Bæjarins besta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bæjarins besta - 26.05.2004, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 26.05.2004, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 7 Einar K. Guðfinnsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins Dagabátafrumvarpið „engin óskastaða“ Einar K. Guðfinnsson, þing- maður Norðvesturkjördæmis og þingflokksformaður Sjálf- stæðisflokksins, segir svokall- að dagabátafrumvarp sem sjávarútvegsráðherra mælti fyrir á Alþingi „enga óska- stöðu“. „Frumvarpið er hins vegar tilraun sjávarútvegsráð- herra til að höggva á hnútinn. Það eru uppi tvö ósamrýman- leg sjónarmið, annars vegar krafa um kvótasetningu og hins vegar krafa, okkar mjög margra, um dagakerfi með gólfi í fjölda daga“, segir Ein- ar. Í frumvarpi ráðherra er gert ráð fyrir að útgerðarmenn dagabáta geti valið hvort þeir haldi áfram í dagakerfi eða fái úthlutað kvóta. „Aðalatriðið sem við í sjávarútvegsnefnd þurfum að velta fyrir okkur er hvort þetta séu jafngildir kostir og því miður sýnist mér að kvótakosturinn sé mun betri og valið því ekki sanngjarnt. Mér sýnist verkefnið núna vera að búa svo um hnútana að menn geti valið um tvo jafngilda kosti.“ Bent hefur verið á að ef út- gerðarmenn dagabáta geti valið á milli aflamarks og sóknarmarks muni það draga úr ásókn bátanna í útræði frá Vestfjörðum en aðkomnir dagabátar hafa fært mikinn afla á land í fjórðungnum und- anfarin sumur. Aðspurður um þetta segir Einar að svo kunni að fara en einnig verði að horfa til þess að dagakerfi með gólfi hefði vafalítið fækkað bátum. Þá verði menn að hafa í huga að ekki sé endilega samband á milli landaðs afla og unnins afla á einstaka svæðum. Aðspurður um framgang málsins segist Einar reikna með að línur fari að skýrast í þessari viku. Frumvarpið er nú til meðferðar hjá sjávarút- vegsnefnd Alþingis sem mun kalla eftir umsögnum hags- munaaðila á næstu dögum. Einar segir ekki vera samstöðu um málið. „Það er örugglega engin samstaða nú og ég á ekki von á neinni samstöðu sama hver niðurstaðan verður hjá þinginu. Ég á því ekki að venjast að það sé nokkurn tím- ann samstaða um sjávarút- vegsmál“, sagði Einar K. Guð- finnsson. Samkvæmt frumvarpinu verður sóknardögum fækkað um einn á næsta fiskveiðiári og síðan verði fjöldinn endur- skoðaður við upphaf hvers fiskveiðiárs. Ef heildarafli sóknardagabáta eykst verður dagafjöldinn skertur í hlutfalli við það. Þá er kveðið á um að ekki megi vera með fleiri handfærarúllur en fjórar á bát og að aukning í vélarstærð báta komi til skerðingar á sóknar- dögum. Við kvótasetningu verði miðað við betra árið af fisk- veiðiárunum 2001 til 2002 og 2002 til 2003. – kristinn@bb.isEinar K. Guðfinnsson. Héraðsdómur sýknar tvo ökumenn af ákæru fyrir umferðarlagabrot Ökuritarnir sýndu minni hraða en ratsjáin Héraðsdómur Vestfjarða hefur sýknað tvo ökumenn af ákæru fyrir umferðarlagabrot þar sem ökuritar í bílum þeirra sýndu, að bílunum hefði verið ekið mun hægar en ratsjár- mælingar lögreglunnar á Hólmavík á bentu til. Báðir ökumennirnir mótmæltu því að hafa ekið jafn hratt og lög- reglan sagði og vísuðu á öku- ritann strax og þeir voru stöðv- aðir. Annar ökumaðurinn var stöðvaður í apríl 2002 er hann ók vörubíl með tengivagni um Djúpveg í Hrútafirði þar sem hámarkshraði er 80 km á klst. Lögreglan mældi bílinn á 104 km hraða á