Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2002, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 24.07.2002, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2002 helgardagbókin skemmtanir · fundir · fólk · sjónvarp · veður · íþróttir · fréttir · kirkjustarf 15 minutes, eða Frægð í 15 mínútur, er hörð ádeila á fjölmiðlafár nú- tímans og hversu langt menn gangi til að öðlast sínar 15 mínútur af frægð. Robert De Niro og Edward Burns leika löggur sem eru á höttun- um eftir tveimur brjálæðingum sem kvikmynda ódæðisverk sín og senda á sjónvarpsstöð. Fyrr en varir er þátturinn orðinn gríðarlega vinsæll og glæpamennirnir verða frægir á einni nóttu. Löggurnar þjarma þó smám saman að þeim þangað til hámarki fjölmiðlasirkussins er náð og óumflýjanlegt uppgjör verður í beinni útsendingu. Myndin er sýnd á Stöð 2 kl. 22:00 á laugardagskvöld. Frægð í 15 mínútur veðrið Horfur á fimmtudag: Sunnan og síðan suð- vestan 13-18 m/s og rign- ing um allt land, mest þó sunnan og vestantil. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norð- austantil. Horfur á föstudag: Suðvestan strekkingur og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustan- og austantil. Heldur hlýn- ar í veðri. Horfur á laugardag: Suðvestan strekkingur og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustan- og austantil. Heldur hlýn- ar í veðri. Horfur á sunnudag: Suðvestan strekkingur og rigning eða skúrir, en úrkomulítið norðaustan- og austantil. Heldur hlýn- ar í veðri. Föstudagur 26. júlí 16.45 Fótboltakvöld 17.00 Í úlfakreppu (1:3) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Stubbarnir (17:90) 18.30 Falda myndavélin (29:60) 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.10 Ævintýri Indiana Jones (8:22) 21.40 Þriðja augað. (After Alice) Bandarísk spennumynd frá 1999. Drykkjusjúk lögga öðlast yfirskilvitlega hæfileika sem nýtast honum vel í baráttu við raðmorðingja. Aðalhlutverk: Kiefer Sutherland og Henry Czerny. 23.20 Níunda hliðið. (The Ninth Gate) Spennumynd frá 1999 um bóksala sem dularfullur maður ræður til að hafa uppi á fornum dulspekiritum. Aðalhlutverk: Goldie, Johnny Depp, Frank Langella, Lena Olin og Emmanuelle Seigner. 01.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok Laugardagur 27. júlí 09.00 Morgunsjónvarp barnanna 09.02 Stubbarnir (44:90) 09.26 Maja (15:52) 09.33 Albertína ballerína (19:26) 09.45 Fallega húsið mitt (4:30) 09.50 Friðþjófur (9:13) 09.57 Babar (38:65) 10.23 Krakkarnir í stofu 402 (19:40) 10.45 Hundrað góðverk (6:20) 10.50 Formúla 1. Bein útsending frá tímatöku fyrir kappaksturinn á Hocken- heim-brautinni í Þýskalandi. 12.10 Kastljósið 12.30 Hvernig sem viðrar (9:10) 13.00 Vélhjólasport. Sýnt er frá KFC & DV Sport Íslandsmótinu í vélhjóla- akstri. 13.15 Skjáleikurinn 17.55 Táknmálsfréttir 18.05 Forskot (22:40) 18.54 Lottó 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.00 Fjölskylda mín (3:8) 20.30 Storkurinn. (Delivering Milo) Bíómynd frá 2001. Kona er að því komin að eiga þegar að hríðarnar detta niður vegna þess að ófæddur sonur hennar á himnum neitar að koma í heiminn. Ná- ungi sem er mitt á milli þess að vera í himnaríki eða helvíti er fenginn til að sannfæra stráksa og að launum á hann að fá eilífa jarðvist. Aðalhlutverk: Anton Yelchin, Bridget Fonda, Campbell Scott og Albert Finney. 