Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.05.2004, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 26.05.2004, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 20046 ritstjórnargrein Sinnaskipti þingmanna ISSN 1670 - 021X Útgefandi: H-prent ehf., Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 · Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Kristinn Hermannsson, sími 863 1623, kristinn@bb.is – Halldór Jónsson, sími 892 2132, hj@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, sími 849 8699, thelma@bb.is · Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is · Auglýs- ingar: Steingrímur Rúnar Guðmundsson, sími 896 0035, denni@bb.is · Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Hall- dór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 250 eintakið með vsk. Áskriftarverð er kr. 215 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ orðrétt af netinu strik.is – Egill Helgason Klókindi Davíðs Í dreifibréfi frá menntamála- ráðuneytinu sem birt var í síð- ustu viku er vakin athygli á umræðu þeirri sem átti sér stað fyrir skömmu um aukna ásókn ýmissa fyrirtækja í að auglýsa beint eða óbeint í grunnskól- um. Umræðan kviknaði í kjöl- far bréfs frá Skarphéðni Jóns- syni, skólastjóra Grunnskól- ans á Ísafirði, til ráðuneytisins. Urðu um þetta mál nokkrar umræður á Alþingi þar sem ráðherra menntamála kvaðst ekki hafa heimildir til þess að setja reglur um slík mál á landsvísu. Í dreifbréfi ráðuneytisins segir m.a.: „Ráðuneytið telur til fyrirmyndar að hvert sveit- arfélag setji sér verklagsreglur um auglýsingar í grunnskólum í samráði við grunnskóla sveit- arfélagsins. Mikilvægt er að slíkar reglur séu vel kynntar meðal nemenda, starfsfólks skóla og foreldra. Eðlilegt er að birta slíkar verklagsreglur í skólanámskrá skólans. Ráðu- neytið beinir þeim tilmælum til sveitarfélaga að þau taki þetta mál upp í hverju sveitar- félagi fyrir sig með það að markmiði að settar verði verk- lagsreglur í samvinnu við skólastjórnendur.“ Vill að sveitarfélög setji regl- ur um auglýsingar í skólum Menntamálaráðuneytið Verkefni á Vestfjörðum fengu kr. 3.450.000 við úthlut- un úr Pokasjóði sem fram fór í síðustu viku. Hæsta styrkinn, eina milljón króna, fékk áhugamannafélagið Ragga- á fimm stöðum við Djúp í júní og Þröstur Sigtryggsson fékk 600 þúsund vegna menningar- minjasafns við Núp á Dýra- firði. Atvinnuþróunarfélag Vest- fjarða fékk 500 þúsund til merkingar gönguleiða og framkvæmdasjóður Skrúðs fékk 600 þúsund til að leggja lokahönd á aðkomu garðsins og merkingar við bílastæði. garður vegna uppbyggingar sumarleiksvæðis í Súðavík. Pétur Jónasson, gítarleikari, fékk 750 þúsund króna styrk til að halda tónlistarhátíðina Við Djúpið sem haldin verður Verkefni á Vestfjörðum Fá á fjórðu milljón úr Pokasjóði Fyrirtækið 3X-Stál á Ísa- firði, sem sérhæfir sig í vinn- slulausnum fyrir sjávarútveg, hefur verið útnefnt frumkvöð- ull ársins 2003 í Ísafjarðarbæ. Fulltrúar atvinnumálanefndar bæjarins afhentu forsvars- mönnum 3X-stáls viðurkenn- inguna þess efnis í síðustu viku. Í tilkynningu frá atvinnu- málanefnd segir að ávallt hafi verið lögð mikil áhersla á ný- sköpun og vöruþróun hjá fyrir- tækinu og markmið þess sé að koma með nýja vöru á markað á tveggja mánaða fresti. „Helstu ástæður velgengni fyrirtækisins eru áræðni eig- enda þess, gott starfsfólk og náið samstarf við sjávarút- vegsfyrirtæki á svæðinu í þróun lausna og nýjunga á þessu sviði.“ Þá kemur fram að forsvarsmenn 3X-Stáls hafi hug á að nýta þekkingu fyrir- tækisins á öðrum sviðum m.a. í meðhöndlun grænmetis. 