Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.05.2004, Síða 9

Bæjarins besta - 26.05.2004, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 9 ars að vinna að skipulagningu hátíðar sem kölluð er Menning og náttúra, eða MN-hátíð og fer fram hér á Ísafirði í júní. Það er fólk úr öllum áttum sem kemur að því verkefni. Þetta verður heilmikil hátíð og margt spennandi að gerast. Boðið verður upp á alls konar viðburði, meðal annars tónlist, kvikmyndasýningu, leiklist, myndlistasýningar, listaklúbb á Langa Manga og margt, margt fleira. Einnig verða göngu- og skoðunarferðir á dagskránni og svo lýkur hátíð- inni með Sólstöðugöngu JC – þetta verður mjög spennandi. Við höfum upp á svo margt að bjóða. Við erum „Menning- arbærinn Ísafjörður“ og ættum að vera óhrædd við að gefa okkur út með þann titil. Ferða- þjónusta er nýi þorskurinn á Íslandi og við verðum að markaðssetja það sem við höf- um, eins og menningu og nátt- úruperlur – það er nóg af hvoru tveggja hér fyrir vestan.“ Sigldi í kringum hnöttinn „Ég vann í 13 mánuði sem þerna á skemmtiferðaskipinu Silver Cloud. Skipið var í hnattsiglingu og það var ævin- týralegt ferðalag. Þá fékk ég tækifæri til að kynnast heimin- um og finna út hvaða lönd mig langaði til að heimsækja aftur. Nýja-Sjáland heillaði mig upp úr skónum. Kannski var ástæðan að einhverju leyti sú, að þegar ég kom þangað var svo langt síðan ég hafði komið heim. Land og þjóð minntu á mig á Ísland, fyrir utan hitann náttúrlega – það er svo hlýtt og yndislegt þarna. Fólkið svo fallegt og svipar til Íslendinga – mikil náttúrubörn.“ Tek ekki þátt í lífsgæðahlaupinu „Að vera innilokuð á skrif- stofu í 9-5 vinnu er ekki fyrir mig. Ég hugsa alltaf um hvað ég fái út úr vinnunni. Mun ég læra af vinnunni og mun hún vinna með mér á þroskabraut- inni? Við höfum alltaf frelsi til að velja og hafna. Þegar ég heyri einhvern segja að honum finnist vinnan sín ömurleg en það sé bara eitthvað sem hann verði að gera, þá hugsa ég: Til hvers? Af hverju að fást við eitthvað sem lætur manni líða ömurlega til þess að hafa það ofurlítið betra? Þetta líf er alltof stutt ferðalag til þess. Annað hvort er að sætta sig við ástandið eins og það er eða breyta því! Ég nenni ekki að taka þátt í lífsgæðahlaup- inu. Hvað er hamingja? Er það að fá vinnu sem borgar fullt af peningum, er það að þekkja allt mikilvægasta fólkið – eða að vera sáttur við sjálfan sig? Vinur minn sendi mér einu sinni kort sem í stóð að ham- ingjan væri ekki ástand heldur viðhorf, og það er sannleikur fyrir mig. Lífið er hlutlaust í eðli sínu. Það er ekki fyrr en ég set flokk- unarstöðina í gang að hlutirnir verða að einhverju. Þannig trúi ég því að þeim mun bjartsýnni og jákvæðari sem ég er, því betri séu líkurnar á að hlutirnir fari vel. Og ef ekki, þá var ég að minnsta kosti hamingjusöm í aðdragandanum. Ég vil ekki vera níræð, líta yfir farinn veg og vera bitur. Nú þegar ég lít til baka, þá hugsa ég: Jú, þetta er bara búið að vera nokkuð gaman.“ Ásatrú og rímnakveðskapur „Ég er skráð í Ásatrúarfé- lagið en hef enn ekki komist á blót. Hef ekki komið mér í það en það kemur vonandi fljótlega að því. Ásatrú rúmar allt – virðingu fyrir lífinu, nátt- úrunni og fólkinu. Gömlu goð- in eru svo margbrotin og standa fyrir allt mögulegt. Við ættum að reyna halda í fornu hefðirnar og bera virðingu fyrir Móður Jörð sem og öllum hennar lífverum. Annars finnst mér trú vera einkamál hvers og eins. Ásatrú snýst heldur ekki eingöngu um trú heldur forna siði okkar Íslendinga. Eins er ég alveg heilluð af rímnakveðskap. Ég las ein- hvers staðar að rímnakveð- skapur væri æðasláttur þjóðar- innar og mér finnst sannleikur í því. Ég er að vona að í sumar fáum við jafnvel að verða þess aðnjótandi að fá námskeið í rímnakveðskap. Það er hálf- gerð helgistund þegar Allianz- auglýsingarnar þar sem Stein- dór Andersen kveður rímur birtast á skjánum. Rímur höfða til mín og ég ætla að læra að kveða rímur. Ég var í Færeyjum fyrir stuttu og þar fékk ég tækifæri til að dansa vikivaka sem er ótrúlega einfaldur dans við rímnasöng. Ég gæti alveg trúað því að fólk komist í leið- slu við að dansa vikivaka og syngja rímur enda dansa Fær- eyingar eins og þeir eigi lífið að leysa langt fram á morgun.