22.05 Barnaby ræður gátuna. (Mid- somer Murders: Death of a Hollow Man) Bresk sakamálamynd byggð á sögu eftir Caroline Graham þar sem Barnaby lög- reglufulltrúi glímir við dularfullt morð. Aðalhlutverk: John Nettles, Daniel Casey, Nicholas Le Prevost og Angela Pleasance. 23.50 Milli tveggja elda. (Gun Shy) Spennumynd í léttum dúr frá 2000 um útbrunna löggu sem leitar til geðlæknis eftir að hann er gerður að milligöngu- manni ítalskra og kólumbískra bófa. e. Aðalhlutverk: Liam Neeson, Oliver Platt, Sandra Bullock, Jose Zuniga og Richard Schiff. 01.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok Sunnudagur 28. júlí 09.00 Morgunsjónvarp barnanna 09.02 Hans og silfurskautarnir 09.55 Andarteppa (17:26) 10.18 Svona erum við (14:20) 10.28 Ungur uppfinningamaður 11.00 Kastljósið 11.30 Formúla 1. Bein útsending frá kappakstrinum á Hockenheim-brautinni í Þýskalandi. 14.10 Hvernig sem viðrar (9:10) 14.35 Timburmenn (6:8) 14.45 Skjáleikurinn 17.00 Mannsandlitið (4:4) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Viktor 18.15 Sigga og Gunnar 18.30 Knútur og Knútur (3:3) 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 20.00 Maður eigi einhamur. Heimild- armynd um lista- og athafnamanninn Guðmund frá Miðdal. e. 20.50 Bláa dúfan (4:8) (Blue Dove) Breskur myndaflokkur um fjölskyldu sem rekur postulínsverksmiðju. Þegar forstjórinn deyr taka börnin við. Rekstur- inn gengur illa og börnin fá liðsauka en bjargvætturin hefur annað í huga en að bjarga fyrirtækinu. Í aðalhlutverkum eru Paul Nicholls, EstherHall, Nicky Henson, Ruth Gemmell, Stephen Boxer og James Callis. 21.45 Helgarsportið 22.10 Sade. (Sade) Bíómynd frá 2000 sem gerist í frönsku byltingunni. De Sade markgreifa er haldið í klaustri ásamt öðru hefðarfólki. Hann kynnist ungri stúlku sem hrífst af honum og vill kynnast leyndardómum lífsins áður hún fer undir fallöxina. Aðalhlutverk: Daniel Auteuil, Isild le Besco og Marianne Denicourt. 23.45 Kastljósið 00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok Föstudagur 26. júlí 06.58 Ísland í bítið 09.00 Bold and the Beautiful 09.20 Í fínu formi 09.35 Oprah Winfrey (e) 10.20 Ísland í bítið 12.00 Neighbours 12.30 Í fínu formi 12.45 Murphy Brown (e) 13.10 Blazing Saddles. 14.40 Andrea (e) 15.05 Ved Stillebækken (4:26) (e) 15.35 Britney Spears 16.00 Barnatími Stöðvar 2 (e) 17.40 Neighbours 18.05 Seinfeld (11:24) 18.30 Fréttir 19.00 Ísland í dag 19.30 Far Off Place. (Veiðiþjófarnir) Ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna um þrjú ungmenni sem flýja 2.000 km yfir Kalahari-eyðimörkina á flótta undan grimmum veiðiþjófum. Þau ætla að leita á náðir ofurstans Mopanis Therons sem stýrir baráttu gegn veiðiþjófum en á leiðinni lenda þau í ótal ævintýrum þar sem reynir á hugrekki þeirra og þor. Að- alhlutverk: Reese Witherspoon, Ethan Randall, Maximilian Schell. 21.15 Smallville (15:22) 22.05 The Runner. (Sendillinn) Þessi spennumynd, sem byggð er á sannsögu- legum atburðum, fjallar um fjárhættu- spilarann Edward sem starfar fyrir þekkt- an glæpamann í Las Vegas. Edward veðj- ar fyrir yfirmann sinn en vegna fíknar hans lendir hann fljótt í skuldakröggum. Ekki batnar ástandið þegar hann kemst að því að kærastan hans á von á barni. Honum eru settir úrslitakostir og verður að taka mestu áhættu lífs síns til að bjarga sér og sínum úr klúðrinu. Aðalhlutverk: John Goodman, Courtney Cox, Ron Eldard. 23.40 Becomes of the Broken Hearted (Eitt sinn stríðsmenn 2) Framhald hinnar mögnuðu Once Were Warriors. Við kynnumst skuggahliðum samfélags á Nýja-Sjálandi þar sem gengi ráða ríkjum og berjast um yfirráðin á degi hverjum. Aðalhlutverk: Temuera Morrison, Julian Arahanga, Clint Eruera. 