Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2002, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 24.07.2002, Blaðsíða 12
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk bb.is – öflugur frétta- og upplýsingamiðill! Ísafjörður Stálu bíl- númerum Aðfaranótt sunnudags gerðu tveir menn um tví- tugt sér það að leik að stela bílnúmerum af bif- reiðum við Urðarveg á Ísafirði. Mennirnir hafa báðir gengist við verknaðinum og gáfu þær skýringar á athæfi sínu að þeim hafi fundist þjófnaðurinn af- skaplega fyndinn, enda báðir við skál þá um nótt- ina. Sömu nótt var stolið hjóli undan hjólhýsi við Urðarveg og tilraun var gerð til að stela reiðhjóli. Ísafjörður Göngustígur milli gatna? Húseigendur nokkurra húsa við Engjaveg og Seljalandsveg á Ísafirði hafa óskað eftir því við bæjaryfirvöld að gerður verði göngustígur milli húsa þeirra. Í bréfi til bæjaryfirvalda segja húseigendurnir að talsverður átroðningur skapist á lóðum þeirra vegna ferða nemenda MÍ og annarra íbúa Engjaveg- ar og Urðarvegar, sem stytta sér gjarnan leið um lóðir þeirra. Jafnframt lýsa bréfritarar því yfir að þeir séu tilbúnir að láta eftir hlut í lóðum sínum til þessara framkvæmda. Tæknideild Ísafjarðar- bæjar hefur verið falið að leggja fram greinargerð um málið. Suðureyri Íbúarnir vilja íþróttahús Bæjarráð Ísafjarðar- bæjar hefur falið tækni- deild að kanna kostnað við byggingu íþróttahúss á Suðureyri, en sem kunn- ugt er, hefur þar lengi skort aðstöðu til íþróttaiðkunar. Súgfirsk ungmenni af- hentu Halldóri Halldórs- syni, bæjarstjóra, undir- skriftarlista vegna málsins í vor en flest framboð við bæjarstjórnarkosningar í vor höfðu það á stefnuskrá sinni að koma upp íþrótta- húsi á Suðureyri. Seglskipið Fiia við bryggju á Ísafirði. Ungmenni á ferð um Norðurhöf Seglskútan Fiia frá Raahe í Finnlandi kom við á Ísa- firði á fimmtudag í síðustu viku. Um borð voru níu ungmenni víðs vegar að af Norðurlöndum sem hafa að undanförnu verið á siglingu um Norðurhöf, en ferð þeirra er liður í samnorræna verkefninu „Nordic mess- ages from the seas“. Markmiðið með því er að norræn ungmenni komist í kynni við hafið og sjávar- þorp Norðurlanda milli þess sem þau skapa list með að- stoð ýmissa miðla. Skip- verjar kynntu síðan verkefn- ið í samstarfi við heima- menn og á föstudag hélt skútan áleiðis til Húsavíkur. Sjá einnig viðtal við einn skipverjanna, Ester Ösp Guðjónsdóttur á bls. 4 og 5. Húseignin Grænigarður á Ísafirði Ráðuneytið samþykkir sölu Umhverfisráðuneytið hefur samþykkt sölu Ísafjarðarbæj- ar á fasteigninni Grænagarði við Seljalandsveg á Ísafirði að fenginni tillögu Ofanflóða- sjóðs. Eignin verður því seld með þinglýstum kvöðum um nýtingu. Hefur bæjarstjóra verið falið að ganga frá söl- unni. Ísafjarðarbær mun væntan- lega gangast við 750.000 króna tilboði barnabarna Pét- urs Pétussonar í eignina, en bæjarráð lagði til við bæjar- stjórn í maí að tilboði þeirra yrði tekið. Tilboðið er það síð- asta af fjöldamörgum sem af- komendur Péturs hafa gert í eignina frá því að ákveðið var að selja hana, en af þeim níu tilboðum sem bárust upphaf- lega í hana voru átta frá af- komendum Péturs. Grænigarður er steinsteypt hús frá árinu 1950 með tveim- ur íbúðum. Í kjallara er 68,3m² íbúð og á þeirri efri er 82,5m² íbúð. Um er að ræða upp- kaupahús á snjóflóðahættu- svæði, sem ekki er gert ráð fyrir að verði varið og er bú- seta í húsinu óheimil á tíma- bilinu 1. nóvember til 30. apríl ár hvert. Bátadagur fjölskyldunnar var haldinn á Ísafirði á sunnu- dag. Þar gafst mönnum tæki- færi á að komast á sjóinn með einum eða öðrum hætti og má með sanni segja að Ísfirðingar og aðrir hafi tekið tækifærinu fegins hendi. Talið er að um 400 manns hafi tekið þátt á bátadeginum og eru skipu- leggjendur furðu lostnir, en himinlifandi, yfir viðbrögðun- um. „Það var rosalegt rennerí í gær. Menn fengu að prófa alls kyns farartæki og fólkið hafði líka gaman af því að kíkja á kajaksmiðjuna sem er í gangi í aðstöðunni á Suðurtanga“, segir Rúnar Óli Karlsson. Um 400 manns tóku þátt Bátadagur fjölskyldunnar á Ísafirði Pollurinn á Ísafirði var skrautlegur á sunnudag.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.