Bæjarins besta


Bæjarins besta - 10.07.2002, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 10.07.2002, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 Lærði meira á viku í New York en á síðustu þrem- ur árum í skóla – segir Bolvíkingurinn Haukur Sigurðsson, sem nýlega tók þátt í barnaþingi Sameinuðu þjóðanna Haukur Sigurðsson heitir átján vetra gamall Bolvíkingur sem nýlega gerði víðreist, alla leið til stórborgarinnar Nýju Jórvíkur í Banda- ríkjum Norður-Ameríku. Tilgangur ferðar- innar var að taka fyrir hönd íslenskra ung- menna þátt í barnaþingi Sameinuðu þjóð- anna, sem haldið var til undirbúnings fyrir auka-allsherjarþing SÞ um málefni barna og unglinga sem Haukur sat einnig. Hann dvald- ist í viku í einni af stærstu borgum heims ásamt íslenskri jafnöldru sinni, sem einnig sótti þingið. Og þó að flestir dagarnir hafi farið í stíf fundahöld lét hann það ekki aftra sér frá því að ferðast um borgina, sjá helstu minjarnar og kynnast frændum okkar í vestri ögn betur. Ferðinni frestað vegna hryðjuverkanna Ekki er hægt að segja annað en að hryðjuverkin sem fram- in voru þann 11. september, þegar meintir liðsmenn Al- Queda hreyfingar Sádi-Arab- ans Osama Bin Laden rændu farþegaþotum og flugu þeim á turna World Trade bygging- arinnar, hafi haft áhrif á ferða- lag Hauks. Barnaþinginu sem hann sat var upphaflega ætlað að hefjast þann 14. september, aðeins fjórum dögum eftir að árásin varð, og þurfti því að fresta því um óákveðinn tíma. „Ég var nú ekki farinn að pakka niður ennþá og þakka það íslenska kæruleysinu“, segir Haukur, „Engu að síður var ég undirbúinn að flestu öðru leyti og farinn að hlakka til ferðarinnar, þannig að mér brá kannski öðrum fremur þegar ég frétti hvað hefði gerst í New York. Ég var vantrúaður fyrst þegar ég frétti af þessu, skólafélagarnir sögðu mér að einhver hefði keyrt flugvél á eitthvert háhýsi í New York og ég vissi vart hvort að ég ætti að taka þá alvarlega, enda spéfuglar þar á ferð. Þegar ég kom heim til ömmu í Bolungarvík og kveikti á sjónvarpinu runnu hins vegar á mig tvær grímur. Þarna var allt í rúst. Hryðju- verkin komu mér á óvart, eins og heimsbyggðinni allri, og ég velti lengi fyrir mér hvers kyns mannhatarar hefðu verið þar að verki.“ „Eyðileggingin var yfirþyrmandi“ Fljótlega í kjölfar hryðju- verkanna var hringt í Hauk og hann látinn vita að þinginu, og ferðinni þar með, hefði ver- ið frestað um óákveðinn tíma. „Ég þóttist nú vita að til þess myndi koma, enda fáar þjóðir heims sem hætta á að senda ungviði sitt beint inn í svona skelfilega atburðarás“, segir Haukur. Engu að síður hefur ferðin nú, rúmu hálfu ári síðar, verið farin og Haukur er snú- inn heim til ömmu sinnar og afa í Bolungarvíkinni heill á húfi. „Ég skoðaði rústirnar þegar ég var í New York og eyðilegg- ingin sem blasti við þar var yfirþyrmandi. Þarna var alveg risastórt svæði ekkert nema rústir einar. Nærliggjandi byggingar voru að hruni kom- nar og girtar af og hvar sem augað leit sást ekkert annað en eyðilegging. Þarna hafði fólk komið fyrir ýmsum minn- ismerkjum um horfna ástvini og ég varð verulega snortinn af því að sjá hve margir höfðu þurft að upplifa missi í kjölfar hryðjuverkanna. Þau höfðu greinilega mikil áhrif á þjóð- arsálina og það sást kannski best á gífurlegum fjölda bandarískra fána í borginni. Hvert sem maður fór gat mað- ur fundið fánann eða annars konar tákn um föðurlandsást.“ Málmleitartæki og hefðbundið þukl – Hvernig stóð á því að þú varst valinn til ferðarinnar? „Íris Ósk, stúlkan sem fór með mér á þingið, hafði þegar verið valin til ferðarinnar og það vantaði einn strák með henni þar sem hver þjóð sendi tvo fulltrúa af sitt hvoru kyn- inu. Það fór svo að haft var samband við Gamla Apótek- ið, kaffi- og menningarhús ungs fólks á Vestfjörðum, þar sem ég hef starfað sem kaffi- skenkill undanfarið, og óskað eftir einu stykki vestfirskum dreng. Ég sló til og sótti um að fá að fara og var loks valinn úr hópi þriggja umsækjenda til þess að taka þátt í þinginu.