Bæjarins besta - 03.11.2004, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 200412
STAKKUR SKRIFAR
Of mörg og smá sveitarfélög
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Smáauglýsingar
Til sölu eru lítið notuð Power
King+ vetrardekk, P235/70
R16, á góðu verði. Upplýsingar
í síma 892 5789.
Til sölu er vagga með himnasæng,
dýnu og sængurveri. Einnig Graco
bílstóll með standi í bílinn og
Graco kerra. Upplýsingar í síma
456 5789.
Til sölu er húseignin Hafraholt
10 sem er 144m² endaraðhús
auk innbyggðs bílskúrs. Upplýs-
ingar í síma 456 4681.
Íbúð til sölu: Þriggja herbergja
íbúð til sölu, engin útborgun,
bara taka við láni hjá íbúðalána-
sjóði. Uppl. í síma 8469906.
Atvinna. Okkur bráðvantar dag-
mömmur í Bolungarvík. Fram-
tíðarstarf fyrir 1 – 2 manneskjur.
Ágætar tekjur. Mögul. að útvega
húsnæði fyrir starfsemina. Uppl.
í 456 7292 og 456 7305. For-
eldrar ungra barna í Bolungarvík.
Til sölu þrjú 31” nagladekk.
Tilboð óskast. Uppl. í síma 846
0793.
Til sölu er Skidoo MXZ vélsleði
árg. ’98, ekinn 3þús. mílur. Verð
300.000 kr. Uppl. í síma 846
0793.
Erum að flytja frá Danmörku og
óskum eftir einbýli eða íbúð með
sér inngangi á leigu á Ísafirði frá
áramótum eða fyrr. Uppl. í síma
0045 7560 1214.
Halló Ísfirðingar - gamlir og nýir
LL félagar! Samveru - rabb og
starfsfundir verða framvegis í
Edinborgarhúsinu annað hvert
fimmtud.kv. Byrjum annað kvöld
4. nóv. kl. 8. ALLIR VEL-
KOMNIR — Heitt á könn-unni.
Við getum öll haft áhrif! Stjórnin
Til sölu Subary Impreza 4x4 árg.
'97 lítið ekinn og góður bíll.
Sumar- og vetrardekk fylgja.
Uppl. í síma 897 6707
Til sölu er Subaru Forrester
nýskráður í des. '97, ekinn
86.000km. Bifreiðin er á nagla-
dekkjum og álfelgur með sumar-
dekkjum fylgja, einnig laus
dráttarkúla. Bifreiðin er sérstak-
lega vel með farin og í góðu
ástandi.Uppl. í síma 896 3697.
Til sölu er 2ja herb. íbúð að
Urðarvegi 78. Sér inngangur.
Uppl. í 456 3928 og 456 4323
Kökubasar verður haldinn í
Neista föstud. 5. nóv til styrktar
3. bekk MÍ. Kaffisala kl. 3.
Til sölu eða leigu 792 fm hesthús
að Kirkjubóli 3 í Engidal. Nokkrir
lausir básar. Uppl. í síma 897
4173 eða 892 0660.
Tökum að okkur ýmis verk fyrir
fyrirtæki og einstaklinga gegn
lágri greiðslu, t.d. blaðaburður
o.fl. 3.bekkur MÍ. Auður 865
7239 og Tinna 868 3120.
Til leigu 107 fm íbúð. Uppl. í
síma 456 4244 eða 892 7911.
Verkfall grunnskólakennara hefur dregið athyglina að því að núverandi skipan
sveitarstjórnarmála er úr öllum takti við nútímann og þær aðferðir sem beitt er við
stjórnun, bæði fyrirtækja og opinberra stofnana. Mikil tregða virðist þó ríkja þegar
kemur að hugmyndum þess efnis að stokka upp, sem löngu er tímabært. Í Danmörku,
okkar gamla konungsríki, er nú stefnt að fækkun sveitarfélaga í 35 með lagasetningu.
Þau munu reyndar vera heldur fleiri nú en á á Íslandi. Hér eru þau rúmlega 100 eftir
síðustu sameiningu eystra. Íbúar Íslands eru ríflega 290 þúsund, en Danmerkur 6
milljónir eða þar um bil. Allir hljóta að sjá að þar er mikill munur á. Allt íslenska
ríkið hefur á að skipa ríflega meðaltals íbúafjölda sveitarfélga í Danmörku að breyt-
ingu lokinni. Það er löngu orðið tímabært að breyta þessu ástandi, sem kostar of
mikið fé í stjórnsýslu, sem ýmist er gagnslaus að stórum hluta eða ekki skilvirk svo
neinu nemi.
