Bæjarins besta - 10.07.2002, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002
LEIÐARI
Dragspilið þanið
Umboðs-
aðilar BB
Eftirtaldir einstaklingar sjá um
sölu og dreifingu á BB á þétt-
býlisstöðum utan Ísafjarðar:
Bolungarvík: Nikólína Þor-
valdsdóttir, Hjallastræti 38,
sími 456 7441. Súðavík: Sindri
V. Gunnarsson, Holtagötu 11,
sími 456 4982. Suðureyri:
Deborah Anne Ólafsson, Aðal-
götu 20, sími 891 7738. Flat-
eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt-
ir, Brimnesvegi 12a, sími 456
7752. Þingeyri: Selma Rut
Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími
456 8269.
Frá útgefendum:
Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892
5362, netfang: bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson • Blaðamenn: Haukur Magnússon, sími 695 8158, netfang: haukur@bb.is, Hálfdán Bjarki
Hálfdánsson, sími 863 7655, netfang: blm@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is •
Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti
Bolungarvík
Öllu starfs-
fólki Voice-
Era sagt
upp störfum
framhald af forsíðu.
orðróm sem verið hefur
uppi um að ein megin-
ástæða þeirra tafa sem fyr-
irtækið varð fyrir og urðu
til vandræðanna sem það
upplifir nú hafi verið villa í
forritinu sem tók mikinn
tíma að lagfæra. „Það er
margt sem veldur vand-
ræðum fyrirtækisins, eitt
af því er forsniðsvilla í öðr-
um af tveimur raddgagna-
grunnum sem við unnum
og var tímafrekt að lag-
færa. Þetta er í fyrsta skipti
sem raddþekkibúnaður er
forritaður fyrir íslensku og
þá er viðbúið að vandræði
sem þessi verði,“ sagði
Cameron Porter.
Segja má að frá fimmtudegi til sunnudags hafi Skutulsfjörðurinn ómað fjalla á
milli af harmónikuleik þess mikla fjölda ,,nikkara“ sem lögðu leið sína til Ísafjarðar-
bæjar á áttunda landsmót harmonikuunnenda, sem fram fór með miklum glæsibrag
og var aðstandendum og þátttakendum til mikils sóma.
Ef til vill má orða það svo, að þeir 19 félagar, sem síðla árs 1986 stofn-
uðu Harmonikufélag Vestfjarða, hafi þessa daga á Ísafirði verið að uppskera
eins og til var sáð í byrjun og það gott betur. Félagarnir nítján gerðu sér strax ljóst að
samtök þeirra yrðu ekki langlíf með því einu að þeir þendu dragspil sín sér og sínum
nánustu til ánægju. Þeir yrðu að ná til fjöldans, útbreiða fagnaðarerindið í tónum.
Kennsla í harmonikuleik varð því fljótt baráttumál nítján menninganna, sem nú eru
orðnir 80 að tölu.
Boltinn, sem Harmonikufélagið velti af stað með því m.a. að gefa Tónlistarskóla
Ísafjarðar tvær kennsluharmonikur, laut lögmálum snjóboltans á leið niður hlíðina.
Á þeim árum sem síðan eru liðin hafa tugir nemenda lagt stund á harmonikuleik við
tónlistarskóla hér um slóðir, einkum á Ísafirði og í Bolungarvík.
Engum blöðum er um það að fletta að Harmonikufélag Vestfjarða hefur á eftir-
tektarverðan hátt skráð nafn sitt á spjöld tónlistarsögu Vestfjarða og auðgað menn-
ingarlífið hér vestra. Sem fyrr var að vikið nýtur það nú að verðleikum uppskerunnar
með landsmóti SÍHU.
