Bæjarins besta - 03.11.2004, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 200414
> RÚV: 6. nóvember kl. 22:30
Ódrepandi (Unbreakable)
> Stöð 2: 6. nóvember kl. 23:20
Fyrst kvennadeildin í
hafnarbolta var stofnuð
árið 1943 og þótti
mörgum aðhlátursefni.
Stelpurnar unnu þó á og
sýndu og sönnuðu að
þær voru engu síðri en
karlarnir. Aðalhlutverk: Madonna, Tom Hanks.
Leikstjóri: Penny Marshall.
> Skjár 1: 5. nóvember kl. 21:45
Dramatísk kvikmynd um
nýfráskilinn karlmann sem
kynnist konu sem opnar augu
hans fyrir umheiminum. En
þegar fyrrverandi eiginkonan
vill gera aðra tilraun með
hjónabandið stendur hann
frammi fyrir erfiðri ákvörðun. Með aðalhlutverk fara
William Hurt, Kathleen Turner og Geena Davis sem hlaut
óskarsverðlun fyrir hlutverk sitt í myndinni
Accidental Tourist
Helgarveðrið
Horfur á fimmtudag:
Norðvestan 8-15 m/s
norðaustanlands, en
annars hægari breytileg
átt. Él um landið norðan-
vert, en annars úrkomu-
lítið. Frostlaust sunnan-
og vestanlands, en
annars 0 til 5 stiga frost.
Horfur á föstudag:
Hvöss suðaustanátt og
rigning vestantil, en mun
hægari og yfirleitt þurrt
austantil. Hlýnandi veður.
Horfur á laugardag
og sunnudag:
Stíf vestlæg átt og
rigning eða skúrir, en
yfirleitt bjartviðri á
austurhluta landsins.
Hiti 3 til 10 stig.
Spurningin
Netspurningin er birt vikulega
á bb.is og þar geta lesendur
látið skoðun sína í ljós. Aðeins
er tekið við einu svari frá hverri
tölvu. Niðurstöðurnar eru
síðan birtar hér.
Hvernig telur þú að
bensínverð þróist á
Ísafirði með innkomu
Atlantsolíu á
markaðinn?
Alls svöruðu 666.
Það lækkar
sögðu 557 eða 84%
Það hækkar
sögðu 35 eða 5%
Stendur í stað sögðu
74 eða 11%
Kirkjustarf
Ísafjarðarkirkja:
Messa 7. nóvember kl.
11:00. Kirkjuskóli á sama
tíma. Sóknarprestur.
Samkeppni í eldsneytissölu
Bensínstöð Orkunnar opnuð í Súðavík
Bensínorkan ehf. mun að öllum líkindum opna
bensínstöð undir nafni Orkunnar í Súðavík í dag.
Framkvæmdastjóri félagsins segir það á leið til
Ísafjarðar en lengra hafi menn ekki komist í þessum
áfanga. Hann segir opnunina svar við þeirri ákvörðun
bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar að veita félaginu ekki lóð
á Ísafirði.
Bensínorkan ehf. hefur tekið yfir rekstur bensín-
stöðvar Skeljungs í Súðavík og hyggst opna þar
bensínstöð undir merki Orkunnar á næstu dögum.
Gunnar Skaptason framkvæmdastjóri Bensínorkunnar
ehf. segir það hafa verið ætlun félagsins að koma með
sinn rekstur vestur.
„Eins og allir vita sóttum við um lóð á Ísafirði en
fengum ekki. Við vildum ekki gefast upp og gripum því
til þessa ráðs. Með því að opna í Súðavík viljum við
með táknrænum hætti segja neytendum að við erum á
leið vestur og munum á endanum opna stöð á Ísafirði
þó að það verði ekki að þessu sinni. Við gefumst ekki
upp í því að bjóða fólki ódýrt bensín þrátt fyrir að
bæjarfulltrúar hafi lagt stein í götu okkar.“
Aðspurður vill Gunnar ekki gefa upp væntanlegt
bensínverð. „Nú er það samkeppnin sem gildir og því
vil ég ekki gefa neitt upp um hugsanlegt verð en ég
lofa því að neytendur verða ekki vonsviknir með
verðið. Við höfum ávallt verið lægstir og verðum það
áfram.“
Í síðustu viku lýsti Gunnar yfir mikilli óánægju með
afgreiðslu bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar á lóðaumsókn
fyrirtækisins. Aðspurður hvort í opnun stöðvarinnar í
Súðavík felist ákveðin mótmæli við þeirri afgreiðslu
segir Gunnar svo vera. „Eins og ég sagði áðan þá erum
við á leið vestur en lengra komumst við ekki í þessum
áfanga. Við látum hvorki stjórnmálamenn né hin
olíufélögin stöðva okkur í því að bjóða neytendum lágt
bensínverð. Því veit ég að neytendur munu taka okkur
vel þrátt fyrir að fyrst um sinn þurfi menn að taka á sig
krók til þess að tryggja sér lægra verð.“ – hj@bb.is Bensínstöðin í Súðavík.