klst. en ökuritinn sýndi að bílnum hafði verið mest ekið á 89 km hraða áður en hann var stöðvaður. Hinn ökumaðurinn ók á á þjóðvegi 1 um Holtavörðu- heiði í júlí á síðasta ári þar sem hámarkshraði er 90 km á klst. Ratsjármælingar lögreglu bentu til þess að bílnum hefði verið ekið á 135 km hraða en ökuritinn sýndi að bíllinn hefði verið á um 100 km hraða. Niðurstöður beggja dóm- anna eru svipaðar. Í öðrum segir, að löng reynsla sé af hraðamælingum með ratsjá hér á landi og venja að leggja þær til grundvallar dómum, að því tilskildu að ekki hafi verið rangt að mælingu staðið á einhvern hátt eða vegna ytri aðstæðna verði niðurstaða hennar dregin í efa. Ekki sé leitt í ljós l að svo hafi verið í þessu tilviki og er sönnunar- gildi mælingarinnar því mikið. Við það bætist skýr og ein- dreginn framburður beggja lögreglumannanna um að ákærði hafi ekið á 135 km/ klst. er þeir héldu jöfnu bili milli bifreiðanna við eftirför og að ratsjá, hraðamæli lög- reglubifreiðarinnar og GPS tæki hafi borið saman um þann hraða. Hafi ákæruvaldið þann- ig fært fram afar veigamikil sönnunargögn til stuðnings því að bílnum hafi verið ekið svo hratt sem honum er gefið að sök. Fram hjá því verði þó ekki horft að ákærði framvísaði á vettvangi skráningarblaði úr tæki, sem honum sé skylt að hafa í bifreið sinni, yfirfarið var og prófað af faggiltum að- ila í desember 2002 og á að sæta vissu eftirliti við almenna skoðun ökutækis. Þetta tæki, ökuritinn, eigi að skrá raun- verulegan hraða bifreiðarinnar með 6 km/klst. mesta leyfilega fráviki. Skráningarblaðið sýni 100 km/klst. Ástæða hafi verið til að rannsaka betur þessa sterku vísbendingu um að ákærði hefði ekið miklum mun hægar en ratsjármælingin gaf til kynna. Verði hann ekki lát- inn bera hallann af því að svo var ekki gert. Þá segir í dómnum að óút- skýrt sé hvers vegna mismun- andi mælingar hafi verið á ökuhraða ákærða með tækjum sem eigi að vera nákvæm mælitæki á ökuhraða. Leiði þessi mismunur til þess að vafi sé um sök ákærða sem verði að meta honum í hag. Ísafjarðarbæjar. Þrjár nýjar flatir verða gerðar og er áætlað að þær verði tilbúnar til notk- unar á næsta ári. Skógrækt er einnig í fullum gangi á vellin- um en 50 tré verða gróðursett til viðbótar við 50 tré sem gróðursett voru í fyrrahaust og búið er að setja nýjan sand í sandglompur. Að sögn Tryggva Sigtryggs- sonar formanns vallarnefndar er brýnast er að taka af ánni verstu bugðurnar svo hún renni tiltölulega beint og síðan er tekin möl og færð upp á bakk- ana til að verja hana landbroti. „Áin hefur verið mjög vatns- mikil á vorin og hefur það átt stóran þátt í hve völlurinn hefur oft verið blautur. Einnig verða drenskurðir grafnir og rörum komið fyrir til að verja völlinn enn frekar fyrir bleytu,“ segir Tryggvi. Vafalaust hefur það ekki farið fram hjá kylfingum né öðrum sem eiga leið inn í Tunguskóg að stór moldarsár liggja víðs vegar um völlinn en ekki er langt í að völlurinn verði aftur grænn og fagur. Tryggvi segir markmiðið að gera völlinn að eins mikilli prýði og unnt er. Spennandi verður að sjá hve glæsilegur völlurinn verður að fram- kvæmdum loknum en áætlað er að þau taki 2-3 ár. Miklar framkvæmdir á golfvellinum í Tungudal Eins og sjá má eru framkvæmdirnar á golfvellinum í Tungudal í fullum gangi. 21.PM5 12.4.2017, 10:117

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.