Bæjarins besta - 03.11.2004, Qupperneq 16
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
www.bb.is – daglegar fréttir á netinu
Maður handtekinn þegar hann vitjaði 200 gramma af hassi
Interpol aðstoðar við
rannsókn málsins
Flateyri. Í sendingunni, sem
kom frá Póllandi, voru um 200
grömm af hassi.
Það var við hefðbundna
Seinni part miðvikudags í
síðustu viku handtók lögreglan
á Ísafirði mann á þrítugsaldri
sem vitjaði póstsendingar á
fíkniefnaleit á Póststofunni í
Reykjavík sem grunsemdir
vöknuðu um að umrædd póst-
sending innihéldi vímuefni.
Sendingunni var fylgt eftir og
þegar maðurinn vitjaði hennar
var hann handtekinn.
Lögreglan fór fram á það
við Héraðsdóm Vestfjarða að
maðurinn yrði úrskurðaður í
gæsluvarðhald. Á fimmtudag
var orðið við þeim kröfum og
kveðinn upp gæsluvarðhalds-
úrskurður yfir manninum til
klukkan 16 á mánudag. Ekki
þótti þó ástæða til að hafa hann
í haldi lengur en til sunnudags
og var honum þá sleppt. Eng-
inn annar hefur verið handtek-
inn eða yfirheyrður af lögregl-
unni á Ísafirði vegna málsins.
Þær upplýsingar fengust hjá
lögreglunni að maðurinn sé
grunaður um að hafa ætlað að
dreifa efnunum. Þar sem send-
ingin kom að utan er Interpol
komin í málið og aðstoðar
lögregluna á Ísafirði við rann-
sókn þess.
– halfdan@bb.is
Lögreglustöðin á Ísafirði.
Kristinn H. Gunnarsson útilokaður frá setu í fastanefndum
Átta Framsóknar-
félög mótmæla
Kristinn H. Gunnarsson.
verið í góðu sambandi við sína
kjósendur og er illt til þess að
vita að hann sé látin gjalda
svo harkalega fyrir sín sjónar-
mið, sem fundurinn telur að
eigi fyllilega rétt á sér innan
Framsóknarflokksins. Lítur
félagið svo á að með því að
útiloka hann frá nefndarstörf-
um þingsins og setja inn
óreynda menn í staðinn, sé
þungt vegið að byggðamálum
NV-kjördæmis og landsins
alls. Er því ákvörðun þing-
flokksins með öllu óskiljanleg
félagsmönnum og krefjast þeir
tafarlausra skýringa. Fram-
sóknarfélag Kaldrananes-
hrepps lýsir hér með yfir full-
um stuðningi við Kristin H.
Gunnarsson þingmann NV-
kjördæmis.“
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Barðastrandarsýslu var
fyrstur til að lýsa yfir stuðningi
við Kristin H. og skoraði jafn-
framt á þingflokkinn að endur-
skoða kjör í nefndir og tryggja
þannig áhrif allra þingmanna
flokksins og sem jöfnust áhrif
kjördæmanna.
„Með þeirri ákvörðun sinni
að útiloka annan þingmann
Norðvesturkjördæmis frá setu
í nefndum Alþingis hefur þing-
flokkurinn vegið að lýðræði í
flokknum og skert áhrif og
vægi flokksmanna og kjós-
enda. Aðalfundurinn lýsir yfir
fullum stuðningi við Kristin
H. Gunnarsson sem þingmann
kjördæmisins og bendir á að
málflutningur hans hefur verið
í góðu samræmi við almennan
vilja flokksmanna í öllum
meginmálum“, segir í ályktun
fundarins.
– thelma@bb.is
Alþingis. Þau eru; Framsókn-
arfélag Barðastrandarsýslu,
Framsóknarfélag Bolungar-
víkur, Framsóknarfélag
Hólmavíkurhrepps, Fram-
sóknarfélag Dalasýslu, Fram-
sóknarfélag Kaldrananes-
hrepps, Framsóknarfélag
Árneshrepps, Framsóknarfé-
lag Stykkishólms og Fram-
sóknarfélag Ísafjarðar.
