Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2002, Side 2

Bæjarins besta - 24.07.2002, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 LEIÐARI Gatslitin plata Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan Ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólína Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Linda Rut Ásgeirsdóttir, Arnarflöt 9, sími 586 2192. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Selma Rut Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími 456 8269. Frá útgefendum: Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson • Blaðamenn: Haukur Magnússon, sími 695 8158, netfang: haukur@bb.is, Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655, netfang: blm@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti Hreppsnefnd Súðavíkur- hrepps samþykkti einróma á fundi á föstudag að ganga til samninga við Ómar Má Jóns- son í starf sveitarstjóra. Ómar Már er iðnrekstrarfræðingur að mennt. Hann er fæddur og uppalinn í Súðavík, en hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri vörukynn- ingarfyrirtækisins Fagkynn- ingar ehf. í Reykjavík. Ómar Már var valinn úr hópi þrettán umsækjenda um starfið og er tekinn fram yfir Ágúst Kr. andi sveitarstjóra sem bæði sóttu um starfið. Aðrir umsækjendur um starfið voru eftirtaldir; Snorri Ásmundsson, Reykjavík, Ein- ar Garðar Hjaltason, Akureyri, Áróra Jóhannsdóttir, Reykja- vík, Bergþóra Kristín Grétars- dóttir, Reykjavík, Böðvar Jónsson, Kópavogi, Hafsteinn Sævarsson, Borgarnesi, Jakob Kristinnsson og Jón Kr. Auð- bergsson, Bíldudal og Krist- ján G. Þorvaldz og Vignir Þór Jónsson, Reykjavík. Súðavíkurhreppur Ómar Már Jónsson ráðinn sveitarstjóri Björnsson, fyrrverandi sveit- arstjóra hreppsins, og Frið- gerði Baldvinsdóttur, núver- Ómar Már Jónsson. Grammófónplatan frá árinu 1915, sem bóndinn á Hrafnabjörgum spilaði í nýja safnahúsinu á Ísafirði á harmonikuhátíðinni í byrjun mánaðarins, hljómaði ólíkt betur en gatslitin plata stjórnvalda allra tíma um úttekt á skattsvikum, sem enn einu sinni hef- ur verið sett á fóninn, stjórnvöldum sjálfum til friðþægingar. Söngtextinn er kunnuglegur: Þriggja manna nefnd komin á koppinn, til að gera úttekt á neð- anjarðarhagkerfinu, sem talið er að velti tugum milljarða króna á ári hverju og vanskilum vörsluskatta, eins og það heitir á fínu máli að skila ekki inn- heimtufé til ríkissjóðs. Samtök aldraðra sýndu nýverið fram á að skatthlutfall ellilífeyris hefði hækkað verulega síðasta áratuginn. Stjórnvöld segja á móti að ráðstöfunartekjur hafi hækkað á tímabilinu og því skipti skattahækkunin ekki máli. Auðvitað er þetta yfirlýsing um að lífeyrisþegar hafi ekki haft þörf fyrir alla kaupmáttaraukninguna og því hafi ríkisvaldið séð ástæðu til að höggva af henni með skattahækkun. Þetta eru skilaboðin til þess hluta þjóðarinnar, sem búinn er að skila dagsverkinu og fer ekki fram á annað en að fá að njóta ávaxta áratuga erfiðis og ævikvöldsins með reisn. Búnaðarbankinn fer nú mikinn í að ná yfirtökum á SPRON í skjóli laga, sem þing- heimur hefur greinilega misskilið (eða ekki skilið frekar en kvótalögin á sínum tíma) þá sett voru. Til verksins nýtur bankinn aðstoðar fimm kunnra manna. Fyrir hjálpsemina mun hann, að sögn, ætla að þóknast hverjum og einum þeirra um allt að sjö milljónir. Fjarri lagi er að ofsjónir yfir þessu lítilræði ráði þar um, að á þetta er minnst. Hins vegar er upplagt að hafa hliðsjón af þessu í umfjöllun um ,,skattaréttlætið“, sem blasir við í samfélaginu. Vinna fimm menninganna telst ekki ,,unnin með hörðum höndum“, heldur heitir þetta að ,,láta fjármagnið vinna fyrir sig.