Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.04.2003, Page 2

Bæjarins besta - 23.04.2003, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is ÚTGÁFAN ISSN 1670 - 021X Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður Sími 456 4560, Fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is Blaðamaður: Kristinn Hermannsson sími 863 1623 kristinn@bb.is Ritstjóri netútgáfu: Hlynur Þór Magnússon sími 892 2240 hlynur@bb.is Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson sími 894 6125, halldor@bb.is Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson Fréttavefur: www.bb.is Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði Umboðsaðilar BB: Eftirtaldir aðilar sjá um dreifingu á blaðinu á þétt- býlisstöðum utan Ísa- fjarðar: Bolungarvík: Sólveig Sigurðardóttir, Hlíðarstræti 3, sími 456 7305. Súðavík: Sólveig Gísladóttir, Arnarflöt 7, sími 456 4106. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðalgötu 20, sími 898 6328. Flateyri: Gunnhildur Brynjólfsdóttir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Anna Signý Magnúsdóttir, Hlíðargötu 14, sími 456 8233. RITSTJÓRNARGREIN „Sannleiknum meta sitt gagn meir“bb.is pú lsi nn fy rir ve sta n Sölustaðir á Ísafirði: Hamraborg, Hafnarstræti 7, sími 456 3166. Flug- barinn, Ísafjarðarflugvelli, sími 456 4772. Bónus, Ljóninu, Skeiði, sími 456 3230. Bókhlaðan, Hafn- arstræti 2, sími 456 3123. Bensínstöðin, Hafnarstræti, sími 456 3574. Samkaup, Hafnarstræti 9-13, sími 456 5460. Krílið, Sindragata 6, sími 456 3556. Lausasöluverð er kr. 250 eintakið m.vsk. Áskriftarverð er kr. 215 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Það er ofmat að ætla að samviskubit Samherjaforstjórans, sem missti það út úr sér að Guggan yrði áfram gul og áfram ÍS og áfram gerð út frá Ísafirði, meðan hann og þáverandi bæjarstjóri á Ísafirði og stjórnarformaður Samherja í einum og sama manninum voru að koma höndum yfir kvóta þessa landsfræga aflaskips, hafi ráðið orðavali hans í Kastljósi Sjónvarpsins miðvikudaginn 9. apríl. Sýnilegt er þó að Vestfirðir bögglast öðru fremur fyrir brjóstinu á blessuðum manninum svo sem eftirfarandi ummæli hans bera með sér: „Það er aftur á móti alltaf verið að grípa til sérstakra ráðstafana hér í sjávarútvegi sem hérna ganga allar út á það eitt að færa veiðiheimildir til Vestfjarða. Þannig að mér finnst þetta vera orðin spurning um Vestfirði annars vegar og restina af land- inu. Menn verða að svara því af hverju er óæskilegt að vinna fisk á Dalvík heldur þurfa að vinna hann á Vestfjörðum og þá helst með erlendu innfluttu vinnuafli.“ Lítilsvirðingunni, drambinu, að ekki sé minnst á fordómana í garð þess erlenda fólks sem sest hefur að á Vestfjörðum, í einu orði sagt lúalegs málflutnings Sam- herjaforstjórans í viðleitni hans til að etja íbúum sjávarbyggða í landinu gegn Vest- firðingum, verður best svarað með orðum Súgfirðingsins Guðna Einarssonar í sama Kastljósþætti og forstjórinn lét sín orð falla: „Við biðjum ekki um neina að- stoð frá einum eða neinum. Við viljum bara fá að vinna þann fisk sem við höfum við bæjardyrnar hjá okkur og mér er alveg sama hvort frystitogarinn kemur frá Hull eða Akureyri.