Mótmælin komu fram á
aðalfundum félaganna sem
haldnir voru í október og lýstu
þau þar yfir stuðningi við
Kristin H. Þá samþykkti Fram-
sóknarfélag Kaldrananes-
hrepps á aðalfundi sínum sem
haldinn var á Drangsnesi fyrir
tæpum tveimur vikum svo-
hljóðandi ályktun:
„Kristinn H. Gunnarsson
hefur borið hag landsbyggðar-
innar mjög fyrir brjósti og
Átta Framsóknarfélög hafa
mótmælt þeirri ákvörðun þing-
flokks Framsóknarflokksins
að útiloka Kristin H. Gunnars-
son frá setu í fastanefndum
Nemendafélag MÍ
Fær 68 þúsund
króna að gjöf
Forráðamenn Vinsemdar
og virðingar, félags áhuga-
manna um bætta ballmenn-
ingu á Vestfjörðum, afhentu
á fimmtudag stjórn Nem-
endafélags Menntaskólans á
Ísafirði 68 þúsund krónur að
gjöf. Féð er ágóði af „Trall-
inu“, dansleik sem áhugafé-
lagið hélt í félagsheimilinu á
Suðureyri á laugardag.
„Við uppgjör sáum við
fram á ágóða af skemmtana-
haldinu. Við vildum að féð
yrði nýtt til að stuðla að bættu
menningar- og félagslífi
menntaskólanema í stað þess
að því yrði eytt í óþarfa“,
segir Halldór Gunnar Páls-
son, einn forsvarsmanna
Vinsemdar og virðingar.
Eins og sagt hefur verið
frá kviknaði hugmyndin að
Trallinu eftir að skólaráð
Menntaskólans á Ísafirði
ákvað að það væri ekki í
verkahring Nemendafélags
skólans að skipuleggja al-
mennar skemmtanir.
– halfdan@bb.is
Frá afhendingunni. Frá vinstri: Guðbjörg Stefánía
Hafþórsdóttir forseti, Ásgeir Guðmundsson sprellikall,
Ársæll Níelsson menningarviti og Kristín Ólafsdóttir
gjaldkeri Nemendafélagsins. Þá koma þeir Birgir
Olgeirsson og Halldór Gunnar Pálsson frá Vinsemd og
virðingu. Mynd: Birgir Þór Halldórsson.
Saga fyrrum Súðavíkurhrepps
Stjórn
áhugamanna-
félags skipuð
Hreppsnefnd Súðavíkur-
hrepps hefur skipað Barða
Ingibjartsson, Jón Ragnars-
son og Sigurdís Samúels-
dóttur til setu í stjórn áhuga-
félags um ritun byggða- og
atvinnusögu fyrrum Súða-
víkurhrepps þ.e.a.s. þess
sveitarfélags er síðar sam-
einaðist hreppum í Ísa-
fjarðardjúpi undir sama
nafni. Salbjörg Þorbergs-
dóttir var skipuð til vara.
Hugmynd að stofnun fé-
lagsins kom fram á fundi
hreppsnefndar þann 10.
ágúst í sumar. Félaginu er
ætlað að sjá um ritun sög-
unnar og mun Súðavíkur-
hreppur gera samning við
félagið um stuðning við
verkið.
Að félaginu stendur
einnig félaga Álft- og Seyð-
firðinga vestra. Félagið
hefur tilnefnt Egil Heiðar
Gíslason og Guðrúnu Frið-
riksdóttur til setu í stjórn
hins nýja félags og Sigur-
borgu Kristjánsdóttur til
vara.
Gert er ráð fyrir að gerður
verði samningur við Eirík
Jörundsson sagnfræðing um
ritun sögunnar.
– hj@bb.is
44.PM5 12.4.2017, 10:4616