Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.11.2002, Qupperneq 20

Bæjarins besta - 27.11.2002, Qupperneq 20
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk Stuttar af bb.isÁtta milljón króna höfuðstóll í Styrktarsjóði vélstjóra í Ísafjarðarbæ Allar eignir Vélstjórafélags Ísa- fjarðar lagðar fram sem stofnfé Eignir Vélstjórafélags Ísa- fjarðar, sem nú hefur verið lagt niður með sameiningu við Vélstjórafélag Íslands, eru stofnfé Styrktarsjóðs vélstjóra í Ísafjarðarbæ, sem stofnaður var á laugardag. Eignir félags- ins við slit þess námu átta milljónum króna og veitti Ól- ína Þorvarðardóttir, skóla- meistari Menntaskólans á Ísa- firði, stofnskrá styrktarsjóðs- ins viðtöku úr höndum Guð- mundar Þórs Kristjánssonar, síðasta formanns Vélstjórafé- lags Ísafjarðar, og Helga Lax- Skipverjar á Andey ÍS 440, ísrækjutogara HG, vinna hér kappsamlega að viðgerð á trolli skipsins, sem rifnaði illa í síðustu veiðiferð. Þrátt fyrir óhappið gekk veiðin vel og var landað úr skipinu á Ísafirði rúmlega 30 tonnum af góðri rækju sem fékkst á Halasvæðinu. Eftir að við- gerð á trollinu lauk á föstudag hélt skipið rakleitt til veiða á ný. Gert við troll Andeyjar dal, formanns Vélstjórafélags Íslands. Afhendingin fór fram í Verkmenntahúsi Menntaskól- ans á Ísafirði. Þar var síðari hluti hátíðarhaldanna í tilefni þess að öld er liðin frá því að fyrst var sett vél í íslenskan fiskibát, sexæringinn Stanley á Ísafirði. Um þessar mundir er þess ekki aðeins minnst, að hundr- að ár eru frá því að fyrsta vélin var sett í íslenskan bát. Hér er einnig um að ræða hundrað ára afmæli vélstjóra- stéttarinnar á Íslandi. Vélstjórafélag Ísafjarðar var stofnað árið 1937 og sagði í lögum þess, að yrði félagið lagt niður skyldu eignir þess ganga til menntunar vélstjóra í héraði. Stofnun styrktar- sjóðsins er lokahnykkurinn á sameiningarferli félagsins við Vélstjórafélag Íslands, sem tekið hefur nokkur ár. Guð- mundur Þór Kristjánsson var formaður Vélstjórafélags Ísa- fjarðar síðustu fjögur ár þess og var eitt af helstu viðfangs- efnum hans að sameina félag- ið Vélstjórafélagi Íslands. Í stofnskrá Styrktarsjóðs vél- stjóra í Ísafjarðarbæ segir m.a.: Stofnandi sjóðsins er Vél- stjórafélag Íslands og leggur félagið fram stofnfé sem er 8 milljónir króna, sem er óskerðanlegur höfuðstóll sjóðsins. Markmið sjóðsins er að styrkja og efla kennslu á sviði vélstjórnar við Mennta- skólann á Ísafirði. Markmið- um sínum skal sjóðurinn m.a. ná með eftirfarandi hætti: Efla kynningu á vélstjórnar- greinum við Menntaskólann á Ísafirði. Styrkja kaup á kenn- slugögnum og búnaði til nota við kennslu í vélstjórnargrein- um við Menntaskólann á Ísa- firði. Efla samstarf við aðrar menntastofnanir sem hafa með höndum kennslu í vél- stjórnargreinum. Efla símenn- tun á sviði vélstjórnargreina í samstarfi við fyrirtæki og aðr- ar menntastofnanir. Starfsmenn Vegagerðarinn- ar á Ísafirði settu í síðustu viku upp hlið beggja vegna á vegunum um Óshlíð og Súða- víkurhlíð. Hér er um járn- grindahlið að ræða sem verða notuð til þess að loka vegun- um ef mikil snjóflóðahætta skapast. Hingað til hafa verið notuð ýmis vegavinnutæki, heflar, gröfur og slíkt til að loka vegunum. Bíræfnir öku- menn hafa átt það til að hunsa lokunina og fara framhjá tálm- unum. Þess eru dæmi að menn sem slíkt hafa gert hafa lent í vandræðum, auk þess sem þeir stofna björgunarmönnum í hættu, auk sjálfra sín, ef þeir sitja fastir þar sem bráð flóða- hætta er eða lenda í snjóflóði. „Hugmyndin er sú, að þegar svonefnt varúðarástand skap- ast, þ.e. þegar við teljum að hætta sé á snjóflóðum, þá verði sett upp varúðarskilti á hliðin við hvorn enda. Veg- farendur vita þá af hættunni þó að veginum sé ekki lokað. Þegar snjóflóð hafa fallið og hættuástand er komið verður veginum alveg lokað með þessum hliðum“, segir Geir Sigurðsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði. Auknar öryggisráðstafanir á Óshlíð og Súðavíkurhlíð Hliðum lokað þegar bráð hætta er á snjóflóðum Skábraut á vistina Gerð hefur verið hellu- lögð skábraut við inn- gang heimavistar Menntaskólans á Ísafirði og bætir hún aðgengi fatlaðra að heimavistinni. Verktakafyrirtækið Ásel á Ísafirði annaðist verkið. Einnig er verið að setja upp lyftu í aðalbyggingu skólans svo að þeir sem erfitt eiga með að ganga tröppur komist með auðveldari hætti leiðar sinnar innan skólans. Tregt rennsli í Sundahöfn Kristján Andri Guðjóns- son, sjómaður á Ísafirði, sem á sæti í hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar, vakti máls á því á síðasta stjórnarfundi að vatns- rennsli væri lítið á Sundahafnarsvæðinu á Ísafirði. „Þar sem ég landa alltaf er svolítið kraftleysi, að minnsta kosti er lítill kraftur miðað við hafnirnar í Bolungar- vík og á Flateyri. Hafnar- stjóri sagðist myndu athuga málið í samráði við áhaldahús og tækni- deild bæjarins“, segir Kristján Andri. Fótaaðgerðastofan Silfá, sem fram til þessa hefur verið til húsa að Túngötu 3 á Ísafirði, er flutt yfir á Hlíf á Torfnesi. Engin breyting verður á starf- semi stofunnar við flutn- inginn í nýtt húsnæði, að sögn eigandans Sigríðar Hreinsdóttur, en hún er löggiltur fótaaðgerða- fræðingur. Á myndinni er Sigríður á nýja staðnum. Silfá flutt yfir á Hlíf Frá afhendingu stofnskrárinnar. F.v. Guðmundur Þór Kristjánsson, Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Laxdal, Guðmundur Einarsson, vélfræðikennari og Friðbjörn Óskarsson, vélstjóri.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.