Auk hinna erlendu gesta, er heiðruðu landsmótsgesti með nærveru sinni, og vöktu
óskipta hrifningu fyrir snilli sína, verður ekki hjá því komist að geta sér-
staka á harmonikusafns Ásgeirs S. Sigurðssonar á Ísafirði og hljómpötusafns
Sigurjóns Samúelssonar, bónda að Hrafnabjörgum í Laugardal, sem eru
einstök, svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Þá hlaut lag Baldur Geirmundssonar
,,Landsmót 2002“, sem frumflutt var við mótssetningu á Silfurtorgi, góðar undirtektir
og mikla hrifningu þess fjölda gesta, sem viðstaddir voru þá skemmtilegu athöfn í
blíðskaparveðri. Framtak þeirra Ásgeirs og Sigurjóns er lofsvert. Full ástæða er til að
staldra nú þegar við og huga að varðveislu safnanna í framtíðinni í samvinnu við þá
félaga.
Landsmót harmonikufélaga setti mikinn svip á bæjarlífið í Ísafjarðarbæ þessa
helgi. Almannarómur er að mótið hafi tekist vel og sé öllum er að stóðu til sóma. Og
ekki spillti veðrið fyrir. Sumarnóttin, sem gestir lokaballsins í íþróttahúsinu á Torf-
nesi gengu út í, lifir áreiðanlega lengi í minningu þess fólks, sem upplifði harmoniku-
helgina í Ísafjarðarbæ. sh.
Súðavík
Þrettán sóttu
um starf
sveitarstjóra
Þrettán umsóknir bárust um
stöðu sveitarstjóra Súðavíkur-
hrepps en umsóknarfrestur
um starfið rann út á mánudag.
Athygli vekur að Ágúst Kr.
Björnsson er meðal umsækj-
enda, en hann sagði upp starfi
sínu sem sveitarstjóri Súða-
víkurhrepps á síðasta ári eftir
að hafa gegnt því um sex ára
skeið.
Meðal annarra umsækjenda
eru eftirmaður hans í sveitar-
stjórastarfinu, Friðgerður
Baldvinsdóttir, grínarinn
Snorri Ásmundsson, sem
leiddi lista Vinstri hægri snú í
borgarstjórnarkosningunum í
Reykjavík í vor og Einar Garð-
ar Hjaltason, sem starfrækti
fiskvinnslu á Ísafirði um ára-
bil. Að sögn Salvars Baldurs-
sonar, oddvita Súðavíkur-
hrepps, má vænta þess að
ákvörðun um hver hlýtur
stöðuna verði tekin um miðjan
mánuðinn.
Aðrir umsækjendur um
starfið eru sem hér segir:
Áróra Jóhannsdóttir, Reykja-
vík, Bergþóra Kristín Grétars-
dóttir, Reykjavík, Böðvar
Jónsson, Kópavogi, Hafsteinn
Sævarsson, Borgarnesi, Jakob
Kristinnsson, Bíldudal, Jón
Kr. Auðbergsson, Bíldudal,
Kristján G. Þorvaldz, Reykja-
vík, Ómar Már Jónsson,
Reykjavík og Vignir Þór Jóns-
son, Reykjavík.
Ísafjörður
Bæjarráð Ísafjarðarbæj-
ar staðfesti á mánudag
ráðningu Jóhönnu Ás-
geirsdóttur, kennara við
Grunnskólann á Ísafirði, í
stöðu aðstoðarskólastjóra
skólans.
Fráfarandi aðstoðar-
skólastjóri, Skarphéðinn
Jónsson, var sem kunnugt
er ráðinn skólastjóri GÍ í
vor í kjölfar uppsagnar
Kristins Breiðfjörð. Á
fundinum staðfesti bæjar-
ráð einnig ráðningu Jónu
Benediktsdóttur, kennara
við GÍ, í starf annars að-
stoðarskólastjóra skólans.
Jóhanna ráðin
Heiðar Ingi Marinósson stóð sig vel á Sundmeistaramóti Íslands
Sigraði í 50 og 100 metra skriðsundi
Ísfirðingurinn Heiðar Ingi
Marinósson sigraði tvöfalt á
Sundmeistaramóti Íslands
sem haldið var í Laugardals-
lauginni í Reykjavík um helg-
ina.
Heiðar Ingi keppti í sex
greinum á mótinu og komst
sex sinnum á verðlaunapall.
