Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.03.2003, Síða 11

Bæjarins besta - 12.03.2003, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003 11 Hvernig er hægt að lækka flutningskostnaðinn? Því hefur oft verið haldið fram að hækkun flutnings- kostnaðar í landinu stafi af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á skattlagningu hins opinbera. Ný skýrsla sem var unnin fyrir Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra og finna má í heild sinni á vef sam- gönguráðuneytisins, sýnir fram á að þetta er röng fullyrð- ing. Það verður að skýra breyt- ingar á flutningskostnaði á allt annan hátt. Það er mjög mikil- vægt að þetta liggi fyrir. Þess vegna er nauðsynlegt að árétta, að það sem þing- menn Samfylkingar og ýmsir fleiri hafa haldið fram í þessa veru er einfaldlega rangt. Tilraun til skýringa á mikil- vægu og margslungnu máli með því að vísa í breytingar á skattheimtu ríkisins stenst einfaldlega ekki. Það dugar því ekki í þessari umræðu, fremur en öðrum, að veifa heldur röngu tré en öngvu. Þjónustan hefur batnað Það er ljóst mál að þjónusta flutningafyrirtækjanna í heild sinni hefur verið að batna. Stóru flutningafyrirtækin flytja vörur sínar daglega inn á 90 staði á landinu og í sumum tilvikum oftar en einu sinni á dag á hvern stað. Þetta vitum við landsbyggðarfólk. Af er sú tíð fyrir löngu, að menn þurfi að bíða langtímum saman eftir pökkum og send- ingum. Panti menn vöru einn daginn berst hún okkur í flest- um tilvikum hinn næsta. Þetta eru mikla framfarir og hafa meðal annars þær afleiðingar, að birgðahald verslana minnk- ar og fjármagnskostnaður einnig, sem ætti að öllu jöfnu að stuðla að hagstæðara vöru- verði. Flutningskostnaður hefur lækkað Það liggur líka fyrir, að flutningskostnaður hefur lækkað á þeim mörkuðum þar sem mikil samkeppni hefur verið til staðar. Ferskfiskflutn- ingar eru t.d. gott dæmi um þetta. Einnig liggja upplýsing- ar fyrir hvað varðar flutninga fyrir stóru matvörukeðjurnar. Það er eftirtektarvert að í skýrslu samgönguráðherra kemur fram, að flutnings- kostnaður af heildarsölu stóru matvörufyrirtækjanna á Vest- fjörðum og Eyjafjarðarsvæð- inu er innan við 1% af heildar- sölunni. Þetta er mjög at- hyglisvert. Af þessu má sjá að það er í tilviki þeirra ekki flutningskostnaðurinn sem er ráðandi í verðmynduninni. Þetta breytir því hins vegar ekki að víða er flutningskostn- aðurinn mjög íþyngjandi. Minni aðilar njóta ekki sömu kjara og hinar stóru matvöru- keðjur. Um það er hægt að nefna ótal dæmi. Betri vegir – lægri flutningskostnaður En þá er spurningin: Hvað Einar K. Guðfinnsson alþingismaður skrifar „Til lengri tíma litið skipta samgöngubætur mestu máli“ Hvað með endurgreiðslu ? Við eigum líka að skoða leiðir til þess að endurgreiða flutningskostnað með beinum hætti, eins og raunar er bent á í skýrslunni. Þó er nauðsynlegt að halda því til haga, að í Noregi þar sem þessari aðferð er beitt, hefur þetta sjáanlega ekki afgerandi áhrif á flutn- ingskostnaðinn. Í Noregi er ekki veitt nema tæpum 200 milljónum króna til þess arna og því augljóst að það hefur ekki afgerandi áhrif á flutn- ingskostnað fyrirtækja og heimila. Nú er unnið áfram að því að finna leiðir til lækkunar flutn- ingskostnaðar. Stjórnvöld hafa því tekið þessi mál föstum tökum. Þetta er mikið hags- munamál landsbyggðarinnar og því ástæða til þess að fagna því að unnið sé að því að bæta ástand sem er í dag ekki viðunandi. – Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður. Íþróttahátíð á Sólrisu Menntaskólans á Ísafirði (MÍ) var haldin í íþróttahúsinu á Torfnesi á laugardag. Meðal annars kepptu lið nemenda við lið ýmissa íþróttafélaga í bæn- um. Hermann Níelsson, kenn- ari við MÍ, segir að um 160 nemendur hafi tekið þátt í leik- unum sem stóðu frá morgni til kvölds. „Íþróttir hafa hingað til ekki verið fyrirferðarmiklar á Sólrisu. Íþróttahátíðin eykur fjölbreytni hennar og laðar að fleiri beina þátttakendur í dagskránni“, segir Hermann. Auk kappleikjanna við íþrótta- félögin var boðið upp á ýmsar sýningargreinar. Stúlkur úr MÍ sýndu jassballet en þær hafa æft í vetur undir handleiðslu Katarinu Pavlovu og sýnt miklar framfarir. Hnefaleikar og júdó teljast