nöfn umsækjenda upp líkt
og þegar um opinber
störf er að ræða. Hann
segir að nú sé verið að
skoða og meta umsóknir
og málið verði tekið fyrir í
stjórn félagsins um eða
eftir helgi.
Fasteignir Ísafjarðar-
bæjar ehf. er fyrirtæki að
fullu í eigu Ísafjarðarbæjar
og segir Gísli Jón að sú
staðreynd breyti engu í
málinu. Félagið muni
kjölfarið. Starfið var því
næst auglýst að nýju. Í
framhaldinu fór fram
rannsókn á ráðningar-
ferlinu hjá Ísafjarðarbæ.
Leiddi sú rannsókn í ljós
að margt fór úrskeiðis í
ráðningarferlinu. Í
framhaldinu voru settar
reglur um ráðningar
starfsmanna bæjarins.
– hj@bb.is
halda trúnað við umsækj-
endur nema þeir kjósi
sjálfir annað.
Mannaráðningar hjá
Ísafjarðarbæ voru mikið í
fréttum fyrr á þessu ári í
kjölfar ráðningar í stöðu
gjaldkera á skrifstofum
bæjarins. Við umfjöllun
fjölmiðla kom í ljós að sá
sem til starfans var ráðinn
hafði aldrei unnið á
skrifstofu og dró hann
umsókn sína til baka í
Eins og komið hefur
fram í fréttum sóttu nítján
manns um umsýslu- og
skrifstofustarf hjá Fast-
eignum Ísafjarðarbæjar
ehf. en umsóknarfrestur
rann út þann 20. október.
Gísli Jón Hjaltason fram-
kvæmdastjóri félagsins
hefur synjað beiðni bb.is
um lista yfir nöfn umsækj-
enda. Hann segir að þar
sem um hlutafélag sé að
ræða sé ekki skylt að gefa
Nöfn umsækjenda
fást ekki opinberuð
Starfsumsóknir hjá Fasteignum Ísafjarðarbæjar
Atvinna
Starfskraftur óskast í Krílið Sindragötu 6.
Vinnutími frá kl. 12-17 alla virka daga. Ekki
yngri en 20 ára. Þarf að hafa reynslu af af-
greiðslustörfum.
Upplýsingar gefur Margrét í símum 456
3556 og 456 3963.
Píanóstillingar
Er væntanlegur vestur á næstu dögum til
að stilla píanó.
Davíð S. Ólafsson, sími: 893 7181 eða
netfang: dso@simnet.is
Ríkiskaup hafa samið við
Ágúst og Flosa ehf. um
breytingar á einni álmu
heimavistar Menntaskólans
á Ísafirði á grundvelli tilboðs
fyrirtækisins í verkið að upp-
hæð rúmar 16,2 milljónir
króna.
Álman sem um ræðir er
um 270 fermetrar að stærð.
Breyta skal 12 nemenda-
herbergjum og sameigin-
legum snyrtingum í 10 her-
bergi með snyrtingu fyrir
hvert þeirra. Þessum breyt-
ingum fylgja rif, brottnám
og sögun veggja, uppsetn-
ing nýrra gipsplötuveggja
og hurða auk dúklagnar
veggja og gólfa, málun
veggja, lofta og glugga og
breytingar vatns-, frárennsl-
is-, hita-, og loftræsislagna,
ásamt raforkuvirki.
– hj@bb.is
Breytingar á
heimavist MÍ
Bandarísk spennumynd frá
2000 um mann sem lifir af
lestarslys og kemst í framhaldi
af því að furðulegum
staðreyndum um sjálfan sig.
Leikstjóri er M. Night
Shyamalan og meðal leikenda
eru Bruce Willis, Samuel L. Jackson og Robin Wright Penn.
Kvikmyndaskoðun telur myndina ekki hæfa fólki yngra en
16 ára.
Í sérflokki (A League of Their Own)
44.PM5 12.4.2017, 10:4614