Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.04.2004, Page 16

Bæjarins besta - 28.04.2004, Page 16
Bíla-Bergur með nýja Lotusinn á heimaslóðum Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk www.bb.is – daglegar fréttir á netinu Tekjuskattur lögaðila á Vestfjörðum hækkaði nokk- uð á milli áranna 2002 og 2003. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra Geirs H Haarde á Alþingi við fyr- irspurn Kristjáns L. Möller (S). Á sama tíma hefur eign- arskattur lögaðila og ein- staklinga á Vestfjörðum lækk- að nokkuð. Á árinu 2002 var tekjuskatt- ur lögaðila á Vestfjörðum 141 milljón króna eða um 1,39% af tekjuskattsgreiðslum lögað- ila á landinu. Á árinu 2003 námu tekjuskattsgreiðslurnar um 233 milljónum króna eða um 1,68% af tekjuskattgreiðsl- um lögaðila á landinu. Á árinu 2002 greiddu ein- staklingar á Vestfjörðum 46 milljónir króna í eignarskatta eða um 1,19% af heildargreið- slum einstaklinga. Árið 2003 námu eignarskattarnir hins- vegar 26 milljónum króna eða um 1,24% af heildargreið- slum. Lögaðilar á Vestfjörðum greiddu um 32 milljónir króna í eignarskatt á árinu 2002 eða um 1,57% af heild- argreiðslum. Árið 2003 námu skattgreiðslurnar 20 milljónum króna. – hj@bb.is Eignarskattur lögaðila lækkar Tekjuskattur lögaðila á Vestfjörðum hækkar Ársreikningur Bolungarvíkurkaupstaðar og stofnana hans fyrir árið 2003 Betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir Ársreikningur Bolungarvík- urbæjar og stofnana hans fyrir árið 2003 var lagður fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn í síðustu viku. Rekstarniðurstaðan var neikvæð á árinu 2003 um 44 milljónir króna en í fjárhags- áætlun var reiknað með að reksturinn yrði neikvæður um rúmar 60 milljónir króna. Reksturinn er því að skila um 16 milljónum betri niðurstöðu en áætlanir gerðu ráð fyrir í upphafi. Heildartekjur Bolungarvík- urbæjar og stofnana hans voru tæpar 393 milljónir króna og eru því nánast þær sömu og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Skatttekjur eru nokkru lægri en áætlað var en framlög jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga og aðr- ar tekjur voru nokkru hærri en reiknað var með. Rekstrargjöld bæjarins og stofnana hans voru rúmar 380 milljónir króna eða um 7% lægri en áætlað hafði verið. Laun og launatengd voru nokkru hærri en reiknað var með en annar rekstrarkostn- aður mun lægri en í áætlun. Fjármagnsgjöld námu tæpum 29 milljónum króna en í áætl- un var reiknað með rúmum 15 milljónum króna. Í árslok 2003 voru skuldir Bolungarvíkurbæjar og stofn- ana hans að frádregnum veltu- fjármunum rúmar 705 millj- ónir króna og höfðu því aukist um tæpar 48 milljónir króna á árinu. Skatttekjur Bolungarvíkur- bæjar voru um 50,5% af heild- artekjum. Framlög jöfnunar- sjóðs voru um 14,7% af heild- artekjum og aðrar tekjur um 34,8% af heildartekjum. Laun og launatengd gjöld námu 55,53% af tekjum, önnur rekstrargjöld voru 41,34% af tekjum. Heildarrekstrargjöld voru því 103,92% af tekjum. Rekstrarniðurstaðan í heild var því neikvæð um 11,18% af tekjum. Bæjarstjórn Bolungarvíkur- bæjar samþykkti samhljóða á fundi sínum að vísa ársreikn- ingnum til síðari umræðu bæj- arstjórnar sem væntalega verð- ur á næsta fundi. – hj@bb.is Bolungarvík. Farþegum sem fóru um Ísa- fjarðarflugvöll á fyrstu þremur mánuðum ársins hefur fjölgað um 11,5% miðað við sömu mánuði í fyrra. Aukningin nemur tæplega 1.000 manns en 9.293 fórum um flugvölinn á tímabilinu. Farþegar í janúar voru 2.980, í febrúar fóru 3.295 um völlinn og 3.018 í mars. Þá fjölgaði farþegum sem fóru um Bíldudalsflugvöll um 18% á tímabilinu. Farþegum sem fóru um ís- lenska áætlunarflugvelli á fyrstu þremur mánuðum ársins fjölgaði um 16,7% á milli ára og hafa ekki verið fleiri síðan árið 2000. Mest aukning var í fjölda farþega um Egilsstaða- flugvöll eða 50,3%. Þeir voru rúmlega 22 þúsund á fyrstu þremur mánuðum ársins og hafa aldrei verið fleiri. Farþeg- um um Bakka fjölgar um 25%, 16% í Reykjavík, 14,6% í Vestmannaeyjum og 9% á Ak- ureyri. – kristinn@bb.is Farþegum fjölgar Ísafjarðarflugvöllur Ísafjarðarflugvöllur. Bergur Guðnason frá Flateyri, eða Bíla-Bergur eins og hann er víða þekktur, lét drauminn rætast fyrir skömmu og keypti sér afar fullkominn Lotus Esprit sportbíl. Bergur reyndi bílinn á heimaslóðum á Flateyri og í nágrenni nú um helgina og vakti smár en afar knár bíllin athygli hvarvetna sem hann fór. Bíllin er afturhjóladrifinn með miðjumótor og kemst á 5,1 sekúndu upp í 100 km hraða. Vélin 160 hestöfl þykir feykinóg enda bílinn mjög léttur, einungis 710 kíló. Þetta er 88. bíllinn sem Bergur eignast og var hann sóttur til Þýskaland. Bíllinn kostaði 9 milljónir króna. Ljósmynd: Páll Önundarson.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.