Bæjarins besta - 27.11.2002, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002
kona vikunnar
Nafn: Guðrún K. Guðmannsdóttir.
Fædd/-ur, hvar og hvenær: Á Vindhæli A-Húnavatns-
sýslu 11. maí 1953.
Atvinna: Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
Fjölskylda: Maki er Bjarni Jóhannsson og eigum við
tvær dætur, tvo tengdasyni og einn dótturson.
Helstu áhugamál: Ættfræði.
Bifreið: Subaru Forrester.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Subaru Forrester.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill?
Bóndi.
Uppáhalds matur? Þverskorin ýsa með kartöflum
og smjöri.
Versti matur sem þú hefur smakkað? Kalkún.
Uppáhalds drykkur? Kaffi.
Uppáhalds tónlist? Öll sígild tónlist.
Uppáhalds íþróttamaður eða félag? Veit ekki.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Fréttir.
Uppáhalds vefsíðan? bb.is
Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Stella í orlofi.
Fallegasti staður hérlendis? Rauðisandur.
Fallegasti staður erlendis? Rínardalurinn.
Ertu hjátrúarfull(ur)? Já.
Uppáhalds heimilistækið? Uppþvottavélin.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Lesa
skemmtilegar bækur.
Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna?
Óheiðarleiki.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Kúri undir
sæng með spennandi bók.
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt-
ast? Já.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í?
Veit ekki.
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir
þú breyta? Ég myndi reyna að fá ungt fólk til að setj-
ast hér að og kynna því hve gott er að búa hér og ala
börnin sín upp hér.
Lífsmottó? Njóta hvers dags eins og hann væri sá
síðasti.
Þverskorin
ýsa með
kartöflum
og smjöri í
uppáhaldi
Sælkeri vikunnar
er Edda Björg Kristmundsdóttir,
bókasafnsfræðingur á Ísafirði
Marbella kjúklingur
Ég tók að mér að hlaupa í skarðið fyrir Ingibjörgu ensku-
kennara við Menntaskólann á Ísafirði, sem var stödd á
Spáni, þannig að mér fannst við hæfi að koma með uppskrift
af þessum spænskættaða kjúklingarétti. Þetta er frábær
gestaréttur því að hann er látinn marinerast í nokkra klukku-
tíma og því er ekkert nema að stinga honum í ofninn áður en
gestirnir koma.
Efni:
2-4 kjúklingar, hlutaðir niður
1 hvítlaukur, smátt saxaður
½ dl oregano
salt og nýmalaður svartur pipar
1-1½ dl ólífuolía
2½ dl steinlausar sveskjur
1-1½ dl ólífur
1 krukka kapers + soðið úr krukkunni
6 lárviðarlauf
1-1½ dl steinselja, smátt söxuð
1 dl hvítvín
1 dl púðursykur
Aðferð:
Setjið kjúklingabitana í stóra skál. Blandið öllu nema
hvítvíninu og púðursykrinum saman og hellið yfir bitana.
Látið standa í ísskáp í 10 klst. Hrærið og snúið kjúklinga-
bitunum með reglulegu millibili. Setjið í eldfast form.
Hitið ofninn í 180-200 gráður og bakið kjúklingaréttinn í
30 mínútur. Lækkið hitann niður í 150 gráður og ausið saf-
anum reglulega yfir meðan á steikingu stendur. Hrærið
saman hvítvínið og púðursykurinn og hellið því yfir stuttu
áður en kjúklingarétturinn er tilbúinn. Hvers kyns salöt
með fetaosti og ólífuolíu/balsamico-ediki passa vel með
þessum rétti.
Nýr vegur um Arnkötludal milli Stranda og Reykhólasveitar
Talinn kosta milli 600
og 700 milljónir króna
Lokið er undirbúningsat-
hugunum á vegagerð milli
Hólmavíkur og Gilsfjarðar um
Arnkötludal og Gautsdal. Um
yrði að ræða 24,6 km veg í
flokki C1, sem er vegur í
hæsta gæðaflokki. Athuganir
þessar lét einkahlutafélagið
Leið vinna fyrir þann styrk
sem stjórn Byggðastofnunar
samþykkti í sumar að veita
félaginu.
