Bæjarins besta


Bæjarins besta - 26.05.2004, Síða 13

Bæjarins besta - 26.05.2004, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 13 Fiskveisla Íslandssögu og Klofnings haldin með glæsibrag Óhætt er að segja að mikil gleði hafi ríkt á Suðureyri á laugardagskvöld þegar fyrir- tækin Íslandssaga og Klofn- ingur buðu starfsfólki sínu og mökum til sameiginlegrar fiskveislu. Um 160 manns mættu til veislunnar sem var haldin í félagsheimili staðar- ins en SKG-veitingar sáu um matargerð og var eingöngu fiskur í boði. Brugðið var út af vananum í þetta sinn og ekki matreiddur fiskur sem fyrirtækin framleiða eins og tíðkast hefur síðustu tvö ár. Skemmtiatriðin voru ekki af lakara taginu því Laddi og Jóhannes Kristjánsson, eftir- herma, komu að sunnan til kitla hláturtaugar matargesta og tókst frábærlega til að sögn viðstaddra. Á dag- skránni voru að auki heima- tilbúin skemmtiatriði og hlutu þau ekki síðri undir- tektir veislugesta. Að lokn- um skemmtiatriðum var stiginn dans fram á nótt. Vel var látið af bæði mat og skemmtiatriðunum og fóru allir sælir heim að sögn Ævars Einarssonar hjá Ís- landssögu. Þetta er í þriðja sinn sem fiskveisla Klofn- ings og Íslandssögu er haldin og enginn vafi á að hún verður árlegur viðburður í framtíðinni. Páll Önundars- son lét sig að sjálfsögðu ekki vanta í veisluna og tók þar meðfylgjandi myndir. Fleiri myndir munu birtast í svip- myndum á bb.is í vikunni. 21.PM5 12.4.2017, 10:1113

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.