01.20 Psycho. (Skelfing) Endurgerð einnar mögnuðustu spennumyndar allra tíma. Mynd meistara Hitchcocks var frumsýnd árið 1960 en hér er á ferðinni ný útgáfa af sögunni um stúlkuna sem leitar hælis á afskekktu móteli sem Nor- man Bates rekur ásamt móður sinni. Aðalhlutverk: Julianne Moore, Vince Vaughn, Anne Heche. 03.00 Seinfeld (11:24) (e) 03.20 Ísland í dag 03.45 Tónlistarmyndbönd Laugardagur 27. júlí 08.00 Barnatími Stöðvar 2 10.20 The Bad News Bears. (Botnliðið) Þriggja stjarna gamanmynd um hafna- boltalið og þjálfara þess. Morris Butter- maker var að eigin sögn mikil stjarna í hafnaboltanum. Hann hefur nú tekið að sér að þjálfa Birnina, lið sem á litla fram- tíð fyrir sér. Leikmennirnir eru á aldrin- um 10-13 ára og þeir kæmust örugglega aldrei að hjá öðru liði. Morris er samt hvergi smeykur og um leið og nýr kastari gengur í raðir liðsins liggur leiðin óvænt upp á við. Aðalhlutverk: Walter Matthau, Tatum O´Neal, Ben Piazza, Vic Morrow. 12.00 Bold and the Beautiful 13.50 Starman. (Aðkomumaðurinn) Geimfar er skotið niður og geimvera fellur til jarðar í Wisconsin í Bandaríkj- unum. Hún reikar að afskekktum bónda- bæ þar sem ung ekkja býr og ekkjunni til mikillar furðu lítur veran alveg eins út og eiginmaður hennar sálugi. Geimveran nemur hana á brott í leit að lendingarstað móðurskipsins enda aðeins þrír dagar til stefnu, annars mun geimveran deyja. Herinn veitir þeim eftirför en á flóttanum tengjast konan og geimveran tilfinninga- böndum sem flækir málin enn frekar. Aðalhlutverk: Jeff Bridges, Karen Allen, Charles Martin Smith. 15.40 Phffft!. (Hliðarspor) Nina og Ro- bert eru komin á endastöð í hjónabandi sínu og ákveða að róa á önnur mið. Nina blómstrar sem aldrei fyrr og vekur at- hygli karlanna hvert sem hún fer og Ro- bert reynir að taka stelpurnar með trompi. En allar leiðir liggja heim og aldrei að vita nema þau lendi aftur saman í einni hjónasæng. Aðalhlutverk: Jack Lemmon, Judy Holliday, Jack Carson. 17.10 Best í bítið 17.40 Oprah Winfrey 18.30 Fréttir 18.55 Lottó 19.00 Ísland í dag 19.30 Dharma & Greg (21:24) 20.00 Spin City (3:22) 20.30 Woman on Top. (Konan ofan á) Rómantísk gamanmynd. Isabella er skapheit, brasilísk fegurðardís. Hún er meistarakokkur og rekur veitingahús með eiginmanni sínum, Toninho. Hann reynist henni ótrúr og þá flytur hún til vinkonu sinnar í San Francisco. Þar breytir Isabella um lífsstíl en er hún raun- verulega búin að gefa Toninho upp á bátinn? Aðalhlutverk: Penélope Cruz, Murilo Benício, Harold Perrineau Jr.. 22.00 15 Minutes. (Frægð í 15 mínútur) Þessi spennutryllir er hörð ádeila á fjöl- miðlafár nútímans og hversu langt menn gangi til að öðlast sínar 15 mínútur í frægðinni. Robert De Niro og Edward Burns leika tvær löggur sem eru á höttun- um eftir tveimur brjálæðingum sem kvik- mynda ódæðisverk sín og senda á sjón- varpsstöð. Fyrr en varir er þátturinn orð- inn sá vinsælasti og glæpamennirnir verða frægir á einni nóttu. Löggurnar þjarma þó smám saman að þeim þangað til hámarki fjölmiðlasirkussins er náð og óumflýjanlegt uppgjör verður í beinni útsendingu. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Edward Burns, Kelsey Grammer. 