Bæjarins besta - 02.12.2003, Side 18
18
Inn úr kuldanum
Á aðventunni er fátt skemmtilegra en að upplifa jóla-
stemmninguna í miðbænum; rölta um göturnar, skoða
jólaskreytingarnar í búðargluggunum og jafnvel kaupa
fáeinar jólagjafir. Oftar en ekki hittast vinir og kunningjar á
förnum vegi og er þá margt spjallað í skini jólaljósanna. Ef
kuldinn bítur kinn er tilvalið að setjast inn á kaffihús en með
smá fyrirhyggjusemi er einnig hægt að bjóða upp á heitt
tepúns í rólegheitum heima í stofu. Uppskriftin af tepúnsinu
er fengin hjá Guðlaugu Stefánsdóttur á Ísafirði sem segist
gjarnan eiga tepúns í ískápnum á þessum árstíma og hita
það upp eftir þörfum. Hún segir einnig tilvalið að bera það
fram með biscotti og kryddbrauði enda sé hægt að gera
útbúa bæði með góðum fyrirvara líkt og tepúnsið.
Kryddbrauð
3 dl rúsínur • 3 dl vatn • 2 dl sykur • 2 msk smjörlíki • 100 gr súkkat
1 tsk kanill • 1/2 tsk múskat • 1/2 tsk negull • 1/2 tsk natron • 1 tsk
lyftiduft • 4 1/2 dl hveiti
Vatn, rúsínur, sykur og smjörlíki soðið í 5 mínútur. Kælt. Þurrefnin sigtuð
saman við. Deigið hrært samfellt ásamt súkkati. Bakað í vel smurðu og
brauðmylsnustráðu jólakökumóti við 180° C í 40–50 mín.
Biscotti
2 bollar hveiti • 1 bolli sykur • 1/2 tsk lyftiduft • 1/2 tsk matarsóti
1/2 tsk salt • 1/2 tsk kanill • 1/4 tsk negull • 1/4 bolli sterkt
expressókaffi, kælt (kannski þarf meira) • 1 1/2 msk mjólk • 1 stórt
egg • 1 tsk vanillusykur • 100 g valhnetur, heslihnetur eða möndlur,
gróft saxað • 150 gr suðusúkkulaði, brytjað • 3/4 bollar þurrkuð
hindiber, kirsuber eða trönuber (má sleppa)
Þurrefnum er blandað saman í hrærivélarskál. Vökva blandað saman við
og blandan hrærð vel. Ef deigið er of þurrt, bætið þá við kaffi. Hnetum,
súkkulaði og berjum blandað saman við. Tekið úr skálinni og hnoðað upp
með hveiti. Skipt í tvennt og búnar til lengjur sem síðan eru settar á plötu
með bökunarpappír. Bakað við 170°C í 20–30
mín. Tekið úr ofninum og kælt. Lengjurnar
skornar í sneiðar og settar aftur á plötu og
sárið látið snúa upp. Bakað aftur í 6–8 mín. við
150°C. Kökurnar eiga að vera harðar og það
er líka afskaplega gott að dýfa þeim í kaffi.
Tepúns
4 bollar vatn • 4 tsk Earl Grey te (laust ekki í pokum) •
3–4 kanilstangir • 1 tsk negulnaglar
Þegar vatnið er soðið er te, kanil og negul bætt út í. Strax að því
loknu er potturinn tekinn af hellunni, lok sett á hann og látið bíða í
5 mínútur. Að því búnu er teblandan sigtuð.
2 bollar appelsínu Trópí • safi úr einni stórri sítrónu • 3/4 bolli
sykur • 3 bollar vatn
Appelsínusafinn, sítrónusafinn, sykurinn og vatnið sett í pott og
suðan látin koma upp á blöndunni. Hún er síðan kæld og blönd-
unum tveimur blandað saman. Tepúnsið má ýmist bera fram heitt
eða kalt.