Bæjarins besta - 26.05.2004, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 15
> Stöð 2: 29. maí kl. 21:50
Smókingurinn eða Tuxedo, er fyrsta
flokks hasargrínmynd með Jackie
Chan í aðalhlutverki. Hún segir frá
Jimmy Tong sem er bílstjóri hjá auð-
manninum Clark Devlin. Í einni
sendiferðinni er Jimmy sendur til að
ná í smóking Clarks en stelst í leið-
inni til að máta fatnaðinn. Þetta eru
engin venjulega föt því fullklæddur
færi Jimmy ofurkraft.
Bílstjórinn Jackie Chan
Sælkeri vikunnar
er Una Einarsdóttir í Bolungarvík
Quiche með
ýmsum
fyllingum
skrifa.com
Upplýsingavefur
gervihnattafólksins
Afruglarar ·
kort · brennarar og
allt annað til að
fullnýta búnaðinn.
Símar 893 5804 og
482 3929 alla virka
daga frá kl. 13-23
Miðill á Ísafirði
Valgarður Einarsson miðill verður á Ísa-
firði frá 27. maí til 1. júní.
Tímapantanir í síma 456 4245.
Vestfirðingar!
Athugið! Frá og með 1. júní flytur dósa-
móttakan að Aðalstræti 18 á Ísafirði (þar
sem pósthúsið var staðsett).
Opnunartími verður sá sami og verið hef-
ur, alla virka daga frá kl. 13-16.
Starfsfólk.
Hjartalæknir
Davíð Arnar sérfræðingur í hjartasjúkdóm-
um verður með móttöku á Ísafirði dagana
1.-3. júní.
Tímapantanir eru í síma 450 4500 á milli
kl. 08:00 og 16:00 alla virka daga.
Börn úr 7. bekk Grunnskólans
á Ísafirði kynntu sér golfíþróttina
á Tungudalsvelli á föstudag. Það
var glaðlegur hópur sem var
saman kominn á vellinum til að
læra um golf og njóta góða
veðursins. Gylfi Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbs Ísa-
fjarðar var hæstánægður með
heimsóknina og sagði það aldrei
of snemmt að kynna sér golfið.
Farið er í útivistarferð á hverju
vori í Grunnskólanum á Ísafirði
og að þessu sinni ákvað 7.
bekkur að heimsækja Tungu-
dalsvöll og fræðast um golf-
íþróttina í leiðinni.
– thelma@bb.is
Grunnskóla-
krakkar í golfi
7. bekkur Grunnskólans á Ísafirði fyrir framan golfskálann í Tungudal.
Kirkjustarf
Flateyrarkirkja:
Fermingarguðsþjónusta á
hvítasunnudag kl. 13:00.
Fermd verður Jónína Rut
Matthíasdóttir, Drafnargötu
6, Flateyri.
Holtskirkja:
Fermingarguðsþjónusta á
hvítasunnudag kl. 15:00.
Fermdir verða Borgar
Björgvinsson, Innri-
Hjarðardal og Eyvindur Atli
Ásvaldsson, Tröð.
Brautskráning
Brautskráning nemenda frá Menntaskól-
anum á Ísafirði verður í Ísafjarðarkirkju,
laugardaginn 29. maí kl. 13:00.
Allir vinir og velunnarar skólans eru vel-
komnir.
Skólameistari.
Krabbameinsfélagið
Sigurvon:
Síðasta samverustund
fyrir sumarfrí verður hald-
in í Safnaðarheimili Ísa-
fjarðarkirkju miðvikudag-
inn 26. maí kl. 21:00.
Gestur kvöldsins er sr.
Magnús Erlingsson. Kaffi
og kökur á boðstólum. Allir
velkomnir!
Sælkeri vikunnar að þessu
sinni býður lesendum upp á
uppskriftir að quiche eða
bökum sem hún útfærir með
tvennskonar fyllingum þó
grunnuppskriftin sé sú sama
í báðum tilvikum. Una segir
bökurnar tilvaldan hádegis-
mat í sumar og hvetur lesend-
ur til að láta hugmyndaflugið
ráða ferðinni við gerð þeirra
og jafnvel hvað sé til í ís-
skápnum. Smjördeigið kaup-
ir hún frosið og segir þurfa
tæplega þrjár plötur á stór
hringlótt mót. Þá er boðið
upp á ítalska hálfmána en
báða réttina ber Una fram
með fersku salati.