“ Á þessu tvennu er 28,54% skattamismunur, hinum hörðu höndum í óhag. Eftirlaunaþeginn, sem átti þess kost að búa í haginn fyrir elliárin með lífeyrissparnaði og galt keisaranum fulla skatta af öllum tekjum sínum, þar með töldu því, sem hann lagði til hliðar til elliáranna, er ekki talinn þess verður að ávöxtun sparn- aðar hans falli undir skilgreininguna að láta fjármagnið vinna fyrir sig, heldur meta stjórnvöld greiðsluna til hans, sem vinnu hinna hörðu handa og tvískatta hana þar með. Kosningar til alþingsins nálgast. Stjórnmálamenn allra flokka verða að átta sig á því, að sá hluti þjóðarinnar, sem sætir þvílíku ranglæti og á sér stað með skattlagningu eftirlauna, er býsna stór. Hristi þessi fjölmenni hópur af sér klafann og sýni hversu voldugur og sterkur hann er, er hætt við að hrikti í innviðum á höfuðbólunum stjórn- málaflokkanna. s.h. Þingeyri Ölvunarakst- ur og ólæti á tjaldstæðinu Lögreglunni á Ísafirði barst á þriðja tímanum í fyrrinótt, tilkynning um að tveir menn sem sætu við drykkju í húsbíl á tjaldstæðinu á Þingeyri, væru að egna hvorn annan til þess að fara á skytterí. Lögregla fór á staðinn og gerði upptæka tvo riffla sem fundust í fórum mannanna, en lét annars iðju þeirra óá- talda. Rúmum tveimur tímum síðar barst lögreglu aftur ábending frá tjaldstæðinu, nú þess efnis að ölvaður ökumað- ur æki þar um á sama húsbíl. Mun maðurinn hafa ekið fram hjá tjöldum á tjaldstæðinu og rakleiðis út af því, en ferð sína endaði hann á steypu- stöpli við íþróttahúsið á Þing- eyri þar sem sat hann fastur og reyndi að losa bifreiðina þegar lögreglu bar að garði í annað sinn. Að sögn lögreglu var mað- urinn mjög ölvaður. Bolungarvík 16.500 tonn- um landað hjá Gná ehf Í gær var landað um 1000 tonnum úr loðnuskipinu Erni í Bolungarvík. Skip eru enn að veiðum fyrir vestan Kol- beinsey, og að sögn Einars Jónatanssonar, framkvæmda- stjóra loðnubræðslunnar Gnár, er veiðin eitthvað farin minnka. „Með þeim afla sem verið er að landa núna höfum við tekið inn 16.500 tonn á þessari vertíð“, segir Einar. Ekki hafa fleiri skip boðað komu sína til Bolungarvíkur enn sem komið er. „Maður fer varlega í að fá afla, því ef við höfum ekki undan er hrá- efnið fljótt að skemmast“, seg- ir Einar Jónatansson. Um þessar mundir eru nemendur á kajaksmíða- námskeiði á vegum Sigl- ingadaga við Ísafjarðardjúp, að leggja lokahönd á báta sína. Alls eru átta nemendur á námskeiðinu og smíða þeir saman fimm báta. Meðal nemenda á nám- skeiðinu er kajakfrömuður- inn Sigurður Hafberg frá Flateyri, en hann segist hafa fulla trú á því að fleyturnar verði fyrirtaks smíði þegar yfir lýkur. Kennarar á nám- skeiðinu koma frá Græn- landi en það eru þeir Aap- anngujuk Jakobsen og Ole Petrussen og nota þeir aðal- lega furu, ask og eik í grind bátanna sem klæddir eru með bóðmullardúk. Formlegur lokadagur námskeiðsins, sem haldið er í tengslum við siglinga- daga á Ísafirði, var á sunnu- dag. Þar sem ekki reyndist unnt að ljúka smíðinni nýttu sumir tækifærið og tóku sér frí frá vinnu á mánudag til að nýta grænlensku kennar- ana enn betur, en þeir fara til síns heima von bráðar. Smíða kajak úr timbri og bóðmull Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) fær tilsögn frá Aapanngujuk Jakobsen við smíðina. Listasumarið í Súðavík fer fram dagana 8.