Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 26.05.2004, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 26.05.2004, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 20042 Mælt með Kristínu Ósk Fræðsluráð Bolungarvíkur mælir með Kristínu Ósk Jónasdóttur, námsráðgjafa hjá Skóla- og fjölskyldu- skrifstofu Ísafjarðarbæjar, í starf skólastjóra Grunnskóla Bolungarvíkur. Átta sóttu um stöðuna. Skólastarf í Bolungarvík er öflugt og hefur grunnskólinn skipað sér fremst skóla á Vestfjörð- um á samræmdum prófum mörg undanfarin ár. Góður gangur hjá Jaxlinum Jaxlinn flutningaskip Sæ- skipa ehf., hefur nú um nokkurra vikna skeið stund- að vöruflutninga á milli höf- uðborgarsvæðisins og Vest- fjarða. Sigmar Ólafsson hjá Sæskipum ehf. segir starf- semina hafa farið vel af stað. „Það hefur verið ljúfur stíg- andi í flutningum okkar,“ sagði Sigmar. Jaxlinn siglir að sunnan á miðvikudögum og sunnudögum og er hér vestra á mánudögum og fimmtudögum. Skipið kemur við á öllum Vestfjarðahöfn- um þar sem flutning er að hafa, utan Suðureyrar, á leið sinni til Ísafjarðar. Þar snýr skipið við og heldur á ný til Reykjavíkur. Gísli ráðinn fjármálastjóri Gísli Halldór Halldórsson, við- skiptafræðingur og verslunarstjóri á Ísafirði, hefur að tillögu skóla- meistara verið ráðinn fjár- málastjóri Menntaskólans á Ísafirði. Fimm umsækjendur voru um stöðuna en einn umsækjandi hafði dregið umsókn sína til baka áður en kom að ráðningu. Félagsheim- ilið verði selt Framtíð félagsheimilisins á Suðureyri var meðal um- ræðuefna á kynningarfundi sem byggingarnefnd um íþróttahús á Suðureyri gekkst fyrir í síðustu viku. Þar kom m.a. annars fram að fyrirhugað væri að auglýsa félagsheimilið til sölu þar sem engin félagasamtök væru reiðubúin til að taka það að sér. Súgfirðingar fjölmenntu á fundinn og var auðheyrt að fundarmönnum hugnaðist vel að fá íþrótta- hús á staðinn eftir áratuga bið. Bryndís Birgisdóttir, formaður bygginganefndar um íþróttahús á Suðureyri, segir nefndina bjartsýna á framhaldið og er áætlað að fullbúið fjölnota íþróttahúsið verði tekið í notkun 1. mars á næsta ári. Vesturbyggð gengur til samninga við Gámaþjónustu Vestfjarða um sorphirðu Fer sorp frá Vesturbyggð til eyðingar í Funa á Ísafirði? Bæjarráð Vesturbyggðar hefur falið bæjarstjóra að ganga til samninga við Gáma- þjónustu Vestfjarða um sorp- hirðu í sveitarfélaginu. Verði af samningum verður sorpið flutt til Ísafjarðar til eyðingar. Fyrir skömmu var sorphirða í Vesturbyggð boðin út og bár- ust tilboð frá fjórum aðilum og lögðu tveir þeirra jafnframt fram frávikstilboð. Þeir sem buðu í verkið voru Torfi And- résson, G.S.G. ehf., Íslenska Gámafélagið ehf./Njarðtak ehf. og Gámaþjónustan. Óháður aðili var fenginn til þess að fara yfir tilboðin og var það niðurstaða hans að ekkert tilboðanna uppfyllti ákvæði útboðslýsingarinnar. Í framhaldi af því ákvað bæjar- ráð Vesturbyggðar að hafna öllum tilboðunum. Þá sam- þykkti bæjarráð að fela bæjar- stjóra að ganga til samninga um sorphirðuna í Vesturbyggð við Gámaþjónustu Vestfjarða ehf. á grundvelli frávikstilboðs sem fyrirtækið sendi. Í því tilboði er gert ráð fyrir því að allt sorp verði flutt til Ísafjarðar og það brennt í sorp- eyðingarstöðinni Funa. Að sögn Ragnars Kristinssonar, framkvæmdastjóra Gáma- þjónustunnar, er reiknað með því að á sumrin verði sorpið flutt til Ísafjarðar með bílum en að vetrinum verði því safn- að saman til vors eða það flutt með skipum á milli en sem kunnugt er hófust áætlunar- siglingar innan Vestfjarða á dögunum með komu flutn- ingaskipsins Jaxlsins. Segir Ragnar að ef samningar takist muni Gámaþjónustan verða með starfsmann og tæki til staðar í Vesturbyggð. Tilboð Gámaþjónustunnar felur ekki í sér sorpeyðinguna sjálfa heldur þarf Vesturbyggð að semja um þann þátt við stjórn Funa á Ísafirði. Þá auglýsti Tálknafjarðar- hreppur eftir tilboðum í sorp- hirðu og voru tilboð opnuð í síðustu viku. Að sögn Ragnars bauð Gámaþjónustan í það verk einnig og verður tilhög- unin sú sama ef fyrirtækið hlýtur það verk. Í Vesturbyggð er reiknað með að um 400 tonn af sorpi falli til árlega. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjar- stjórn Ísafjarðarbæjar klofnaði í atkvæðagreiðslu um ályktun sem lögð var fyrir bæjarstjórn- arfund á miðvikudag í siðustu viku um fjölmiðlafrumvarp forsætisráðherra. Það var Lár- us G Valdimarsson bæjarfull- trúi Samfylkingar sem lagði fram svohljóðandi tillögu: „Undirritaðir bæjarfulltrúar bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar harma þau vinnubrögð, sem viðhöfð hafa verið af hálfu meirihluta Alþingis í tengslum við þinglega meðferð s.k. Fjölmiðlafrumvarps forsætis- ráðherra. Þau vinnubrögð eru vart til þess fallin að auka virð- ingu almennings fyrir hinu háa Alþingi. Það hlýtur að teljast lágmarkskrafa í sérhverju lýð- ræðisríki að málefni er varða grundvallaratriði lýðræðisins hljóti ítarlega og vandaða um- ræðu áður en lagasetning er varðar þau atriði er afgreidd. Æskilegt er að um slíka laga- setningu ríki þverpólitísk sátt. Í ljósi ofangreinds skorum við á þingmenn NV-kjördæmis að þeir skoði hug sinn vel við afgreiðslu þessa máls.“ Auk Lárusar voru flutnings- menn tillögunnar bæjarfulltrú- ar minnihlutans þau Magnús Reynir Guðmundsson, Frjáls- lyndum og óháðum og Bryndís Friðgeirsdóttir, Samfylkingu. Að auki voru flutningsmenn tillögunnar bæjarfulltrúar meirihlutans þau Svanlaug Guðnadóttir og Björgmundur Ö. Guðmundsson, Framsókn- arflokki ásamt Ragnheiði Há- konardóttur og Elíasi Guð- mundssyni Sjálfstæðisflokki. Meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar skipa fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins og tveir bæjarfull- trúar Framsóknarflokksins eða sömu flokkar og mynda ríkis- stjórn Íslands. Að loknum um- ræðum var tillagan samþykkt með sjö atkvæðum gegn einu atkvæði bæjarstjórans. Birna Lárusdóttir bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokks sat hjá. – hj@bb.is Klofnaði við afgreiðslu ályktunar um fjölmiðlamál Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar Stúlkurnar sem námu við Húsmæðraskólann Ósk vetur- inn 1953-1954 komu saman á Ísafirði um síðustu helgi og fögnuðu fimmtíu ára útskrift- arafmæli. Þann vetur voru 35 stúlkur á skólanum og voru 22 mættar til endurfundanna nú en þrjár eru fallnar frá. Námsmeyjarnar á Húsmæðra- skólanum bjuggu á heimavist og var svipaður háttur hafður á við endurfundina þar sem bæði aðkomnir og heimafólk bjó á Gamla gistihúsinu. Magdalena Sigurðardóttir, ein námsmeyja, segir endur- fundina hafa tekist ljómandi vel. Hópurinn skoðaði m.a. gamla skólann sinn, sem nú hýsir Tónlistarskóla Ísafjarðar, og heimsótti eyjuna Vigur í Ísafjarðardjúpi þar sem æsku- slóðir þáverandi forstöðukonu Húsmæðraskólans, Þorbjargar Bjarnadóttur, liggja. Magdalena segir þær stöllur hafa tekið bæinn með trompi og ekki spillti fyrir að veður var með eindæmum gott. „Það var mikið hlegið og mikið rifj- að upp, og ennþá erum við að heyra nýjar sögur“, sagði Magdalena. – kristinn@bb.is Fögnuðu fimmtíu ára útskriftaraf- mæli frá Húsmæðraskólanum Ósk 21.PM5 12.4.2017, 10:112

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.