Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.07.2002, Side 3

Bæjarins besta - 10.07.2002, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 3 Aðalmót Sjóstangaveiðifélags Ísfirðinga Tæp 19 tonn á land á velheppnuðu móti Aðalmót Sjóstangaveiðifé- lags Ísfirðinga var haldið á föstudag og laugardag. Alls tóku 56 þátt í mótinu, 37 karlar og 19 konur, sem mun hafa verið met hvað varðar fjölda þátttakenda. Leystar voru landfestar í Bolungarvík kl. 06:00 báða dagana og róið að veiðislóðum undir Stigahlíð, Rit, Straumnesi og Kögri. Veður var með eindæmum gott báða dagana, sléttur sjór og hlýtt í veðri. Alls veiddust 12.200 fiskar á mótinu og vógu þeir samtals 18.938 kílógrömm. Uppistaða aflans var þorskur, en að auki veiddust fáeinir ufsar, ýsur, karfar, steinbítar, sandkolar, lúður, marhnútar og rauð- sprettur. Í fyrsta skipti á móti sem þessu veiddist silungur, en Jóhannes Sigurðsson frá Vestmannaeyjum dró hann í höfninni í Bolungarvík. Í einstaklingskeppni karla sigraði Sverrir S. Ólason frá Siglufirði, en hann dró alls 839 kílógrömm úr sjó. Í öðru sæti varð Árni Halldórsson frá Akureyri með 796 kg. og í því þriðja Einar Kristinsson frá Reykjavík með 589 kg. Í einstaklingskeppni kvenna sigraði Akureyringurinn Guð- rún Jóhannesdóttir sem skil- aði 519 kílógrömmum á land. Sigfríður Valdimarsdóttir varð í öðru sæti með 399 kílóa afla og Sigríður Kjartansdóttir frá Ísafirði lenti í þriðja sæti með 386 kg. Í sveitakeppni karla sigraði sveit Árna Halldórssonar frá Akureyri sem veiddi alls 1.945 kíló. Í sveitakeppni kvenna sigraði sveit Sigfríðar Valdimarsdóttur með 1.422 kílóa afla. Aflahæsti skipstjóri mótsins var Ketill Elíasson á Glað, en „hásetar“ hans drógu samtals 2.098 kílógrömm úr Einar Lárusson, þátttakandi í mótinu, með vænan ufsa sem hann dró í dag. sjó. Í öðru sæti varð Eiríkur Þórðarson með 2.022 kg. og í þriðja sæti Skarphéðinn Gíslason með 1.481 kíló. Auk verðlauna fyrir sigur í sveita- og einstaklingskeppn- um voru veitt verðlaun fyrir stærstu veiddu fiska einstakra tegunda, fyrir stærsta fisk mótsins, til aflahæsta heima- mannsins, fyrir flestar veiddar tegundir og mestu meðal- þyngd. Mótið heppnaðist í alla staði hið besta. Skipstjórar og aðstoðarmenn þeirra lögðu sig alla fram að hjálpa veiðimönn- um að taka fiska af krókumog gera að afla. Aflanum landað við Brjótinn í Bolungarvík. Beðið eftir löndun í höfninni í Bolungarvík.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.