Í minnisblaði Línuhönnun-
ar hf., sem annaðist athugan-
irnar, kemur fram að áætlaður
kostnaður við alla þætti vegar-
lagningarinnar er um 686
milljónir króna. Í þeirri fjár-
hæð er m.a. innifalinn undir-
búningur, hönnun, verktaka-
kostnaður og eftirlit, auk þess
sem í tölunni er gert ráð fyrir
15% óvissu. Kostnaður við
hina eiginlegu vegagerð, þ.e.
verktakakostnaður, er áætlað-
ur um 527 milljónir króna.
Heildarbreidd klæðningar á
veginum yrði 6,5 m, langhalli
færi hvergi yfir 6% og hönn-
unarhraði yrði 90 km/klst.
Áætlunin er gerð samkvæmt
verkþáttaskrá Vegagerðarinn-
ar og einingarverð eru miðuð
við verðlag í október 2002.
Vegur þessi myndi stytta
mjög vegalengdina frá norður-
svæðum Vestfjarða og suður
á land. Margt hefur á síðustu
misserum verið fjallað um þá
kosti sem vænlegir teljast í
samgöngubótum Vestfirð-
inga. Þar má nefna, að fyrir
tæpu ári héldu fulltrúar Bol-
ungarvíkurkaupstaðar, Ísa-
fjarðarbæjar og Súðavíkur-
hrepps samráðsfund um sam-
göngumál á Vestfjörðum, og
mæltu þeir meðal annars ein-
dregið með því „að vegur
verði lagður um Arnkötludal
milli Stranda og Reykhóla-
sveitar“.
Að lokinni ofangreindri
undirbúningsvinnu liggur
næst fyrir að afla fjár til frekari
athugana og er nú unnið að
aukningu hlutafjár og öflun
lánsfjár. Öllum sem áhuga
hafa er heimilt að gerast hlut-
hafar í Leið ehf.
Einkahlutafélagið Leið var
stofnað í Bolungarvík fyrir
tæpu ári að frumkvæði Jónas-
ar Guðmundssonar sýslu-
manns, sem hefur lengi barist
fyrir bættum vegsamgöngum
fyrir Vestfirðinga. Félaginu er
ætlað að beita sér fyrir fram-
þróun í samgöngum á landi
með því m.a. að annast einka-
fjármögnun og rekstur ann-
arra samgöngumannvirkja.
Ljósakrossar
Gjaldið fyrir að stinga ljósakrossi í sam-
band er 1.000 krónur. Kirkjugarðsvörðurinn
á Ísafirði, Ingi Jóhannesson, sími 456 3560,
tekur á móti gjaldinu.
Kirkjugarðar Ísafjarðar.
Listasýning Boggu í Súðavík
Breytir litlitlum gróðri í
litskrúðugar skreytingar
Vilborg Arnarsdóttir, sem
betur er þekkt undir nafninu
Bogga, hélt listasýningu í
þjónustumiðstöðinni í
Súðavík á laugardag. Sýn-
ingin var vel sótt af Súðvík-
ingum og nærsveitarmönn-
um. Þar voru meðal annars
til sýnis blómaskreytingar úr
villtum plöntum, þurrkuðum
garðagróðri og lituðum blóm-
um úr náttúru Súðavíkur. Um-
gerðir skreytinganna voru
gamlar, ónothæfar grammó-
fónplötur sem hafa verið mót-
aðar á ýmsa vegu.
Hugmynd Vilborgar með
þessu er að sýna fram á
möguleikana á því að koma
ónothæfum hlutum í nýtt
hlutverk og breyta litlitlum
gróðri, sem naumast verður
tekið eftir, í litskrúðugar
skreytingar.
Einnig sýndi Bogga andlits-
myndir af fólki á norðanverð-
um Vestfjörðum, teiknaðar á
árunum 1991-93, ásamt nýj-
um myndum. Teikningarnar
verða uppi í þjónustumiðstöð-
inni í Súðavík til 29. nóvem-
ber. Þetta er fyrsta einka-
sýning Vilborgar.
Listakonan Bogga við blómaskreytingar sínar.