“ Hreyfanleg hugleiðsla „Þegar ég var að vinna á Silver Cloud uppgötvaði ég að dans hafði hreinsandi áhrif á mig eins og ég væri að fara út með ruslið á sálinni – andleg hreinsun. Þegar ég kom heim til Íslands gerði ég mér grein fyrir því að ég væri nú senni- lega ekki að finna upp hjólið, að einhver annar væri búinn að gera sér grein fyrir þessu. Vinkona mín sendi mér bók sem kona að nafni Gabrielle Roth skrifaði um dans sem hún hafði þróað, sem heitir „Maps to Ecstacy“. Bókin var sem skrifuð fyrir mig og ég vissi strax að ég yrði að læra meira. Þegar þetta var vann ég í Götusmiðjunni sem ráðgjafi. Ég sagði upp vinnunni og dreif mig til Bandaríkjanna til að fara á námskeið í þessum fimmrythmadansi. Ég var í tæpa fjóra mánuði að elta dans- námskeið þvers og kruss um Bandaríkin og fór svo til Kan- ada, Þýskalands, Englands og Svíþjóðar. Í gegnum dansinn lærði ég að tengja höfuðið við líkam- ann, að vera ein heild. Það er erfitt að útskýra hvernig dans- inn virkar en þetta er andleg leið í gegnum hreyfingu – ekki bara að læra einhver dansspor. Á bak við dansinn er heilmikil heimspeki og fræði. Gabrielle Roth þróaði dansinn og ég er einmitt að fara núna á nám- skeið hjá henni í Chicago. Hún hefur unnið við leikstjórn og gefur út tónlist og notar þann bakgrunn við kennsluna. Hennar hugmyndir hafa náð miklum vinsældum bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Aðallega er það fólk úr lista- geiranum og „þerapistar“ sem tekur kennararéttindi í fimm- rythmadansi. Hver kennari kemur svo með sitt innlegg í kennsluna og námskeiðin eru mjög fjölbreytt. Fyrir þremur árum fór ég t.d á mánaðarlangt námskeið þar sem verið var að vinna með þau þrenns konar samskipti sem við erum í dags- daglega. Samskiptin við okkur sjálf, samskipti einn á móti einum og samskiptin við hóp- inn. Þá er farið djúpt í hlutina – mikil vinna, mikill dans og heilmikil tiltekt.“ Búddaklaustur og svitatjöld „Ég hef stundað alls kyns hugleiðslur og meðal annars verið í Búddaklaustri í Kali- forníu, þar sem ég vaknaði milli fjögur og fimm á morgn- ana til að hugleiða og kyrja. Annars hef ég komist að því að besta hugleiðslan fyrir mig er að hreyfa líkamann. Hug- leiðslupælingin í dansinum er t.d. „The fastest way to still the mind is to move the body“, sem hægt væri að þýða „Fljót- legasta leiðin til að róa hugann er að hreyfa líkamann“. Svo fer ég reglulega í „svett“ í Elliðaárdalnum. Svettið út- leggst svitahof á íslensku og er helgiathöfn frá indíánum. Þar er farið inn í tjald með glóandi heitum steinum og sungnir indíánasöngvar. Þetta gera indíánarnir til að hreinsa sál og líkama og auðvitað við Íslendingar líka.“ Anna Sigga virðist svo sann- arlega hafa heilbrigða sál og líkama. Hvort sem það er að þakka svetti, hreyfanlegri hug- leiðingu eða jákvæðu viðhorfi. Eitt er víst að hér er á ferðinni kvenmaður sem lætur hlutina gerast og ævintýrin bíða hand- an við hornið. Næsta ævintýri bíður ef til vill í Chicago á námskeiði í danshugleiðingu. Við óskum henni góðrar ferðar að vestan til Vesturheims. – thelma@bb.is 21.PM5 12.4.2017, 10:119

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.