Mörgum kann að finnast alhæft sé um sveitarstjórnarstigið. Það gæti verið en
sannleikurinn hrópar samt á alla sem kynnt hafa sér nútíma stjórnunarhætti. Lítil
sveitarfélög með fáa íbúa halda uppi skrifstofu, sem kostar sitt en hefur eðli máls
samkvæmt ekki tök á koma við sérhæfingu sem er nauðsynleg í flókinni tilveru nú-
tímafólks. Í hinni að mörgu leyti steingeldu umræðu um kennaraverkfallið, sem
alltaf hefur farið út á aðrar brautir en að ræða verkfallið sjálft og hvers vegna kenn-
arar í nútímasamfélagi, sem stærir sig af menntun í hæsta flokki, hvað svo sem það
þýðir í raun, fóru í verkfall, draga kennarar athyglina frá sjálfum sér að samskiptum
ríkis og sveitarfélaga. Einhverjum hefði þá fundist eðlilegt að þessi vel upplýsti
hópur íslensks þjóðfélags myndi þá víkja umræðunni að því meini sem þeir velta
á tungunni en segja aldrei upphátt. Það mein er fólgið í ólíkum sveitarfélögum, sem
búa við mismunandi aðstæður og eru sum alltof fámenn. Hvað eiga Grímsey og
Reykjavík sameiginlegt? Að vera sveitarfélög, en lítið meira. Annað er með yfir
100 þúsund íbúa, nánar til tekið 113 þúsund, en hitt með nálægt 100 íbúa og er við
heimskautsbaug og býr við tiltölulega erfiðar samgöngur, sigla þarf eða fljúga. Í
Reykjavík er allt til alls Annað er uppi á teningnum í Grímsey.
Nú er rætt um sameiningu sveitarfélaga. Hún er bráðnauðsynleg, einkum lands-
byggðinni ætli menn sér að hún lifi af. Akureyri og Eyjafjörður er í raun eina svæð-
ið utan suðvesturhornsins sem á sér lífsvon. Þar eru íbúar nægilega margir til að
mynda byggðarkjarna. Samt þarf markvissar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar til þess
að ýta undir þróun byggðarinnar. Það kostar sitt, en flestir telja fórnarkostnaðinn
þess virði. Samt þrást íbúar í Eyjafirði við að viðurkenna þessa forgjöf og sameina
sveitarfélögin við fjörðinn. Kannski er þar þörf lagasetningar. Eru stjórnvöld ef til
vill á villigötum með því að leggja tillögur undir íbúa um sameiningu? Íslendingar
verða að horfast í augu við það að sú hreppaskipan sem gilti um aldir þjónar ekki
íbúum landsins í dag. Von Austfirðinga liggur í stóriðjunni, en þar eru sveitarfélög
að sameinast. Annars staðar nota menn bolvísku aðferðina og segja við getum vel
verið sjálfstæðir ef ríkið borgar okkur meira. Aðrir eiga að borga. Það vantar frum-
kvæði heimamanna að sameiningu ella verður Alþingi að taka af skarið og nota
dönsku leiðina. Þá væri unnt að ná fram hagræðingu í skólahaldi og betri launum.
BT
Kúbukvöld í Edinborgarhúsinu tókst með miklum ágætum
Maður kom í manns stað
Kúbukvöld var haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á laugardag. Matur, músík og dans
voru notuð til að skapa kúbverska stemmningu og tókst vel til, að sögn Margrétar
Gunnarsdóttur hjá Menningarmiðstöðinni Edinborg.
„Þær Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona og Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari komust
að vísu ekki þar sem flugvél þeirra þurfti að snúa við vegna veðurs. Jón Páll Bjarnason og
Vilberg Vilbergsson komu í þeirra stað og þó þeir hafi engan tíma fengið til að æfa, stóðu
þeir sig eins og hetjur“, segir Margrét.
Aðrir tónlistarmenn sem komu fram um kvöldið voru trymbillinn Matthías Hemstock og
bassaleikarinn Tómas R. Einarsson, en sá síðarnefndi þykir fróður um sögu Kúbu og
miðlaði hann þekkingu sinni til viðstaddra. Þá eldaði Ibis Cutino ljúffenga rétti frá
heimalandi sínu.
Fullt hús var í Edinborg og komust færri að en vildu. „Við verðum með svona þjóðakvöld
á hverju ári. Næst verður Pólland tekið fyrir, en þá verðum við í stóra salnum á neðri
hæðinni“, segir Margrét Gunnarsdóttir.
Meðfylgjandi myndir tók Þorsteinn J. Tómasson. halfdan@bb.is
44.PM5 12.4.2017, 10:4612