Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.02.2001, Page 12

Bæjarins besta - 21.02.2001, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2001 Sjónarspil kringum Orkubú Vestfjarða Bryndís Friðgeirsdóttir, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ skrifar ,,Vandann í félags- lega húsnæðis- kerfinu á að leysa á landsvísu“ Mikil umræða hefur farið fram um Orkubú Vestfjarða meðal Vestfirðinga að undan- förnu og þá sérstaklega meðal íbúa Ísafjarðarbæjar. Í þeirri umræðu hefur m.a. komið fram, að almenningur saknar þátttöku sveitarstjórnamanna. Þó ekki hafi mikið heyrst í okkur sveitarstjórnarmönnum í fjölmiðlum um málið höfum við þó fundað og rætt mikið um málið. Ég fullyrði að við erum þó enn á byrjunarreit, þ.e. okkur hefur ekki orðið ágengt í samningum við ríkisvaldið frekar en í öðrum málum sem snerta samskipti ríkis og sveit- arfélaga. Reynsla okkar í þeim samskiptum hefur vakið þá tilfinningu meðal sveitar- stjórnarmanna, að helsti óvin- ur sveitarfélaga í dag sé ríkis- valdið. Ofurvaldið Í stuttu málið verður hér greint frá því, hvernig samn- ingar um sölu á hlut sveitarfé- laga í Orkubúi Vestfjarða horfa við sveitarstjórnar- manni. Sú greining er ekki algild um alla sveitarstjórnar- menn og skiptir þá máli uppi á hvaða hól viðkomandi stendur og hvert hann beinir sjónum sínum. Þótt við sveit- arstjórnarmenn höfum ekki tekið slaginn með almenningi í fjölmiðlum er það ekki vegna þess að við séum öll sammála. Ég hef t.d. ekki viljað hingað til fljúgast á við félaga mína í bæjarstjórn um hvað sé rétt og rangt. Til þess vantar okkur einfaldlega fleiri staðreyndir eins og t.d. um virkjunarrétt fyrirtækisins o.fl. því að orku- þörf mun aukast í framtíðinni. Ég hef heldur ekki upplýst þá skoðun mína í fjölmiðlum, að ég greiddi atkvæði á móti því að breyta rekstrarformi fyrir- tækisins í hlutafélagsform. Ég virði samt skoðanir félaga minna og þeir væntanlega mína. Nú sé ég mig hins vegar knúna til að tjá mig þó enn vanti marktækar upplýsingar um málið. Ég er ekki með þessari grein að saka fulltrúa okkar í viðræðunefnd við rík- isvaldið um að leyna okkur upplýsingum, heldur rök- styðja þá skoðun mína að öll- um mátti ljóst vera að við eig- um við ofurefli að etja, þ.e. ríkisvaldið, og engu hægt að treysta nema því sem er und- irritað og stimplað í bak og fyrir. Ofurvaldið lagði upp með ákveðna niðurstöðu og heldur fast við hana: Við ákveðum hvað þið gerið við peningana sem frúin í Ham- borg sendir ykkur! Skilyrt Vest- fjarðaaðstoð Þegar bæjarstjórn Ísafjarð- arbæjar fjallaði fyrst um málið var formið og farvegur það sem skipti mestu máli, þ.e. hvert væri hlutverk Fjórð- ungssambandsins, stjórnar OV og sveitarstjórna. Þó mátti heyra einstaka fulltrúa tala um merg málsins sem var og er enn: „Ég vil ekki selja“, „ég vil selja“ eða „ég hef ekki nægar upplýsingar til að taka ákvörðun“. Þeir sem sögðust ekki vilja selja voru sakaðir um ábyrgð- arleysi í fjármálum, þar sem staða sveitarsjóða væri svo slæm að ekki mætti slá á út- rétta hönd ríkisvaldsins sem væri að finna leið til að „rétta Vestfirðingum meira fé en þeir ættu skilið að fá“. Þeim sem vildu fá frekari upplýsingar var sagt þær fengjust ekki, allt væri komið fram sem þyrfti að vita. Þeir sem vildu selja sögðust taka þá ákvörð- un til þess að koma í veg fyrir að félagsmálaráðuneytið kæmi vestur og slökkti á öll- um ljósastaurum þar sem brátt yrði ekkert rekstrarfé aflögu