3 X-Stál fagnar tíu ára afmæli í ár. Það hefur verið í örum vexti frá upphafi og alltaf skilað hagnaði. Hjá 3X-Stáli starfa á bilinu 25-30 manns og eru aðalstöðvar þess á Ísafirði en dótturfyrirtæki er starfrækt í St Johns í Kanada. Auk þess á 3X-Stál hlut í Rennex á Ísa- firði sem er sérhæft renniverk- stæði og framleiðir íhluti fyrir 3X-Stál og fleiri fyrirtæki víða um land. – kristinn@bb.is Frumkvöðull ársins 2003 í Ísafjarðarbæ 3X-Stál hf. á Ísafirði Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, og Elías Guðmundsson, formaður atvinnumálanefndar, afhentu for- svarsmönnum 3X-stáls, þeim Alberti Högnasyni og Jóhanni Jónassyni, viðurkenninguna. Fyndnast væri náttúrlega ef Ólafur Ragnar sæti uppi með skömmina af þessu – að hann yrði hið pólitíska fórnarlamb fjöl- miðlamálsins sökum þess að hann skrifaði undir. Það kallast að falla á eigin bragði. Því auðvitað ber Ólafur nákvæmlega enga ábyrgð á gjörningnum. Þetta er svipað og þegar mótmælin gegn Kárahnjúkum voru sem háværust og allt náttúruverndarliðið mætti til að pípa á Ingibjörgu Sólrúnu – sem kom málið voða lítið við. Er þetta annars ekki enn eitt dæmið um klókindi Davíðs – hvernig hann leikur alltaf á okkur öll og stendur að lokum uppi sigurvegari? Ég hef stundum sagt að slægð Davíðs sé dýrsleg. Þetta er ekki spurning um gáfur, heldur eðlisávísun. Davíð á bara eina hugsjón – að hanga á völdum sínum hvað sem það kostar. Honum tekst það alveg bærilega. Frægt er þegar Dana- kóngur hitti Jónas frá Hriflu og sagði við hann: „Spiller De stad- igvæk den lille Mussolini?“ Á þetta ekki bara ágætlega við á vorum dögum? ,,Þingmenn leggja ríka áherslu á að (sú) skilgreining á byggða- kjarna, sem nefnd hefur verið, nái til allra sveitarfélaga á norðan- verðum Vestfjörðum“, segir í bréfi fyrsta þingmanns Norðvestur- kjördæmis, Sturlu Böðvarssonar ,samgönguráðherra, sem hann ritar fyrir hönd þingmanna kjördæmisins til bæjarstjóra Ísafjarðar- bæjar. Fram til þessa hefur það ekki vafist fyrir neinum sæmilega læsum manni hver skilgreining á byggðakjarna fyrir Vestfirði væri. Um það vitna fyrri samþykktir um málið. Með bréfinu boða þingmennirnir hins vegar kollsteypu í þessu mikilvægasta máli vestfirskra byggða, nú sem stendur. Sinnaskipti þingmanna kjördæmisins vega að grundvelli þeirrar stefnu, sem mörkuð var af stjórnvöldum og samstaða hefur verið um milli sveitarstjórnarmanna á Vestfjörðum, hingað til að minnsta kosti, að Ísafjörður yrði efldur sem þéttbýliskjarni á Vestfjörðum. Rétt þykir því að undirstrika samþykkt bæjarstjórnar Ísafjarðarbæj- ar vegna bréfs Sturlu Böðvarssonar. Þar segir m.a.: ,,Hugmyndin með byggðakjarna er sú að áhrifasvæði hans sé sem stærst og í til- felli Ísafjarðar séu það allir Vestfirðir með bættum samgöngum, en ekki einungis norðanverðir Vestfirðir.“ Í ljósi seinagangs og sinnuleysis, sem einkennt hefur viðhorfin til byggðakjarna á Ísa- firði, þrátt fyrir allar viljayfirlýsingar stjórnvalda, skal spurt: Kemur þingmönnunum til hugar að ljáð verði máls á öðrum byggðakjarna á Vestfjörðum, sem dreifist þá væntanlega á Patr- eksfjörð, Bíldudal og Tálknafjörð? Eða hvað ætla þingmennirnir þessum byggðum? Hefur einhverjum til hugar komið að byggðakjarnanum norðan heiða verði sáldrað á Akureyri og nágrannasveitarfélögin? Auðvitað ekki. Menn sjá fyrir sér jákvæð áhrif út frá byggðakjörnunum, meðal annars með bættum samgöng- um og stærri sveitarfélögum. ,,Það er ljóst að landsbyggðin er að flosna upp og því verða stjórnvöld að hafa markvissa stefnu og ekki dreifa kröftunum um of. Mér finnst að með þessari stefnubreytingu sé verið að þynna út byggða áætlunina sem hér var gerð og með því er verið að tefja fyrir málinu. Um þetta var mótuð einróma stefna sveitarstjórnar- manna á Vestfjörðum og þingmenn eiga að sjá sóma sinn í því að standa við bakið á okkur í þessari vinnu. Með þessari stefnubreyt- ingu er verið að skapa ósætti að óþörfu,“ segir Magnús Reynir Guðmundsson, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ. Það er ekki spurning um hvort, heldur hvenær, sveitarfélögin, sem nú bögglast fyrir brjósti þingmanna kjördæmisins, sameinast. Haldi fram sem horfir, munu ráðamenn þessara sveitarfélaga, fyrr en síðar, sjá sér þann kost vænstan að stíga í eina sæng. Sinnaskipti þingmannanna gefa stjórnvöldum hins vegar tækifæri til frekari seinagangs, sem er þó ærinn fyrir. s.h. 21.PM5 12.4.2017, 10:116

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.