Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 26.05.2004, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 26.05.2004, Qupperneq 1
Hamingjan er viðhorf Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk Miðvikudagur 26. maí 2004 · 21. tbl. · 21. árg. – sjá viðtal í miðopnu við opin- skáa og lífsglaða nýaldarsinnann Önnu Sigríði Ólafsdóttur Farþegaflugvél í aðflugi til Bíldudals Rangur lestur af loftþrýst- ingsmæli í flugturni varð til þess að Dornier-vél Íslands- flugs flaug um 300 fet niður fyrir lágmarksflughæð í að- flugi til lendingar á flugvell- inum í Bíldudal í lok ágúst í fyrra. Tveir menn voru í áhöfn vélarinnar og sex far- þegar. Eftir lendingu sýndu þrýstingshæðarmælar flug- vélarinnar 325 fet þar sem hún var á flugbrautinni en flugvöllurinn er í 25 feta hæð yfir sjávarmáli. Flugmenn vélarinnar fóru þá upp í flugturninn til að skoða loftvogina þar og kom þá á daginn að loftþrýsting- urinn var 1018 hPa en ekki 1028 hPa eins og áhöfn vél- arinnar hafði verið gefið upp. Flugvallarvörðurinn taldi að aflestrarvilla hefði valdið því að rangur loftþrýstingur var gefinn upp. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Rann- sóknarnefndar flugslysa um atvikið en í henni segir einn- ig að þrjú slík atvik hafi orðið hér á landi á síðustu 5 árin. Flaug 300 fet niður fyrir lágmarksflughæð Torfhildur Torfadóttir 100 ára Torfhildur Torfadóttir, íbúi á Hlíf íbúðum aldraðra á Ísa- firði varð 100 ára á mánudag. Torfhildur fæddist í Asparvík á Ströndum og var yngst átta barna Önnu Bjarnveigar Bjarnadóttur og Torfa Björns- sonar. Að auki átti Torfhildur þrjú hálfsystkini. Nokkur syst- kina Torfhildar náðu háum aldri en bróðir hennar Ásgeir varð 100 ára, Eymundur 96 ára og Guðbjörg 91 árs. Torfhildur ólst upp í Selár- dal í Steingrímsfirði en að lok- inni fermingu fór hún í vinnu- mennsku í Króksfirði og Reyk- hólasveit. Til Ísafjarðar hélt hún til starfa á klæðskeraverk- stæði Einars og Kristjáns. Hún starfaði þar við saumaskap uns hún giftist og stofnaði heimili með Einari Jóelssyni sjómanni og bjuggu þau allan sinn bú- skap á Ísafirði þar til Einar lést árið 1981. Þau eignuðust fimm börn og eru þrjú þeirra á lífi í dag en að auki ólu þau upp dótturdóttur sína. Torfhildur vann töluvert ut- an heimilis og þá mest við rækjuvinnslu. Hún hefur að sögn alla tíð verið heilsuhraust og fer ennþá allra sinna ferða gangandi um Ísafjörð. Torf- hildur varði afmælisdeginum í faðmi fjölskyldunnar en á laugardag kl. 16 bíður hún ætt- ingjum og vinum til veislu í samkomusalnum á Hlíf. – hj@bb.is 21.PM5 12.4.2017, 10:111

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.