Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2002, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 24.07.2002, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 5 smáar ustu sýn lífs míns til þessa þegar við sigldum fram hjá norskum olíuborpalli þegar tekið var að kvölda. Það er alveg einstakt að sjá þessar ljósaborgir standa upp úr auðn hafsins. Birtan í loftinu olli því að mér leið hálfpartinn eins og ég væri að sigla inn í vísindaskáldsögu. Reyndar var ekki lítið um svona upp- lifanir í ferðinni. Mér leið statt og stöðugt eins og ég væri að taka þátt í einhverju miklu ævintýri. Á leiðinni frá Hjaltlandi til Færeyja lentum við t.a.m. í miklu roki og öldugangi þegar ég átti vakt uppi á dekki. Þetta var um miðja nótt og kolniða- myrkur úti, en vegna vindátt- arinnar þurftum við að rifa meginseglið og binda það nið- ur. Það var rosaleg upplifun að hanga yfir ólgandi hafinu með báðum höndum í ránni, reynandi að binda niður seglið með lappirnar í lausu lofti og vitandi að það eina sem hélt mér frá því að detta voru mínar eigin hendur. Síðar sama kvöld lá ég svo sofandi í káetunni minni þar sem ég átti frívakt. Það var enn mikill öldugangur og ég vaknaði við að báturinn gekk undan mér. Ég var í örfáar sekúndur stödd í lausu lofti án þess að átta mig almenni- lega á því og rétt náði að hugsa „hvar er koddinn minn?“ áður en ég skall niður í kojuna aftur, beint á koddann. Þetta er ævintýramennska, þetta er ak- sjón“, segir Ester og brosir. Tími ævintýranna er ekki liðinn Þrátt fyrir að Ester hafi notið sjóferðarinnar til hins ýtrasta og upplifað þar mörg ævintýri var hún engu að síður fegin þegar fyrstu merki um heima- landið tóku að sjást við sjón- deildarhringinn. „Það var góð tilfinning þegar ég gerði mér grein fyrir því að þetta hvíta sem ég sá við sjónarröndina var ekki ský heldur Vatna- jökull“, segir hún. „Ég þrætti reyndar við hin í áhöfninni sem héldu því lengi vel fram að stolt okkar Íslendinga væri ekkert annað en skýjabakki. Þegar fólk skreið upp úr káet- um sínum klukkan átta morg- uninn eftir lék hins vegar eng- inn vafi á því að við værum að nálgast áfangastað. Við blöstu Mýrdals- og Eyjafjallajökull í glampandi sólinni og mávar sveimuðu milli fiskibáta skammt frá okkur. Þegar ég leit yfir þetta laust þeirri hugs- un í mig að ég væri komin alla leið yfir Atlantshafið á skútu. Það er ansi stór hugsun að hafa gert eitthvað á borð við þetta og mér varð þá ljóst hversu verðmæt þessi ferð á eftir að verða mér þegar fram líða stundir. Að sigla á tíu hnúta ferð undir segli með öldurnar fyss- andi umhverfis mig, vindurinn blæs, maður horfir á skýin og hefur eitt andartak ekki minn- stu hugmynd um hvaða dagur er eða hvað maður heitir yfir- leitt. Í stutta stund saman- stendur umheimurinn af blárri auðn hvert sem augað lítur og þá er eins og lífið sé fullkomið, ævintýri.“ – En heldur þú að verkefnið eigi eftir að skila einhverju til hins almenna borgara? „Fólk getur að sjálfsögðu farið í Hafnarhúsið og skoðað hvað við höfðumst að á þess- um þremur vikum. En ég held að það mikilvægasta séu kannski skilaboðin sem við sendum umheiminum; það er hægt að upplifa ævintýri þó að nútíminn hellist óðum yfir okkur. Það er hægt að taka skref til baka til þess að upp- lifa heiminn og finna vindinn á andlitinu. Það er ennþá hægt.