
inum. Sían er smíðuð í Dan-
mörku og var sett upp við stöð-
ina í febrúar. Þrátt fyrir að Funi
þyki ein allra fullkomnasta
sorpbrennslustöð landsins
hefur mistur lagt frá stöðinni
og safnast fyrir í Skutulsfirði
þegar gerir langvarandi stillur.
Íbúum fjarðarins hefur þótt
mistrið afar hvimleitt og hefur
það orðið tilefni til blaðaskrifa
í gegnum tíðina.
– kristinn@bb.is
Sorpbrennslustöðin Funi.
Nýr síubúnaður kominn í gagnið
Sorpbrennslustöðin Funi í Engidal
Geir H. Haarde, fjármála-
ráðherra, kom í stutta heim-
sókn til Ísafjarðar í síðustu
viku þar sem hann var gestur
á aðalfundi Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélagana í Ísa-
fjarðarbæ ásamt Einari Oddi
Kristjánssyni, alþingis-
manni. Geir notaði tímann
og heimsótti Hraðfrystihúsið
- Gunnvöru hf. þar sem hann
fræddist um starfsemi fyrir-
tækisins og þá sérstaklega
þorskeldið sem HG hefur
náð góðum árangri í. Þá
heimsótti hann Menntaskól-
ann á Ísafirði og hitti Ólínu
Þorvarðardóttur, skólameist-
ara, áður en hann hélt flug-
leiðis aftur til Reykjavíkur.
Fjármálaráðherra drakk
morgunkaffi hjá Fræðslu-
miðstöð Vestfjarða á Ísafirði
þar sem hann hitti Smára
Haraldsson, forstöðumann,
og nemendur í fjarnámi að
máli og var meðfylgjandi
mynd tekin við það tækifæri.
Ferðin þótti hin gagnlegasta
og hafði fjármálaráðherra að
eigin sögn mikla ánægju af
yfirreiðinni.
Fjármálaráðherra í heimsókn
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar,
Kristín Hálfdánsdóttir, fjarnemi, Þórir Örn Guðmundsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna í Ísafjarðarbæ, Gunnar Þórðarson, fjarnemi, Einar Oddur Kristjánsson, alþingis-
maður og Karl Ásgeirsson, fjarnemi.