til að láta loga á þeim. Mér er til efs að það ágæta ráðuneyti nenni að hefja þá vinnu að slökkva ljós víða á landsbyggðinni, því það eru ekki aðeins sveitarsjóðir á Vestfjörðum sem glíma við bága fjárhagsstöðu. Það ætti frekar að vera kappsmál fyrir ráðuneytið að ljós loguðu skært sem víðast um landið og framkvæma áætlanir þar að lútandi fyrir landið allt. Hlutafélag strax Sl. vor var mikill þrýstingur á sveitarstjórnarmenn að taka skjótt ákvörðun um að breyta rekstrarformi Orkubúsins úr sameignarfélagsformi í hluta- félag. Helstu rökin fyrir hinum mikla flýti sem þurfti að hafa við voru þau, að ný orkulög tækju brátt gildi og í þeim væri ákvæði um að öllum orkufyrirtækjum landsins yrði breytt í hlutafélög. Eigendur hefðu hvort sem er ekkert um málið að segja, þetta yrði stjórnvaldsaðgerð í skjóli til- skipunar frá Evrópuvaldinu. Nú hefur okkur borist til eyrna, eins og svo margt í þessu máli, að þetta ákvæði yrði ekki haft inni. Þeir sem sögðu að ekkert lægi á, orku- lögin tækju ekki gildi fyrr en um mitt næsta ár og það vantaði undirritaðaðar yfirlýs- ingar í þessum efnum, fengu önnur vararök frá stjórnend- um hraðlestarinnar. Þau vara- rök voru þau, að Vesturbyggð óskaði eftir því að selja sinn hlut sökum bágrar fjárhags- stöðu og ekki mættu önnur sveitarfélög á Vestfjörðum standa í vegi fyrir því. Þeir sem ekki kaupa þessi rök velta því fyrir sér, hvort Ísafjarðarbær þurfi á næsta kjörtímabili að taka ákvarð- anir í nýja stóra kjördæminu með tillti til t.d. hagsmuna Akraness í skjóli samvinnu sveitarfélaga. Það er út af fyrir sig efni í aðra grein sem gæti heitið Sundrung sveitarfélaga fremur en Samvinna sveitar- félaga gegn ríkisvaldinu Verðið skilyrt Viðræðuefndir voru skipað- ar, eins og gengur, sem í áttu sæti fulltrúar ríkisvalds og sveitarfélaga. Það fyrsta sem þurfti að gera var að hengja verðmiða á fyrirtækið. Okkur var strax ljóst í upphafi, að það verð sem búið var til var háð skilyrðum. Félagslega íbúðakerfið var inni í verðinu, þ.e. hluti af andvirði söluverðs á hlut Orkubúsins væri tekinn upp í skuldir í félagslega íbúðakerfinu og til að koma íbúðunum niður í markaðs- verð. Rökin fyrir verðlagn- ingu Orkubúsins voru þau, að ríkisvaldið væri að finna leið til þess að rétta Vestfirðingum fjármagn úr ríkissjóði, svo trú- legt sem það svo er. Vestfirðingum þvegið bak við eyrun Þegar talað var við þing- menn Vestfjarða um málið þá létu þeir sér fátt um finnast. Þeir sökuðu sveitarstjórnar- menn um ábyrgðarleysi, við hefðum látið byggja svo mikið af félagslegu íbúðarhúsnæði til að halda hjólunum gang- andi og skapa verktökum vinnu og svo fengist enginn til að kaupa þetta rándýra húsnæði. Margt getur verið satt í þessum efnum og ég hef ekki enn heyrt sveitarstjórnar- menn koma sér undan ábyrgð í þessum efnum. En það vekur furðu hjá hugsandi fólki, að einungis Vestfirðir skulu vera teknir fyrir og skrúbbaðir bak við eyrun eins og óþekkir krakkar. Tekið skal fram, að sum sveitarfélög á Vestfjörðum eiga ekki í fjárhagsvanda með félagslega íbúðakerfið. Þessi sami vandi í félagslega íbúða- kerfinu er víða í sveitarfélög- um landsins og er nefnd á vegum ríkisvaldsins að finna lausn á því máli í samvinnu við sveitarfélögin. Sú nefnd á meðal annars að komast að niðurstöðu um hvernig ríki og sveitarfélög geta skipt á milli sín kostnaði við að koma fé- lagslegum íbúðum niður á markaðsverð og grynnka á skuldahalanum. Flestir eru sammála um að