til nýjunga í íþróttaiðkun nemenda skólans og áttust þeir við innbyrðis í greinunum. Engir sigurvegarar voru úrskurðaðir í hnefaleikunum og júdóinu að þessu sinni enda löggiltum dómurum á þeim sviðum ekki til að dreifa. Eins og hér kom fram í síðustu viku mun þetta hafa verið fyrsta hnefaleikakeppni á Ísafirði í 47 ár. Einnig var keppt í þrek- lyftingum og bekkpressu með hámarkslyftu. Gestir hátíðarinnar voru fjórir landsliðsmenn í fimleik- um frá Gerplu í Kópavogi sem sýndu listir sínar og vöktu hrifningu viðstaddra. Her- mann segir að sýning fimleika- Sólrisa 2003: Frá fyrstu opinberu hnefaleikakeppninni á Ísafirði frá 1956. ætlum við að gera? Hvað á að gera? Það sem skiptir auðvitað mestu máli til lengri tíma, er að við eflum og aukum sam- göngubætur. Á þetta lögðum við þingmenn Sjálfstæðis- flokksins og samgönguráð- herra mikla áherslu í umræð- um á Alþingi þegar þessi mál voru þar til umfjöllunar. Þetta er einmitt verið að gera núna, með því mikla átaki sem stendur yfir í vegagerð, til dæmis á Vestfjörðum. Við erum að bæta vegakerfið, stytta flutningaleiðir þar sem það er hægt og bæta þannig samgöngurnar. Þetta dregur úr rekstrarkostnaði flutningsaðil- anna og leiðir því til þess að flutningskostnaður mun lækka. Þetta er gríðarlega mikilvægt atriði. Við vitum að afkoma flutn- ingafyrirtækjanna er ekkert til að hrópa húrra yfir og því nauðsynlegt að hún geti batnað um leið og við bætum að- stæðurnar á vegum landsins. Vegaframkvæmdirnar hafa þess vegna meðal annars þennan tilgang og hann er ekki síst mikilvægur til þess að hafa áhrif á flutningskostnaðinn í landinu. Íþróttahátíð verði fastur liður á Sólrisu Menntaskólans á Ísafirði Keppt var í hnefaleikum í fyrsta sinn á Ísafirði síðan 1956 (badminton) bar Tennis- og badmintonfélag Ísafjarðar sigur af bæði karlkyns og kvenkyns nemendum MÍ. Undir lok hátíðarinnar kepptu nemendur og kennarar í blaki og sigruðu þeir síðar- nefndu með miklum tilþrifum. Lokapunkturinn var boccia- mót þar sem nemendur á starfsbraut sigruðu með glæsi- brag. Hermann Níelsson segir tilgang hátíðarinnar vera þrí- þættan. Í fyrsta lagi að gefa fjölmörgu íþróttaáhugafólki innan skólans tækifæri á að koma fram á Sólrisunni. Í ann- an stað að efla samstöðu skóla- systkinanna og undirbúa lið skólans fyrir keppni við lið annarra skóla. Í þriðja lagi að fólksins hafi dregið að fjölda áhorfenda en markmiðið með með henni hafi í og með verið að vekja athygli og áhuga á fimleikum sem lítið eru stund- aðir á svæðinu, öfugt við það sem var á Ísafirði í gamla daga. Af úrslitum í kappleikjum nemenda við íþróttafélög á svæðinu má nefna, að mennta- skólastúlkur gerðu jafntefli við Boltafélag Ísafjarðar í fótbolta en piltarnir þurftu að lúta í lægra haldi. Í handknattleik karla lagði lið MÍ Hörð að velli en yngri flokkur karla í Herði sigraði kvennalið MÍ. Lið KFÍ hafði betur í viður- eignum sínum bæði við pilta og stúlkur í MÍ þó að mjótt hafi verið á munum í kvenna- leiknum. Í tvímenningi í hniti undirbúa fyrir næstu viður- eignir. Fjöldi ljósmynda frá við- burðum Íþróttahátíðar á Sól- risu 2003 verður settur inn á Ljósmyndavef bb.is í vikunni. koma á keppni við íþrótta- félögin í bænum til að efla keppnisreynslu íþróttamanna. Stefnt sé að því að gera íþrótt- hátíðina að árvissum viðburði á Sólrisuhátíð sem hvetji nem- endur skólans til að æfa sig og Aðalfundur Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf. verður haldinn á Hótel Ísafirði, föstu- daginn 21. mars og hefst hann kl. 16:00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 17. greinsamþykkta félagsins. 2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf skv. 55. grein hlutafélagalaga. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Stjórn Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf. Augnlæknir á Ísafirði Augnlæknir verður með móttöku á Ísafirði dagana 17. – 21. mars. Tímapantanir frá og með 13. mars í síma 450 4500, á milli kl. 8.oo - 16.oo alla virka daga. Félag eldri borgara Félag eldri borgara heldur aðalfund á Hlíf laugardaginn 15. mars kl. 14. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. 10.PM5 18.4.2017, 10:3311

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.