Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.11.2002, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 27.11.2002, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 ÚTGÁFAN ISSN 1670 - 021X Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður Sími 456 4560, Fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is Blaðamaður: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson sími 863 7655, halfdan@bb.is Ritstjóri netútgáfu: Hlynur Þór Magnússon sími 892 2240 blm@bb.is Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson sími 894 6125, halldor@bb.is Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson Fréttavefur: www.bb.is Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði Umboðsaðilar BB: Eftirtaldir aðilar sjá um dreifingu á blaðinu á þétt- býlisstöðum utan Ísa- fjarðar: Bolungarvík: Sólveig Sigurðardóttir, Hlíðarstræti 3, sími 456 7305. Súðavík: Sólveig Gísladóttir, Arnarflöt 7, sími 456 4106. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðalgötu 20, sími 891 7738. Flateyri: Gunnhildur Brynjólfsdóttir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Anna Signý Magnúsdóttir, Hlíðargötu 14, sími 456 8233. RITSTJÓRNARGREIN Frumkvöðlarbb.is pú lsi nn fy rir ve sta n Sölustaðir á Ísafirði: Hamraborg, Hafnarstræti 7, sími 456 3166. Flug- barinn, Ísafjarðarflugvelli, sími 456 4772. Bónus, Ljóninu, Skeiði, sími 456 3230. Bókhlaðan, Hafn- arstræti 2, sími 456 3123. Bensínstöðin, Hafnarstræti, sími 456 3574. Samkaup, Hafnarstræti 9-13, sími 456 5460. Krílið, Sindragata 6, sími 456 3556. Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m.vsk. Áskriftarverð er kr. 170 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Ákvörðun þeirra Árna Gíslasonar og Sophusar J. Nielsen á Ísafirði að vélvæða sexæringinn Stanley markar ein stærstu tímamótin í útgerð á Íslandi. Allar götur síð- an frumkvöðlarnir stigu heillasporið hafa Vestfirðingar verið fljótir að tileinka sér nýjungar í sjávarútvegi enda jafnan staðið í fremstu röð á þeim vettvangi. Skal eng- an undra, þegar litið er til hversu nátengdir hafinu þeir hafa alla tíð verið og háðir því, sem það gefur af sér. Á þeim hundrað árum, sem liðin eru síðan litla Möllerup-vélin var sett í árabátinn Stanley, hefur orðið bylting í öllu er lýtur að útgerð. Stöðugt þarf stærri sneið af kök- unni til þess eins að standa undir kostnaði við sístækkandi fiskiskip, öflugri veiðar- færi og tæknibúnað. „Sjálfbær nýting fiskistofna“ var orðalag sem menn kunnu ekki skil á þegar aðstæður í lífríki hafsins og veðurfar réðu mestu um aflaföng frá ári til árs. Nú eru breyttir tímar. Frelsi til fiskveiða horfið. Íbúar sjávarþorpa, sem við upp- haf vélvæðingar bátaflotans horfðu vonaraugum út á hafið, lúta nú boðum og bönn- um og eiga sér fárra kosta völ eftir áralanga ofveiði, sem stærri og kraftmeiri skip og veiðarfæri, sem engu eira, hafa leitt af sér. Auðlindir heimsins eru ekki óþrjótandi nægtabrunnur. Fiskimiðin við Ísland eru þar engin undantekning. Við getum því hvorki vænst né krafist meira en sjálfbærs afraksturs þeirra ár hvert. Allt þar umfram er stuldur frá komandi kynslóðum. Sjálf- bær nýting fiskistofna og umgengni um miðin hlýtur að miklu leyti að grundvallast á gerð veiðarfæra og hvar þau eru notuð innan lögsögunnar. Tillögu Einars Kristins Guðfinnssonar alþingismanns um veiðafærarannsóknir á Ísafirði var fálega tekið á sínum tíma. Engu breytti að sérmenntaður maður á þessu sviði er búsettur á Ísafirði og að innan Netagerðar Vestfjarða hefur verið byggð upp mikil þekking á veiðarfærarannsóknum. Frumkvæði þeirra Netagerðarmanna var því miður enginn gaumur gefinn af yfirvöldum. Að þjóð, sem á jafnmikið undir fiskveiðum komið og Íslendingar, skuli láta sig engu varða að afla þekkingar á sviði veiðarfæra og hvaða áhrif þau hafa á lífríkið, er með öllu óskiljanlegt. Auðvitað ber að nýta þá þekkingu og reynslu, sem byggst hefur upp á þeim stöðum, sem næstir eru grunninum, sem velferð okkar stendur og fellur með, fiski- miðunum. Vestfirðingar hafa sýnt að þeir rísa undir nafni sem frumkvöðlar í sjávar- útvegi. Þeim er því vel treystandi til fleiri góðra verka en þeir sýndu fyrir einni öld með fyrsta vélknúna fiskibátnum. s.h. Ísafjörður Léttir tón- leikar á sunnudag Söngtónleikar og har- monikutónleikar verða haldnir í Frímúrarasalnum á Ísafirði á sunnudag. Flytjendur verða harmo- nikuleikarinn Vadim Fyo- dorov og systurnar Mari- ola og Elzbieta Kowal- czyk. Að