Fletjið smjördeigið út
leggið yfir stór hringlótt mót
og jafnið upp að brúnum.
Skerið umfram deig af með-
fram brúninni og stingið í
deigið með gaffli.
Fylling I
1 rauðlaukur
3-4 sveppir, eftir stærð
2-3 hvítlauksrif
120 g beikon
Skerið rauðlauk , beikon
og sveppi smátt, pressið hvít-
lauk og mýkið á pönnu með
smá olíu. Hellið síðan yfir
deigið í forminu.
Fylling II
ferskt spínat
soðnar kartöflur
shallot- eða rauðlaukur
hvítlaukur
Skerið stilkana af spínat-
inu, mýkið á pönnu (ekki
steikja) og hellið yfir deigið.
Skerið kartöflurnar í þunnar
sneiðar og raðið yfir spínatið.
Fínsaxið laukinn og dreifið
yfir allt saman.
rifin ostur
3 egg
2 dl matreiðslurjómi
Stráið rifnum osti yfir fyll-
inguna. Þeytið eggin og mat-
reiðslurjómann saman og
kryddið eftir smekk, t.d. með
salti pipar og graslauk. Hellið
eggjablöndunni út í mótið og
bakið í um 30 mínútur við
180°C – 200°C.
Gott er að láta bökurnar
standa aðeins áður en þær eru
bornar fram.
Ítalskir hálfmánar
Þessir eru mjög góðir og
tiltölulega fljótlegir, hér er
hugmynd að fyllingu sem sló
í gegn hjá mér, en auðvitað
má nota hvað sem er.
pitsudeig og pitsusósa
paprika (hvaða litur sem er)
rauðlaukur
tómatar
mozzarella ostur
skinka
pepperone
rifinn ostur
parmesan ostur
Fletjið deigið út og sker-
ið í hringi, u.þ.b. 20 cm í
þvermál, og smyrjið á
pitsusósu. Skerið hráefnið
smátt niður og hrærið sam-
an í skál.
Setjið fyllingu á helm-
ing hringsins en þó ekki
alveg að brún, brjótið
hringinn í tvennt og lokið
vel. Stingið í lokið með
gaffli og penslið með olíu.
Bakið við 180°C við 20-
25 mínútur.
Ferskt salat
Mér finnst alltaf smekk-
legast að bera ferskt salat
fram á fati, það nýtur sín
betur þannig en í skál.
Rífið salat niður, skerið
rauða papriku, rauðlauk og
avocado í teninga og raðið
á fat.
Bætið við fetaosti. Úr
olíunni af fetaostinum er
búin til dressing með því
að bæta balsamic ediki út í
krukkuna og hrista vel
saman.
Ég skora á Sóley Sæ-
varsdóttur í Bolungarvík
að færa okkur eitthvað gott
í næstu viku.
Púttvöllur
á Torfnesi
Íþrótta- og æskulýðsnefnd
Ísafjarðarbæjar leitar leiða til
að fjármagna uppbyggingu
púttvallar á Torfnesi. Þar sem
nefndin ræður ekki yfir fjár-
veitingu til slíkra fram-
kvæmda hefur verið leitað
tilstyrks ýmissa aðila. Á
fundi nefndarinnar fyrir stuttu
voru lögð fram gögn vegna
undirbúnings við uppsetningu
vallarins. Björn Helgason,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Ísafjarðarbæjar, segir margar
fyrirspurnir hafa borist um
framkvæmdir við púttvöllinn
„Margir munu koma til með
að nota völlinn og að auki
verður hann bæjarprýði“,
segir Björn. Kostnaðaráætlun
gerir ráð fyrir að heildar-
kostnaður verði 3.802.589 kr.
eða 2.332 kr. á fermetrann.
Hugmyndir eru um að Ísa-
fjarðarbær niðurgreiði efni og
tækjavinnslukostnað og
munu svör um það fást á
næstu dögum.
Lögreglan á Ísafirði stöðvaði
tvo ökumenn grunaða um
ölvunarakstur í vikunni sem
leið. Annar þeirra hafði áður
verið sviptur ökuleyfi fyrir
samskonar brot og var rétt-
indalaus þegar hann var
stöðvaður. Þá hafði lögreglan
afskipti af nokkrum öku-
mönnum vegna ýmissa
umferðarlagabrota.
Stútar
undir stýri
21.PM5 12.4.2017, 10:1115