“ Ester Ösp Guðjónsdóttir. Óska eftir 2ja herb. íbúð til leigu, helst á eyrinni á Ísafirði. Uppl. í síma 849 0113. Til sölu er 3ja herb. íbúð á eyr- inni á Ísafirði á mjög góðu verði. Góð eign til að byrja á. Uppl. í síma 690 2100. Til leigu er lítil íbúð á eyrinni á Ísafirði. Laus frá og með 15. júlí. Uppl. í síma 896 0542. Til sölu er lítill Whirlpool ísskáp- ur, aðeins notaður í 1 ár. Verð kr. 16 þús. Uppl. í símum 456 4011 og 848 0528. Til sölu er amerískt, king size rúm, sófasett og þurrkari. Uppl. í síma 690 3115. Til sölu er vandað og gott skrif- borð. Uppl. í síma 456 8230. Til sölu er nettur leður hornsófi ásamt borði. Verð kr. 30.000. Uppl. í síma 690 7270. Óska eftir konu til að þrífa heimahús tvisvar í mánuði. Uppl. í síma 660 6081. Frá 1. september er til leigu stúdíóíbúð að Hlíðarvegi 42 á Ísafirði. Uppl. í símum 456 3704 og 456 4022. Til sölu er dökkgrænn Silver Cross barnavagn með bátalag- inu. Verð kr. 15.000. Uppl. í síma 861 4654. Blár Nokia 6110 GSM-sími tapaðist fyrir ca. tveimur mán- uðum. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 863 4295 eða 456 4295. Óska eftir að leigja 1-2ja herb. húsnæði í Skutulsfirði næsta vet- ur. Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið. Uppl. í síma 456 2025 eða 869 4787. Til leigu er 3ja herb. íbúð að Engjavegi 17. Leigist frá og með 1. ágúst. Leiga kr. 30.000. á mán. Uppl. í síma 867 0397. Til sölu er Apollo Lux tjaldvagn. Uppl. í síma 456 5481. Til sölu er sófaborð, hillusam- stæða og tölvuborð fyrir lítinn pening. Uppl. í símum 456 5063 og 866 7012 e. kl. 16. Til sölu er uppstoppaður refur og fálki. Uppl. í síma 861 4709. Til sölu er emaleruð Sóló elda- vél. Uppl. í síma 855 4100. Til leigu er 4ra herb. íbúð frá 4. ágúst nk. Sér inngangur og geymslur. Vel staðsett. Sann- gjörn leiga. Upplýsingar í síma 867 5161. Neðstikaupstaður á Ísafirði Gestum fjölgar miðað við sama tíma í fyrra Talvert fleiri ferðamenn hafa sótt Byggðasafnið í Neðstakaupstað á Ísafirði heim það sem af er júlí en á sama tíma í fyrra. „Við fund- um fyrir örlítilli aukningu í júní, þrátt fyrir að þá hafi engin skemmtiferðaskip komið til bæjarins. Það sem af er júlí hefur verið talsverð aukning gesta. Sem fyrr virðast Íslend- ingar vera heldur fleiri en er- lendir ferðamenn“, segir Heimir Hansson, safnvörður í samtali við blaðið. Greiðasala í Tjörukaffi hef- ur tekið mikinn kipp í júlí. „Það var tiltölulega rólegt í júní, en gestum hefur fjölgað mikið að undanförnu. Það er skemmtilegt að segja frá því að ferðamenn eru mjög ánægðir, ekki bara með safnið og kaffihúsið í Neðstakaup- stað, heldur með Ísafjörð allan og þá sérstaklega miðbæinn. Helst kemur það Íslendingum á óvart hvað allt er í miklum blóma“, segir Heimir. Deild 21 innan Vinnuskóla Ísafjarðarbæjar Ágæt útkoma í umhverf- ismati hjá fyrirtækjum Fyrirtæki í Ísafjarðarbæ koma ágætlega út úr umhverf- ismati sem deild 21 innan vinnuskóla bæjarins gerði í sumar. Alls var skoðað ytra umhverfi 70 fyrirtækja í öllum þéttbýliskjörnum bæjarins og gerð könnun á innra umhverfi. „Niðurstöður ytra matsins komu ágætlega út. Af 70 fyr- irtækjum voru 21 fyrirtæki sem fengu engar athugasemd- ir og voru talin til fyrirmyndar fyrir Ísafjarðarbæ“, segir í nið- urstöðu umhverfismatsins. „Niðurstaða þessa um- hverfismats er á margan hátt athyglisverð og gefur ein- hverja hugmynd um ástand umhverfismála hjá fyrirtækj- um í