Bæjarins besta - 02.12.2003, Side 30
30
Einfaldir, rauðir jóladúkar og munnþurrkur í stíl
standa alltaf fyrir sínu, saumað úr efni sem Júlíana
keypti í Baðstofunni á Ísafirði. Rauðu borðarnir
undir eplunum á matardiskunum eru notaðir til að
binda utan um munnþurrkur en Júlíönu fannst
ekkert síðra að nota þá óbundna.
Silfur er allsráðandi á nýársborðinu enda segir
Júlíana að henni hafi allaf fundist silfur vera litur
nýársins. Fjólublátt eða blátt með, segir hún, að sé
allaf flott en nú heldur hún sig samt við dumbrauða
litinn sem er ekki síðri. Júlíana lagði rautt vírnet eftir
borðinu endilöngu og fléttaði berjalengju og seríu
saman við. Vírnetið má nota á ýmsa vegu, t.d. ofan
á vasa (ef vasinn er of víður fyrir 2–3 blóm þá
standa þau beint með netinu). Þar sem skreytingar
mega helst ekki vera of háar á matarborðinu er
fallegt að hafa 3–4 litlar skreytingar hlið við hlið í
stað stærri skreytinga en það má líka setja litla skál
með vatni við hvern disk og láta í eitt blóm, t.d. rós,
með smá englahári. Til að fullkomna verkið er
döggvað rósarblað eða laufblað með nafni
matargests nælt í hverja munnþurrku. Önnur
skemmtileg útfærsla, segir Júlíana að lokum, er að
setja munnþurrku með seríu í vínglas við hvern
disk og njóta síðan þeirrar einstöku stemmningar
sem skapast við fallega skreytt hátíðarborð.
Borðbúnaðurinn sem notaður er á myndunum fæst hjá Blóma-
turninum á Ísafirði. Matardiskarnir á jólaborðinu eru úr svokölluðu
Hersianstelli, staup og hnífapör frá Broste Copenhagen, sem og
litli jólapokinn. Vatnskanna, glös, kertastaup og epli eru frá Sia.
Borðbúnaðurinn á nýársborðinu er frá Broste Copenhagen, þ.e.
matarstell, hnífapör, glös, staup og kanna. Hreindýrin eru í
einkaeign en verða seld í versluninni í framtíðinni.