Bæjarins besta - 02.12.2003, Síða 13
13
á okkar heimili, jólakaka og lagterta. Þessar uppskriftir eru
báðar fengnar hjá mæðrum okkar…en þær bragðast samt
engan veginn eins og hjá þeim! Laufabrauðið er steikt rétt fyrir
jólin þegar börnin og barnabörnin eru komin í jólafrí. Þá
hópast hjörðin við eldhúsborðið hjá okkur og sker út alls kyns
listaverk og húsmóðirin steikir, því laufabrauðið verður að vera
með hangikjötinu á jóladag. Rúgbrauð að hætti heimilisins er
síðan undirbúið fyrir skötuveisluna á Þorláksmessu; seytt í 16
tíma í 100 gráðu heitum ofni. Þegar svo 23. desember rennur
upp er blessuð skatan sett í pott og fjörmikill ástvinahópur
kemur og snæðir saman. Ekki eru allir jafn hrifnir af lyktinni, en
einhvern veginn er það nú svo að hún tilheyrir þessum degi og
er algjörlega ómissandi. Hangikjötið er síðan soðið á eftir svo
lyktin af því ilmar um allt hús og þá fer nú rétti jólailmurinn að
færast yfir. Það skapast líka einstök stemmning þegar við
hlýðum á lestur jólakveðja í Ríkisútvarpinu þennan dag.
Húsmóðirin fer helst ekki út úr húsi því það er svo notalegt að
hlusta á þulina lesa kveðjurnar. Stundum heyrum við nöfnin
okkar nefnd og þá trilla tár niður kinnar af gleði.
Aðfangadagur rennur upp. Um hádegi er mikið líf og fjör hjá
okkur. Fjölskyldan er alltaf saman þá. Möndlugrauturinn, sem
er dæmigerður jólahrísgrjónagrautur með saft, sveitarjóma og
kanelsykri, er borinn á borð. Mikill spenningur liggur í loftinum
um hver fær möndluna. Jólasveinar koma með gauragangi og
kætast með heimilisfólki og færa börnunum gjafir. Að því loknu
er hamborgarahryggurinn settur í pott og allt gert klárt fyrir
kvöldverð. Ljúf tónlist berst um húsið og við bíðum eftir að
heyra kirkjuklukkurnar frá kirkjunni okkar hringja jólin inn. Alltaf
er farið til aftansöngs á aðfangadagskvöld, eftir það er farið í
kirkjugarðinn þar sem eru tendruð kertaljós hjá leiðum ástvina
Lífsmottó okkar er að jólin séu fagnaðarhátíð. Bjart skal vera í
hverju hjarta, kyrrlát og hátíðleg gleði, sem sönn heimili
skapa. Jólatré, jólakerti og jólagjafir eftir getu hvers og eins, en
aðeins á jólanótt eða jóladagskvöld og ekki oftar því annars
verður enginn hátíðleiki. Viljum við að lokum senda öllum
hátíðarkveðjur og biðja Guð um að gefa öllum gleðileg jól.
Jólanótt
Þú kemur ennþá, kæra jólanótt.
Þú kemur enn með birtu, frið og yl.
Þú veitir ennþá veikum nýjan þrótt
og vermir þá, sem ennþá finna til.