Ísafjarðarbæ. [...] Sú spurning sem endurspeglar ef til vill einna best hið raun- verulega ástand umhverfis- mála í Ísafjarðarbæ er síðasta spurningin það sem spurt er hvort svarandi telji fyrirtæki í Ísafjarðarbæ eiga við um- hverfisvandamál að stríða. Eins og fram kom áður skipt- ust svarendur í tvær nánast hnífjafnar fylkingar og því greinilega skiptar skoðanir um þetta mál“, segir í niðurstöðu matsins. Í lokaorðum niðurstöðunn- ar segir: „Það er vissulega margt sem má betur fara hjá fyrirtækjum Ísafjarðarbæjar en einnig margt, ef ekki fleira, sem við getum verið ánægð með. Að lokum má nefna að fljótlega eftir heimsóknina mátti sjá að fyrirtækin höfðu mörg hver greinilega vaknað til umhugsunar eftir fyrri heimsóknina og á nokkrum stöðum er búið að setja blóm við byggingar og hreinsa til á lóðum. Þessi viðbrögð þurfa þó ekki að koma á óvart því að það er oft að fólk verður samdauna umhverfi sínu og hættir að taka eftir því sem mætti betur fara og er því ánægt þegar einhver bendir á það sem fara má betur.“ Mýrakirkja Tónleikar á föstudag Sópransöngkonan Diljá Sigursveinsdóttir heldur tónleika í Mýrakirkju í Dýrafirði á föstudag kl. 21:00 við undirleik Guð- nýjar Einarsdóttur, organ- ista. Mýrakirkja fagnaði 100 ára afmæli árið 1997 og hafa vandaðir, menningar- og kirkjulegir viðburðir verið fastir liðir í sumar- dagskrá kirkjunar síðan þá, enda hentar hún vel fyrir slíka starfsemi þar sem hljómburður í henni þykir afar góður og nægt rými er fyrir áhorfendur. Aðgangur á tónleikana er ókeypis, en dagskrá þeirra samanstendur af fjölda laga úr ýmsum átt- um og er þar m.a. að finna falleg íslensk sönglög sem flestir ættu að þekkja. Sóknarnefnd Mýrakirkju býður alla velkomna. Sveinbjörn sigraði í kajakróðri Siglingadagar við Ísafjarðardjúp Sveinbjörn Kristjánsson frá Bolungarvík sigraði í keppni í kajakróðri sem haldin var á Ísafirði á laugardag í tilefni af siglingadögum sem standa yfir. Keppnin var mjög spenn- andi og tók það Sveinbjörn 56 mínútur og 11 sekúndur að róa tíu kílómetra, en þjálfari hans, Halldór Sveinbjörnsson, kom í mark tveimur sekúnd- um síðar. Af þeim sem réru styttri vegalengdina, 6,5 kílómetra, var Baldur Pétursson frá Flat- eyri röskastur, réri á 36:24. Þá sigraði Elísabet Finnbogadótt- ir í kvennaflokki og réri 6,5 kílómetra á 44 mínútum. Elísabet var reyndar eina kon- an sem tók þátt og vilja for- kólfar kajakíþróttarinnar hvet- ja vestfirskar valkyrjur til að snúa sér að kajakróðri. Um kvöldið gerðu kajak- menn sér glaðan dag í Tjöru- húsinu í Neðstakaupstað á Ísa- firði. Sigurður Rúnar Jónsson, betur þekktur sem Diddi fiðla, lék á harmonikku fyrir lúna en ánægða kajakgarpa og Rúnar Óli Karlsson, einn skipuleggjenda siglingadaga, lék á gítar. Siglingadögum verður fram haldið um næstu helgi. Á föstudag hefst kajaknámskeið í Reykjanesi í umsjón Hall- dórs Sveinbjörnssonar og munu enn nokkur sæti vera laus. Hægt er að skrá sig hjá Halldór í síma 894-6125, eða hjá Pétri síma 893-1791. Þá má ekki gleyma hinu rómaða bátaballi í Ögri sem haldið verður á laugardags- kvöld. Hljómsveitin Rós mun þar leika fyrir dansi og að vanda verður boðið upp á rabbabaragraut með rjóma í hléi. Þrír efstu í kajakróðrinum. F.v. Sveinbjörn Kristjánsson, Halldór Sveinbjörnsson og Gunnar Tryggvason ásamt Rúnari Óla Karlssyni.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.