00.00 Joan of Arc. (Jóhanna af Örk) Luc Besson leikstýrir einvalaliði í þessari stórmynd um ævi og örlög Jóhönnu af Örk. Hún var einungis þrettán ára þegar hún fékk sína fyrstu vitrun og fáeinum árum síðar fékk hún staðfestingu á því að örlög hennar væru fólgin í að bjarga Frakklandi undan oki Englendinga. Hún blés baráttuanda í herinn og í kjölfarið snerist baráttan Frökkum í vil. Laun Jó- hönnu voru hins vegar lítil því hún var brennd á markaðstorgi Rúðuborgar árið 1431, einungis 19 ára að aldri. Aðalhlut- verk: Milla Jovovich, John Malcovich, Dustin Hoffman, Faye Dunaway. 02.35 Killers in the House. (Friðhelgin rofin) Sawyer-fjölskyldan er nýflutt í glæsilegt hús og unir hag sínum vel en fyrsta kvöldið verður að martröð þegar hópur misindismanna leitar þar skjóls. Aðalhlutverk: Mario Van Peebles. 04.05 Tónlistarmyndbönd Sunnudagur 28. júlí 08.00 Barnatími Stöðvar 2 10.05 Nutcracker, The 10.50 Barnatími Stöðvar 2 11.10 The Simpsons (15:21) (e) 11.35 Undeclared (4:17) (e) 12.00 Neighbours 13.55 U2 14.35 Mótorsport (e) 15.00 Bartok the Magnificent 16.25 Þorsteinn J. (8:12) (e) 16.50 Andrea (e) 17.15 Pukka Tukka (3:4) 17.40 Oprah Winfrey 18.30 Fréttir 19.00 Ísland í dag 19.30 The Education of Max 20.20 Random Passage (5:8) (Út í óviss- una) Þessi áhrifamikla þáttaröð fjallar um erfiða ferð konu frá Englandi til Ný- fundnalands seint á 19. öld. Hún verður fyrir miklum raunum á leiðinni og neyð- ist til að berjast fyrir frelsi sínu og barns- ins síns eftir að barnsfaðirinn yfirgaf hana. 21.10 Illuminata. (Sett á svið) Frábær mynd John Turturro sem tilnefnd var til Gullpálmans á Cannes árið 1998. Þetta er erótískur farsi áhrifamikillar ástarsögu. Myndin gerist snemma á síðustu öld og segir af leikkonunni Rachel og leikrita- skáldinu Tuccio. Þau eru elskendur sem reyna að setja upp verk eftir Tuccio og fylgjumst við með þeim reyna að skapa eitthvað sérstakt á meðan margs kyns öfl innan leikhússflokksins berjast um völd. Bak við tjöldin er leynimakkið mikið og takast á losti, tryggð, daður, grátur og hlátur. Aðalhlutverk: John Turturro, Susan Sarandon, Christopher Walken, Leo Bassi. 23.00 The Butcher Boy. (Slátrara- drengurinn) Francie Brady, tíu ára írskur drengur, hefur átt allt annað en auðvelda æsku. Pabbi hans er drykkjurútur og móðir hans á við geðræn vandamál að stríða. Francie er samt sem áður alltaf glaðvær þó að ekki sé allt sem sýnist og ýmislegt ógeðfellt gangi á í kollinum á honum. Aðalhlutverk: Stephen Rea, Fiona Shaw, Eamonn Owens. 00.50 Cold Feet 3 (1:8) (e) 01.40 Tónlistarmyndbönd Föstudagur 26. júlí 18.30 Íþróttir um allan heim 19.30 Gillette-sportpakkinn 20.00 Heiðurstónleikar Janet Jackson 21.10 Prophecy II. ( Spádómurinn 2) Þegar hinum illa engli Gabríel verður ljóst að engillinn Daníel hefur getið barn með hjúkrunarkonunni Valerie verður hann æfur af reiði. Í spádómi munksins Thomas var getið um barn sem myndi koma og frelsa mannkynið undan hinu illa og nú hefur spádómurinn ræst. Hann ákveður því að koma í veg fyrir að barnið fæðist og býr sig undir að snúa aftur til jarðarinnar. Aðalhlutverk: Christopher Walken, Jennifer Beals. 22.35 Prophecy 3. (Spádómurinn 3) Á himni ríkir stríð og á jörðu hyggst Pyriel, engill tortímingarinnar, ná völdum og útrýma mannkyninu. Sá eini sem gæti hindrað áform hans er Danayel, hálfur engill og hálf kona. Erkienglinum Gabr- íel hefur verið falið það hlutverk að gæta Danayel og tryggja framtíð mann- kyns. Aðalhlutverk: Christopher Walk- en, Vincent Spano. 