Bæjarins besta - 09.04.2003, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Þróunin á sér
ýmsar myndir
– heimsókn til séra Baldurs Vilhelmssonar, fyrrum prófasts, sem setið hefur Vatns-
fjörð í hartnær hálfa öld
Í sumar eru fjögur ár liðin frá því að séra
Baldur Vilhelmsson í Vatnsfirði við Djúp lét
af embætti prófasts í Ísafjarðarprófasts-
dæmi. Þá hafði hann gegnt því embætti í
rúman áratug en verið prestur í Vatnsfirði
frá sumri 1956. Prófastsstarfinu sleppti hann
lögum samkvæmt á sjötugsafmælinu 22. júlí
1999 en lét af prestsembætti um mánaða-
mótin þar á eftir. Þá hafði hann bollokað í
Vatnsfirði ríflega 43 árin. Eftir það var hann
iðulega kvaddur til að gegna einstökum
prestsverkum hjá gömlum sóknarbörnum
eins og gamlir prestar gera iðulega, svo sem
til að skíra börn. Við heimsækjum séra
Baldur á sunnudegi síðla í mars. Ferðin frá
Ísafirði gengur fremur seint. Vegir eru slæm-
ir þar sem bundnu slitlagi sleppir. Öðru
hverju liggur leiðin um skúrabelti og stund-
um er lemjandi slydda eða snjókoma. Stund-
um er bálhvasst og stundum hægviðri.
Stundum skín sólin glatt á undraveröldina
við Ísafjarðardjúp. Það eru öll veður í Djúpi
þennan dag.
Baldur Vilhelmsson pastor
emeritus er einn heima í
Vatnsfirði þessa dagana. Eig-
inkona hans í bráðum hálfa
öld, Ólafía Salvarsdóttir úr
Reykjafirði handan við nesið,
hafði skroppið suður eins og
hún gerir stundum. Börnin
þeirra eru flest búsett fyrir
sunnan. Sjálfur hefur hann
ekki farið suður að Faxaflóa í
heilt ár, að hann minnir. „Ég
bjarga mér alveg sjálfur þegar
konan er fyrir sunnan. Ég hef
lært af einverunni að sjóða
mér mat. Auk þess býr hún í
haginn fyrir mig áður en hún
fer. Hefur til reiðu tilbúinn
mat sem nægir að hita upp.“
Annars eru þau hjónin ein í
Vatnsfirði. Ekki einu sinni
köttur eða hundur. Búskapur
prófi frá Háskóla Íslands.
Strax eftir guðfræðipróf lá
leiðin vestur að Djúpi. „Ég
kom hér 4. júní 1956 og hafði
tekið vígslu daginn áður. Þeg-
ar ég fór vestur var allt orðið
grænt í görðum fyrir sunnan.
Ég sigldi inn Djúpið með
Fagranesinu. Mér er minnis-
stætt að þá var allmikil snjó-
ræma með Snæfjallaströnd-
inni og jafnvel skaflar á tún-
um. Yfirbragð allt annað en
syðra.“
Aldrei hafði Baldur komið
á Vestfirði áður. Myndin sem
blasti við honum var töfrandi.
„Það var logn og blíða og sól-
skin og Djúpið spegilslétt þeg-
ar við sigldum inn, fuglalíf í
algleymingi á sjó og landi og
selir og allt yndislegt.“
Þegar ungi presturinn vakn-
aði á morgnana í kvistherbergi
í Vatnsfirði fyrsta sumarið sitt
þar heyrði hann ekki gný drátt-
arvéla heldur hvissið þegar
sláttumaðurinn skáraði með
orfi og ljá eins og tíðkast hafði
á þessum stað í þúsund ár.
Vélaöld og þróun eða öfug-
þróun voru ekki gengnar í garð
við Ísafjarðardjúp.
Fyrsta haustið séra Baldurs
í Vatnsfirði kemur skólastjór-
inn í Reykjanesi og biður unga
prestinn að kenna í vetur enda
ekki langt á milli. Þann vetur
var ráðskona í Reykjanesi ung
stúlka úr Reykjafirði milli
er aflagður. Öðru vísi mér áður
brá. Sú var tíðin að Vatns-
fjörður var eitt af auðugustu
höfuðbólum landsins og fjöl-
setinn staður. Í sóknunum við
innanvert Ísafjarðardjúp
stappar nú nærri mannauðn.