Hann sigraði í 50 og 100 metra
skriðsundi, varð annar í 50 og
200 metra baksundi og þriðji
í 50 og 100 metra flugsundi.
„Þetta er glæsilegur árangur
hjá þessum unga strák en hann
er nú Íslandsmeistari í bæði
25 metra laug og 50 metra
laug í þessum greinum“, segir
Ingi Þór Ágústsson, sund-
þjálfari hjá Vestra á Ísafirði.
Mótið um helgina var það
síðasta, í bili a.m.k., sem
Heiðar Ingi tekur þátt í undir
merkjum Vestra, en hann mun
vera á förum til Sundfélags
Hafnarfjarðar í haust. Þar mun
hann æfa undir leiðsögn Brian
Marshall sem þjálfaði Örn
Arnarson. Heiðar Ingi stefnir
að því að ná ólympíulágmörk-
um og komast á leikana í
Aþenu eftir tvö ár. „Allir í
Vestra vilja óska honum vel-
farnaðar á nýjum slóðum með
kærri þökk fyrir allt á liðnum
árum“, segir Ingi Þór.
Flutningur barna milli skólahverfa í Ísafjarðarbæ
Óheimill á næsta skólaári
Útlit er fyrir að flutningur
nemenda á milli skólahverfa í
Ísafjarðarbæ verði ekki sam-
þykktur nema sérstakar
áherslur liggi til grundvallar.
Ályktun þess efnis var sam-
þykkt á fundi fræðslunefndar
á fimmtudag og staðfest af
bæjarráði á mánudag. Á síð-
asta skólaári stunduðu átta
súgfirsk börn nám á Ísafirði,
en nú hafa borist umsóknir
um skólavist 19 Súgfirðinga í
Grunnskólanum á Ísafirði.
Í fundargerð fræðslunefnd-
ar segir meðal annars:
„Ákvörðun þessi telst í
samræmi við stefnu Ísafjarð-
arbæjar að halda úti grunn-
skólum á öllum stöðum fyrir
1.-10. bekk, en slíkur flutn-
ingur sem hér um ræðir er til
þess fallinn að grafa undan
skólahaldi á Suðureyri. Jafn-
framt er forstöðumanni skóla-
og fjölskylduskrifstofu falið
að leita eftir upplýsingum frá
skólastjóra Grunnskólans á
Suðureyri samhliða því að
skoða möguleika á úrlausn
málsins.“
Alls stunda á sjötta tug
barna nám á Suðureyri. Vegna
sumarleyfa náðist ekki í for-
stöðumann skóla- og fjöl-
skylduskrifstofu.
Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði
Söfn verða líklega flutt í
„nýtt“ húsnæði næsta vor
Útlit er fyrir að fram-
kvæmdum við gamla sjúkra-
húsið á Ísafirði verði lokið
um áramót og flutningur
skjala og bóka í húsið hefjist
stuttu síðar.
Framkvæmdir innan dyra
munu vera hafnar að einhverju
leyti, en að sögn Jóhanns Hin-
rikssonar, forstöðumanns
bóka- og skjalasafnsins á Ísa-
firði, verður að öllum líkind-
um gert hlé á þeim yfir mitt
sumarið. „Svo verður aftur
hafist handa síðsumars eða í
haust og framkvæmdum
sennilega lokið um áramót“,
segir Jóhann.
Í húsinu verður skjalasafn,
ljósmyndasafn, listasafn og
síðast en ekki síst, bókasafn.
„Svo verður íbúð á efstu hæð
hússins, en ekki er vitað hve-
nær lokið verður við fram-
kvæmdir á henni. Þá verður
sýningaraðstaða víða í húsinu,
í svokölluðum karlasal og á
göngum og í stigum“, segir
Jóhann Hinriksson.
Líklegt er að núverandi að-
staða safnsins, á efri hæð
Sundhallar Ísafjarðar, verði
nýtt til lausnar á húsnæðis-
vanda Grunnskólans. Gamla sjúkrahúsið á Ísafirði.