sveitarfélögin geta ekki ein boðið ábyrgð á þeim kostnaði með þeim tekjustofnum sem þeim eru skammtaðir af ríkisvaldinu. Það kemur því spánskt fyrir sjónir, að mitt ofan í vinnu nefndarinnar skuli ríkið koma með þessa sértæku „vestfirsku aðstoð“. Hvað geta hin sveitarfélögin gert, sem ekkert Orkubú eiga til að selja? Sveitarstjórnarmenn og al- menningur hafa vakið athygli á þessu en ekkert hefur verið tekið tilllit til málflutnings þeirra. Félagar okkar í sveit- arstjórnum í landinu og þing- menn utan Vestfjarða, sem hafa áhyggjur af fjárhags- vanda sveitarfélaga, hafa beð- ið okkur hér fyrir vestan að gera þeim ekki þann óleik að trufla þessa vinnu með þeim hætti sem ríkið leggur til. Vandann í félagslega hús- næðiskerfinu á að leysa á landsvísu, því að hann er ekki sérstakt vestfirskt fyrirbæri. Við sveitarstjórnarmenn átt- um að setja skilyrði um að nefnd um endurskoðun fé- lagslega íbúðakerfisins lyki sinni vinnu áður en samninga- viðræður hæfust um sölu á hlut sveitarfélaganna í Orku- búi Vestfjarða. Á leiðarenda eða byrjunarreit? Eftir að öll sveitarfélög höfðu samþykkt hlutafélags- væðinguna var samningurinn kynntur á fundi af fulltrúum okkar sveitarstjórnarmanna í viðræðunefndinni. Á fundin- um kom fram, að félagslega húsnæðiskerfið væri ekki inni (ríkið hefði e.t.v. gleymt að setja það inn). Nú er allt til reiðu, sveitarfélög geta farið að semja við ríkið um kaup á hlut þeirra í Orkubúinu. En viti menn. Ríkið gleym- di engu og allt er inni eins og var í upphafi. Við erum á byrj- unarreit. Félagslega húsnæð- iskerfið var sett inn af hálfu ríkisvaldsins og er þar enn eins og náttúruafl. Enginn fær því breytt þrátt fyrir mótmæli sveitastjórnarmanna og hávær mótmæli íbúanna. Bryndís Friðgeirsdóttir, bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ. Guðrún Anna Tómasdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir. Hamrar, tónleikasalur Tónlistarfélags Ísafjarðar Söngtónleikar Ingunnar Óskar og Guðrúnar Önnu Ingunn Ósk Sturludóttir, mezzósópran og Guðrún Anna Tómasdóttir, píanó- leikari halda söngtónleika í Hömrum, tónleikasal Tón- listarskóla Ísafjarðar þriðju- daginn 27. febrúar kl. 20:30. Á efnisskránni verða þjóð- lagaútsetningar eftir Brah- ms, ljóðasöngvar eftir Granados, Tsjækovskí, Sig- valda Kaldalóns og Atla Heimi Sveinsson og aríur eftir G. Bizet. Ingunn Ósk lauk 8.stigs prófi frá Söngskólanum í Reykjavík, en stundaði síð- an framhaldsnám í London um tveggja ára skeið. Hún inn- ritaðist síðan í Sweelinck tónlistarhákólann í Amster- dam þaðan sem hún lauk prófi frá ljóða-og óperudeild skól- ans vorið1992. Hún hefur haldið fjölda tónleika hér heima og erlendis, sungið með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og komið fram sem einsöngvari með ýmsum kórum. Ingunn fluttist vestur á firði vorið 1995 og er nú búsett í Vigur. Hún hefur kennt söng við Tónlistarskólann á Ísafirði. Guðrún Anna er af ís- firsku bergi brotin. Hún lauk burtfararprófi frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík árið 1985. Þaðan lá leið hennar til Lyon í Frakklandi. Síðan innritaðist hún í Sweelinck tónlistarháskólann og lauk þaðan prófi árið 1992. Hún hefur haldið einleikstón- leika á Ísafirði og í Reykja- vík og komið fram við ýmis tækifæri heima og erlendis. Hún er nú búsett í Amster- dam, þar sem starfar sem píanóleikari og kennari. 08.PM5 19.4.2017, 09:2212

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.