sögn þeirra sem standa að tónleikunum verður efnisskráin létt og skemmtileg. Tónleikarnir hefjast klukkan 18. Að- gangseyrir verður 1.500 krónur en 500 krónur fyrir grunnskólanema. Þingeyri Sólveig með sölusýningu Sólveig Vagnsdóttir, handverkskona á Þing- eyri, opnar sölusýningu á næstu dögum. Sýningin verður þar sem verslun Gunnars Sig- urðssonar var til húsa og stefnir Sólveig að opnun hennar fyrsta dag desem- bermánaðar. „Ég hef lík- lega opið fram til jóla en það fer þó eftir því hvernig viðtökurnar verða. Til sýnis og sölu verða verk úr leir og timbri“, segir Sólveig. Sorpbrennslan Funi í Engidal í Skutulsfirði Eina stöðin með starfsleyfi til að eyða úrgangi frá sjúkrahúsum Sorpendurvinnslan Funi á Ísafirði eina stöðin hérlendis sem hefur starfsleyfi til að brenna sérstakan úrgang frá heilbrigðisstofnunum eða svokallað sjúkrahússorp. Með hugtakinu „sjúkrahússorp“ er átt við sérstakan úrgang frá heilbrigðisstofnunum sem hefur í för með sér meiri sýk- ingarhættu og hættu á meiðsl- um en annar úrgangur. Til þessa flokks heyrir sóttmeng- aður úrgangur, líkamsleifar, hvassir hlutir, lyfjaúrgangur og frumubreytandi efni, sem geta haft stökkbreytingar í för með sér. Auk Funa á Ísafirði eru hér á landi fimm stöðvar sem brenna við háan hita, en þær eru í Skaftafelli, á Kirkju- bæjarklaustri, í Vestmanna- eyjum, á Suðurnesjum og á Tálknafirði. Þær stöðvar hafa þó ekki starfsleyfi til brennslu á áðurnefndum úrgangi. Þetta kemur fram í svari um- hverfisráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar á Al- þingi um stöðu þessara mála hérlendis. Einnig kemur fram, að magn úrgangs frá heil- brigðisstofnunum hafi verið kannað árið 2000. Ætla megi að úrgangur sem fellur undir framangreint sé nálægt 350 tonnum á ári. Sorpbrennslan á Suðurnesjum tók á móti stærstum hluta þess eða 220 tonnum árið 2000 og 280 tonnum árið 2001. Heilbrigðisstofnanir þar sem mest fellur til af umrædd- um úrgangi flokka hann yfir- leitt og aðgreina frá öðrum úrgangi þó að enn vanti upp á að hann sé flokkaður sem skyldi. Núna fer úrgangur frá heilbrigðisstofnunum að miklu leyti á förgunarstaði fyrir neysluúrgang og almenn- an rekstrarúrgang. Á Suður- nesjum er gömul sorpbrennsla sem tekur á móti stærstum hluta þessa úrgangs en þar er ekki fullnægjandi förgun á sóttmenguðum úrgangi, segir í svari umhverfisráðherra. Áætlunarflug milli Ísafjarðar og Bíldudals Flogið þrisvar í viku frá næstu mánaðamótum Áætlunarflug milli Bíldu- dals og Ísafjarðar hefst 1. des- ember. Flogið verður þrisvar í viku svo lengi sem einhver farþegi eða einhver vara bíður flutnings milli staðanna. Flog- ið verður frá Ísafirði klukkan 10 að morgni alla þriðjudaga og fimmtudaga og til baka frá Hvassnesflugvelli við Arnar- fjörð korter fyrir 11. Á föstu- dögum verður flogið frá Ísa- firði korter fyrir tólf á hádegi og lagt af stað til baka laust fyrir klukkan hálf eitt. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður í ein- staka tilfellum mögulegt að hnika til brottfarartíma, en semja þarf fyrirfram um slíkt við Finnbjörn Bjarnason, afgreiðslumann Íslandsflugs á Bíldudal. Flugfélagið Jórvík mun annast þetta flug. Félagið er undirverktaki Íslandsflugs sem gert hefur samning um sjúkra- og áætlunarflug við íslenska ríkið. Í þessar ferðir verða notaðar vélar af gerð- unum Cessna 402 og Cessna 404. Knúið á um byggingu íþróttahúss á Suðureyri Grunnskólinn og íþróttafél- agið búa við „ófremdarástand“ „Bæjarstjórn á að vera full- ljóst það ófremdarástand sem grunnskólinn og íþróttafélag- ið búa við varðandi aðstöðu fyrir íþróttakennslu, þar sem þetta mál var mikið rætt í ný- afstaðinni kosningabaráttu. Þá höfðu ýmsir aðilar sem nú hafa hlotið kosningu uppi orð um að þetta mál fengi skjóta afgreiðslu ef þeir fengju ein- hverju um það ráðið að afstöð- num kosningum.“ Þetta segir m.a. í bréfi til bæjaryfirvalda frá fulltrúum foreldraráðs og félaga á Suðureyri. Í bréfinu er óskað eftir upplýsingum um gang mála vegna íþróttahúss. „Ekki hægt „að líta á þetta sem eitthvert kvein í óánægð- um hluta bæjarbúa heldur ber sveitarfélaginu lagaleg skylda til þess að hafa þetta í lagi. Getum við því ekki séð að hægt sé að víkja sér undan því að ráða bót á þessu máli sem fyrst“, segir í bréfinu. Í bókun bæjarráðs Ísafjarð- arbæjar, þar sem erindi þetta var tekið fyrir, er bent á á að fjárhagsáætlun sé í vinnslu og forgangsröðun ekki lokið.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.