“ Haukur lenti á JFK-flug- velli í New York að kvöldi 4. maí og var ferðalöngunum þá strax ekið áleiðis að Plaza- Fifty hótelinu þar sem þeir gistu vikuna sem þingstörf tóku. Með honum í för var sem áður sagði Íris, sem einn- ig var þátttakandi í barnaþing- inu, auk tveggja barnapía sem höfðu það hlutverk eitt að gæta Hauks og samferðar- konu hans öllum stundum. Hann segir að sér hafi þótt ögn skrýtið að hafa barna- gæslukonu sér við hlið öllum stundum, en að hann hafi skilið tilganginn, enda ekki öllum unglingum treystandi til þess að bjarga sér á eigin spýtur í stórborginni New York. „Þegar ég vaknaði morg- uninn eftir að ég kom til borgarinnar héldum við strax að SÞ-byggingunni á Man- hattan-eyju. Til þess að kom- ast þangað þurftum við að fara í gegnum stranga öryggis- gæslu. Götunni sem bygging- in stendur við var allri lokað á meðan þinginu stóð og til þess að komast inn á hana þurftum við að fara í gegnum vega- tálma og sýna öll skilríki og vegabréf margoft. Ekki tók betra við þegar að bygging- unni sjálfri var komið því að þar voru fleiri öryggishlið sem Haukur á Times Square torginu fræga. þurfti að fara í gegnum. Þegar ég loksins komst inn í SÞ- bygginguna var margbúið að leita á mér ansi gaumgæfilega, bæði með málmleitartæki og hefðbundnu þukli.“ Lærði meira en á þremur árum í skóla Þátttakendur í þinginu gátu valið milli sjö málefna til að ræða um. Þau voru menntun, vernd, heilsa, HIV, þátttaka, mismunun og umhverfið og var skipt í hópa eftir því. Haukur valdi að ræða um menntun þar sem hún er hon- um hjartfólgin og var honum skipað í umræðuhóp ásamt krökkum úr nokkrum löndum Vestur-Evrópu. Í hópnum var þeim ætlað að ræða sín á milli hvað mætti betur fara varðandi menntamál og aðgengi að menntun í heiminum og skila úrbótatillögum. Þær skyldu síðan ræddar af öllum þátttak- endum í fundarsal á síðasta degi þingsins. Ef þær yrðu samþykktar skyldu þær síðan sendar áfram til auka-allsherj- arfundarins um málefni barna og unglinga sem fór fram að barnaþinginu loknu. Var með því verið að veita rödd barna heimsins og skoðunum aukna vigt á þessum vettvangi „full- orðna fólksins“. – Vann auka-allsherjarþing- ið mikið eftir þeim tillögum sem gerðar voru á barnaþing- inu? „Í sannleika sagt er ég ekki alveg viss. Niðurstöður auka- allsherjarþingsins eru komnar á blað en ég hef ekki ennþá fengið þær í hendur. Sjálfsagt hefur eitthvert tillit verið tekið til tillagnanna en ég efast um að þær hafi haft einhver úr- slitaáhrif. Burtséð frá því, þá lærði ég afskaplega mikið á því að taka þátt í þessu þingi, meira en á síðustu þremur árum í skóla.“ Það hafa það ekki allir jafn gott „Af frásögnum barna frá þriðja heiminum varð mér æ betur ljóst hve mikill ójöfnuð- ur ríkir í heiminum og hversu gífurleg misskipting við- gengst þar. Krakkarnir frá Mið-Ameríku töluðu til dæm- is um að þar væri skólahald óreglulegt í meira lagi og að þeir fáu landar þeirra sem menntuðu sig eitthvað af ráði flyttu til Bandaríkjanna þann- ig að það verður sáralítil endurnýjun. Menntamennir- nir flytjast allir á brott með sína þekkingu og því verður engin uppbygging. Á öðrum stöðum fá svo börnin ekki að sækja skóla, heldur þurfa þau að vinna fyrir fjölskyldum sín- um frá unga aldri og enn ann- ars staðar er ekki boðið upp á neitt slíkt. Mér varð öðru betur ljóst hve gífurlega heppin við erum hérna á Íslandi og á Vest- urlöndum og hvað við höfum það ofsalega gott. Ég hef

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.