“ Þetta er mergurinn málsins, hvað sem orðavali Samherjaforstjórans og orðheldni frá tíma Gulu-Guggunnar líður. Velkomin sértu Harpa „Kvikar lund af kæti, / kann sér ekki læti, - / lyfta mér á ferð og flug / hin fögru sumarmál“, segir í lok kvæðis Guðmundar Guðmundssonar „skólaskálds“ um komu sumarsins. Þótt Vestfirðingar séu mörgu vanir í veðurfari á sumardaginn fyrsta, þá efast enginn um að sumarið með allri sinni dýrð er í nánd. Bæjarins besta þakkar samfylgdina á vetrinum og sendir landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilegt sumar. s.h. Benedikt Bjarnason lætur af stjórnarmennsku í Sparisjóði Bolungarvíkur eftir 45 ár Góður hagur hjá Sparisjóði Bol- ungarvíkur á 95 ára afmælinu Gestur Kristinsson á Suð- ureyri hefur tekið við stjórn- arformennsku í Sparisjóði Bolungarvíkur af Benedikt Bjarnasyni í Bolungarvík, sem gaf ekki lengur kost á sér í stjórn. Benedikt hafði setið í stjórn frá árinu 1958 eða í 45 ár, þar af formaður stjórnar síðustu átta ár. Á aðalfundi sjóðsins fyrir skömmu kom fram, að hagnaður fyrir reikn- aða skatta nam 14,4 milljón- um króna en nam 10,1 millj- ónum króna að teknu tilliti til reiknaðs tekjuskatts og eign- arskatts. Heildarrekstrartekjur námu 505,4 milljónum króna og heildarrekstrargjöld námu 495,2 milljónum króna að meðtöldum afskriftum. Aðrar rekstrartekjur námu 49,1 milljónum króna. Bókfært eigið fé Spari- sjóðsins í árslok 2002 var 746,3 milljónir króna og hafði aukist á árinu um tæplega 4,2%. Eiginfjárhlutfall sam- kvæmt CAD-reglum var 20,3% en má lægst vera 8% af útreiknuðum áhættugrunni. Í árslok var niðurstaða efna- hagsreiknings liðlega 5.289 milljónir króna. Innlán og verðbréfaútgáfa Sparisjóðsins nam í árslok 3.372 milljónum króna og höfðu dregist saman um 3,3% á árinu. Heildarútlán að með- töldum fullnustueignum námu í árslok 3.057.3 millj- ónum króna og höfðu minnk- að um 10,7% á árinu. Langstærsti útlánaflokkur- inn er til sjávarútvegs eða rúmlega 58,1%. Hlutur ein- staklinga og íbúðalána í heild- arútlánum var 28,1% í árslok. Hlutfall útlána til verslunar, þjónustu- og annarrar atvinnu- starfsemi var 6,0%. Lán til bæjar- og sveitarfélaga voru 4,5%. Sparisjóður Bolungarvíkur er alhliða fjármálafyrirtæki. Hann var stofnaður 15. apríl 1908 og átti því 95 ára afmæli í síðustu viku. Sparisjóðurinn rekur einnig afgreiðslu í Súg- andafirði. Hann sér um af- greiðslu Íslandspósts á báðum þessum stöðum. Undanfarin ár hefur Sparisjóðurinn einnig séð um rekstur Lífeyrissjóðs Bolungarvíkur. Hjá sjóðnum störfuðu 15 manns í árslok. Sparisjóðs- stjóri er Ásgeir Sólbergsson. Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Bolungarvíkur eru 202 og stofnfé er alls 92 milljónir króna. Stjórn Sparisjóðs Bolungar- víkur skipa Finnbogi Jakobs- son, Gestur Kristinsson, stjórnarformaður, Ólafur Þ. Benediktsson, Runólfur Pét- ursson og Örn Jóhannsson. Forsvarsmenn Impru í heimsókn á Ísafirði Kynntu sér starfsemi Póls og 3X-Stáls Berglind Hallgrímsdóttir forstöðu- maður og Björn Gíslason verkefnisstjóri hjá Impru, nýsköpunarmiðstöð á Akur- eyri, heimsóttu í síðustu viku tæknifyrir- tækin Póls og 3X-Stál á Ísafirði og kynntu sér það nýjasta í starfsemi þeirra. Berglind og Björn voru stödd á Ísafirði vegna fundar iðnaðarráðherra og sam- gönguráðherra. Ferðin nýttist vel til fleiri hluta, að sögn Björns, þar sem þau hafi setið fund hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða um sameiginleg verkefni og farið í tvær heimsóknir í fyrirtæki. „Bæði þessi fyrir- tæki hafa verið í samstarfi við Impru og eru líka mjög spennandi. Það er afskap- lega ánægjulegt að sjá svona fyrirtæki blómstra úti á landi“, segir Björn Gísla- son. Impra er miðstöð upplýsinga og leið- sagnar fyrir frumkvöðla og lítil og meðal- stór fyrirtæki á Íslandi en þjónustan er veitt öllum atvinnugreinum. „Okkur finnst um að gera, þegar við erum á ferðinni, að fylgjast með því sem er í gangi í þessum nýsköpunarfyrirtækjum og viðhalda þeim tengslum, þó við hefðum gjarna viljað komast í fleiri heimsóknir“, sagði Björn. Hörður Ingólfsson stjórnarformaður Póls, Björn og Berglind frá Impru og Aðalsteinn Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. Mynd: Þorsteinn J. Tómasson. 16.PM5 18.4.2017, 10:572

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.