Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.12.2003, Page 32

Bæjarins besta - 02.12.2003, Page 32
32 grænlenski galdramaðurinn, lífshlaup Ólafs Guðmundssonar frá Breiðavík, og margt fleira. Auk þess kvikmyndin á DVD-diski. Það er eins gott að tryggja sér eintök strax, því ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Séra Baldur, Qupersímán, Saltstorkin bros, Þegar himinninn grætur, Frá Bjargtöngum að Djúpi, Mannlíf og saga fyrir vestan Í faðmi hafsins Kæru Vestfirðingar og aðrir vandaðir landsmenn! Gerið jólahátíðina ennþá gleðilegri með bókunum ykkar frá Vestfirska forlaginu. Gleðileg jól. Bækurnar frá Vestfirska forlaginu eru bækurnar ykkar. Já, fjölbreytt, fróðleg og spennandi bókaflóra, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Ólína Þorvarðardóttir Eftirminnilegasta jólagjöfin mín var falleg dúkka sem mamma gaf mér þegar ég var 8 ára. Hún var ljóshærð í rauðum kjól með fallega slaufu um mittið. Hún var samstundis nefnd Slaufa. Systir mín Halldóra fékk aðra eins, en sú var í bláum kjól og hlaut af einhverjum ástæðum hið frumlega nafn „Gúmmíplast“. Mér er Slaufa afar hugleikin af tveimur ástæðum. Annars vegar út af rauða kjólnum. Sjálf fékk ég aldrei að fara í rauð föt vegna þess að það þótti ekki eiga við rauða hárið mitt sem á þessum árum var bæði þykkt og strítt. Hins vegar er mér hún minnisstæð vegna atviks sem varð nokkrum dögum seinna, og ég gleymi ekki meðan ég lifi. Einn daginn þegar ég kem heim úr skólanum blasir við mér hryggðarmynd. Slaufa mín liggur á rúminu og búið að klippa fallega hárið hennar af höfðinu þannig að ekkert er eftir nema fáeinar lýjur út í loftið. Halldóra systir mín hafði þá verið í hárgreiðsluleik með dúkk- urnar báðar og af ótta við að „klipping“ myndi valda óafturkræfum skaða, ákvað hún að klippa mína dúkku frekar en sína. Áfallið sem ég fékk var ólýsanlegt. Hágrátandi tók ég Slaufu upp og hljóp með hana til mömmu, orðlaus af geðshræringu. Mamma leit á Halldóru, sem stóð með skömmustulegt, en líka svolítið meinfýsið vandræðaglott bak við hurð. Hún hugsaði sig um svolitla stund, tók þá dúkkuna hennar, klæddi hana þegjandi úr bláa kjólnum og færði í þann rauða. Rétti mér hana svo og sagði: „Þetta er hún Slaufa þín. Halldóra verður sjálf að eiga dúkkuna sem hún klippti.“ Af einhverjum ástæðum tók ég þó ekki gleði mína til fulls - því þó að dúkkurnar væru nákvæmlega eins, þá vissi ég að það var Slaufa sem lá hárlaus í bláum kjól neðst í dótakassanum því auðvitað vildi Halldóra systir ekki sjá hana eftir þetta. Það endaði með því að fáum kvöldum síðar læddist ég að dótakassanum, dró litlu hryggðarmyndina upp úr honum og stillti henni á koddann minn. Þar fékk hún að sitja eftirleiðis. eftirm innilegasta jólagjöfin Hlynur Snorrason Þegar ég hugsa til baka þá eru það ekki endilega dýrustu og fyrirferða- mestu jólagjafirnar sem standa uppúr. Mig minnir að ég hafi verið um 10 ára gamall þegar pabbi og mamma gáfu mér pínulítið útvarpstæki. Þetta hefur væntanlega verið árið 1973 og þá voru 10 ár í að aðrar íslenskar útvarps- stöðvar en gamla „Gufan, Rás 1“, yrðu til. Mér þótti mikið til þessarar jólagjafar koma og hlustaði talsvert á þetta litla útvarpstæki sem var knúið rafhlöðum. Rafhlöðurnar geymdi ég á ofninum á milli þess sem ég notaði þær í útvarpið, til þess að nýta þær betur. Uppáhaldsþættirnir, sem ég hlustaði á í þessu litla tæki, voru aðallega Lög unga fólksins, Óskalög sjúklinga og Morgunsaga barnanna. Ég á þetta litla útvarp ennþá, en það virkar reyndar ekki lengur. Þetta þótti mjög vegleg jólagjöf. Síðan eru liðin 30 ár og 10 ára gömul börn munu sennilega hlægja sig máttlaus af þessari ljúfsáru endurminningu. Nú eru gildin önnur, ekki satt? ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.