00.05 Further Gesture. (Skuldaskil) Sean Dowd er liðsmaður í Írska lýðveld- ishernum, IRA. Hann er handsamaður fyrir hryðjuverk og fluttur í fangelsi í Belfast. Honum tekst að sleppa og flýr til New York þar sem hann lætur fara lítið fyrir sér. Hann fær brátt vinnu á veitingahúsi og áður en langt um líður er hann aftur kominn í vafasaman félags- skap. Aðalhlutverk: Stephen Rea, Alfred Molina, Rosana Pastor, Brendan Glee- son, Jorge Sanz. 01.45 Dagskrárlok og skjáleikur Laugardagur 27. júlí 13.45 Símadeildin. Bein útsending frá leik ÍA og KR. 16.00 Toppleikir 18.00 Íþróttir um allan heim 18.50 Lottó 19.00 Highlander (20:22) 20.00 MAD TV. Geggjaður grínþáttur þar sem allir fá það óþvegið. Heiti þáttar- ins dregur nafn sitt af samnefndu skop- myndablaði sem notið hefur mikilla vin- sælda. 21.00 Heavenly Creatures. (Himneskar verur) Þessi stórgóða mynd er byggð á sannsögulegum atburðum og segir frá vinkonunum Juliet Hulme og Pauline Parker. Með þeim þróast einstakt vináttu- samband þar sem bókmenntir og óbeisl- að ímyndunarafl leikur lausum hala. Smám saman fjarlægjast þær fjölskyldur sínar og sökkva sífellt dýpra inn í sameig- inlegan hugarheim sinn. Að lokum reynir móðir Pauline að stía þeim í sundur en það reynist hafa hörmulegar afleiðingar. Aðalhlutverk: Melanie Lynskey, Kate Winslet. 22.40 Hnefaleikar - Vernon Forrest. Útsending frá hnefaleikakeppni í Banda- ríkjunum. Á meðal þeirra sem mættust voru veltivigtarkapparnir Vernon Forrest og Shane Mosley en í húfi var heims- meistaratitill WBC-sambandsins í sama þyngdarflokki. 00.40 Seductive Co-eds. Erótísk kvik- mynd. 02.00 Dagskrárlok og skjáleikur Sunnudagur 28. júlí 19.00 South Park (10:17) 19.30 Golfstjarnan Carlos Franco 20.00 Golfmót í Bandaríkjunum 21.00 Picture Perfect. (Til fyrirmyndar) Rómantísk gamanmynd. Kate er ein- hleyp kona sem vinnur á auglýsinga- stofu. Hún hrífst af einum samstarfs- manna sinna en þorir ekki að láta það í ljós. Þess í stað ræður hún leikara til að leika unnusta sinn og ætlar að slá tvær flugur í einu höggi. Vekja afbrýðisemi samstarfsmannsins og ganga í augun á yfirmönnum sínum og sýna þeim að hún er kona sem veit hvað hún vill. Að- alhlutverk: Jennifer Aniston, Kevin Bac- on, Jay Mohr. 22.40 Íslensku mörkin 23.10 Fleshtone. (Málarinn og dauðinn) Listamaðurinn Matthew Greco er bæði ríkur og frægur. Hann fæst við óvenju- lega gerð myndlistar sem þó virðist falla í kramið hjá fjöldanum. Dauðinn er viðfangsefnið í verkum Matthews sem er fjarri því að vera ánægður með lífið. Þrátt fyrir velgengnina er hann einmana og þráir að veita sjúklegum kynlífsórum sínum útrás. Á vegi hans verður síma- vændiskonan Edna en samskiptin við netið www.isafjordur.is/ skoli/sugandi Málefni grunnskólans á Suðureyri hafa verið í brennidepli undanfarið svo sem Bæjarins besta hefur margsinnis greint frá. Ekki þykir hér ástæða til þess að rifja upp efni deilunnar, en áhugasamir um skólahald í Súganda- firði geta glöggvað sig á ágætri heimasíðu skólans og þannig reynt að fá skýrari mynd af ástand- inu. Á síðunni finna myndir úr skólalífinu, allar upplýsingar um skólann, starfsemi hans og starfs- menn ásamt tenglum á heimasíður nemenda og ýmis verkefni er þeir hafa unnið. Er óhætt að segja að burtséð frá öllum deilum um ágæti skólans er vefur hans fagmann- lega unninn og útlitsfagur, en allt of oft ber við að kastað sé til höndum þegar vefur á borð við þennan er hannaður. bb.is – dagblað á netinu!

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.