-11. ágúst Fjölbreytt dagskrá í fjóra daga Dagskrá hins árlega Lista- sumars í Súðavík, sem fer fram helgina 8.-11. ágúst, hef- ur nú verið opinberuð og að vanda verður fjöldi forvitni- legra viðburða á dagskrá. Há- tíðin hefst með námskeiði í gerð íkonamynda sem fer fram 7. og 8. ágúst. Þar kenna mægðurnar Sóley Veturliða- dóttir og Sveinfríður Hávarð- ardóttir þessa mætu list. Opin- ber setningarathöfn listasum- arsins fer fram kl. 20 að kvöldi fimmtudagsins 8. ágúst við félagsheimili staðarins. Hin árlega bíósýning í Súðavíkur- bíói hefst stundarfjórðungi síðar, en að þessu sinni verður sýnd íslenska kvikmyndin Regína. Á föstudeginum 9. ágúst ber hæst fjölskylduferð út á Fola- fót sem farin verður með Hornströndum ehf. Þar verða áhugasamir ferjaðir út í Fola- fót, en þaðan munu þeir ganga þriggja klukkustunda leið sem liggur yfir Fót og að Hesti. Þátttakendur verða síðan keyrðir þaðan heim til Súða- víkur. Göngulúnir gestir ættu ekki að láta sér leiðast þá um kvöldið, því kl. 22 hefjast tón- leikar Sextetts Kristjönu Stef- ánsdóttur, jazzsöngkonunnar góðkunnu frá Selfossi, í sal Grunnskóla Súðavíkur. Klukkan 11 að morgni laug- ardagsins 10. ágúst verður gengið um gamla þorpið í Súðavík undir leiðsögn Ragn- ars Þorbergssonar. Ragnar er kunnugur öllum krókum og kimum þar, en gengið verður frá mósaíklistaverkinu við Aðalgötu. Tveimur tímum síðar hefst „Geislaglóð“, íþróttagleði ungmennafélags- ins Geisla. Kl. 14 verður Félagsmið- stöð Félags sumarbúa í Súða- vík opnuð formlega í gamla pósthúsinu á staðnum. Þar hyggjast sumarbúar standa fyrir uppákomum á borð við sögukvöld og ljóðalestur fram á haust, en einnig verður fé- lagsmiðstöðin vettvangur fyr- ir gesti til þess að sýna sig og sjá aðra. „Dýrðleg veisla“ nefnist viðburður er hefst kl. 15 þenn- an dag í nýrri þjónustumiðstöð Súðavíkurhrepps. Þar munu tveir Súðvíkingar snæða mat frá sjö þjóðlöndum með við- eigandi tónlist með hverjum rétti. Sýningargestir geta fylgst með tilburðunum um leið og þeir þiggja mat af veisluborðinu, en ílátin sem þeir eru bornir fram í eru sýningargripir. Samhliða veislunni verður samsýning listakvennanna Ingiríðar Óð- insdóttur, Jónu Thors, Sigríðar Erlu Guðmundsdóttur og Kristínar Ísleifsdóttur opnuð í þjónustumiðstöðinni. Þá um kvöldið fer fram varðeldur og brekkusöngur í Súðavík, en í ár eru það Súð- víkingar sjálfir sem stýra her- legheitunum eins og þeim ein- um er lagið. Frosti Gunnars- son gegnir störfum brennu- stjóra, og Egill Heiðar Gísla- son frá Grund og Stefán Kjart- ansson í Eyrardal stýra söng- num. Eftir varðeldinn skokka gestir í Grunnskóla Súðavík- ur, kaupa sér sérlagaða súpu og brauð og hita þar upp fyrir ball kvöldsins í félagsheimili Súðvíkinga, en þar leikur hljómsveitin Bland í poka fyrir dansi. Súpusérfræðingur þessa Listasumars er Súðvík- ingurinn góðkunni Esra Esra- son. Lokadagur hátíðarinnar hefst með fjölskylduguðs- þjónustu í Súðavíkurkirkju, en að henni lokinni geta gestir matast í kaffihlaðborði á sal grunnskólans. Þar verður af- rakstur íkonanámskeiðsins til sýnis auk þess sem leikararnir þjóðkunnu Björgvin Franz Gíslason og Þórunn Clausen sýna uppfærslu Hafnarfjarðar- leikhússins á sögunni um Rauðhettu. Kaffihlaðborðið er síðasti dagskrárliður Lista- sumarsins að þessu sinni, en því verður formlega slitið kl. 16 á sunnudaginn.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.