Séra Baldur segir þetta vera
framhald af hnignuninni sem
varð norðan Djúps. „Þetta er
víst kallað þróun. Núna nota
menn orðið þróun um alla
skapaða hluti. Líka um hnign-
un. Fólkið norðan Ísafjarðar-
djúps fluttist mikið til Ísafjarð-
ar, Bolungarvíkur eða Hnífs-
dals. Það gerði fólkið hér líka
eða þá að það fluttist suður án
viðkomu í bæjunum og þorp-
unum hér fyrir vestan.“
Allt hefur sinn tíma.
Þetta er það sem sumir kalla
öfugþróun og séra Baldur kall-
ar hnignun en aðrir einfaldlega
þróun.
Allt hefur sinn tíma, líka
þróun, hvort sem hún snýr rétt
eða öfugt.
Þá heyrðist hvissið
frá slættinum
Séra Baldur er Skagfirðing-
ur að uppruna, fæddur á Hofs-
ósi og sleit þar barnsskónum
margþvældu. Gekk mennta-
veginn þegar hann var búinn
að fá nýja skó. Lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á
Akureyri og síðan guðfræði-
Vatnsfjarðar og Reykjaness,
áðurnefnd Ólafía dóttir Salv-
ars bónda Ólafssonar og
Ragnheiðar Hákonardóttur frá
Reykhólum. „Með okkur tók-
ust þennan vetur þau kynni
að segja má að við höfum
trúlofast“, segir séra Baldur
hógværlega.
Og síðan hefur tíminn liðið.
Einsetufólk
í Vatnsfirði
– Hvernig var að láta af
embætti eftir alla þessa ára-
tugi?
„Ég fann dálítið fyrir því.
Auðvitað var orðið lítið að
gera. Fólkinu hafði fækkað
mjög og sumar sóknirnar að
heita má komnar alveg í eyði.
En allt í einu var ég laus við
að sinna neinu. Mörgum kann
að finnast það kostur. Mér
voru það viðbrigði.
Þú ert staddur hér í Vatns-
firði í dag, Hlynur Þór Magn-
ússon úr Mosfellssveitinni, og
í raun er þetta í eyði. Í og með
dveljumst við hjónin hér
vegna íbúðarhússins. Ef ekki
væri kynt hér og haldið við
húsum færi allt í niðurníðslu.
Ég hafði mikið fyrir að byggja
þetta hús eitthvað upp úr 1960
og kann illa við að það grotni
alveg niður.
Já, það fylgir þessu viss
tómleiki. Ekki þar fyrir, ég fæ
ótal símtöl. En veturinn er
langur. Jafnvel þó að elstu
menn muni ekki eins góðan
vetur og þennan. Reyndar
muna elstu menn yfirleitt ekki
nokkurn skapaðan hlut, ef út í
það er farið. Já, veturinn hér
er langur miðað við það sem
áður var. Hér var oftlega áður
fyrr fjöldi fólks um jól og
páska, eftir því sem sóknin
bauð upp á, þó að það hafi nú
orðið minna með árunum. Nú
er ákveðinn tómleiki. Og ekk-
ert við því að gera. Mér fellur
ekki að flytjast alveg strax
suður á malbikið. Líka er viss
breyting að vera hættur bú-
skapnum. Ég var á tímabili
með um 200 fjár í húsum. Ég
hætti alveg með búfé árið eftir
að ég hætti sem prófastur eða
þar um bil.
Það bjargar einsetufólki,
eins og ég get eiginlega kallað
okkur hjónin, því að hér kem-
ur oft enginn dögum saman,
að ég hef gott bókasafn. Ég
hef tekið til í því núna eftir að
ég hætti og les eða hlusta á
diska og kassettur. Mér þykir
gott að hlusta á lestur. Ég held
mig mjög við fornsögurnar
og síðan eru ýmis nýrri verk
til á diskum. Ólafur Jóhann
yngri til dæmis, Laxness og
fleiri af þessum yngri höfund-
um, sem hægt er að kalla svo
ef maður miðar við Snorra
heitinn. Svo hefur maður út-
14.PM5 18.4.2017, 10:528