Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.04.2001, Qupperneq 7

Bæjarins besta - 11.04.2001, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 7 áttum þó okkar túttubyssur svo við gætum varist árásum ef setið var fyrir okkur. Ég flutti svo í Eyrargötuna þegar ég var orðin 10 eða 11 ára gömul. Samkvæmt skil- greiningu á landamærum var ég komin í neðri bæinn, a.m.k. að efri mörkum hans. Á þeim tíma var hvort eð var farið að þynnast aðeins í þessum Hlíð- arvegshóp og aldurssamsetn- ing krakkanna orðin örlítið önnur.“ Torfneshúsið óþægilega stórt „Ég gekk hina hefðbundnu menntaleið á Ísafirði, fór í barnaskóla, svo í gagnfræða- skóla og að lokum í mennta- skóla. Mér finnst nokkuð merkilegt að ég hóf bæði mína barnaskólagöngu og mína menntaskólagöngu í sama húsinu. Ég var fyrstu tvö ár mín í Menntaskólanum á Ísa- firði í gamla barnaskólahúsinu og fannst það breyting til hins verra þegar flutt var inn á Torf- nes. Ég veit að margir sam- nemendur mínir voru sam- mála mér. Það varð allt svo óþægilega stórt þegar við fór- um inn á Torfnes.“ Húsakönnun með Elísabetu „Þegar ég útskrifaðist úr MÍ flutti ég til Reykjavíkur og settist á skólabekk í Háskóla Íslands. Ég byrjaði í lögfræði, en féll naumlega á öðru ári. Ef slíkt gerist þurfa menn að endurtaka fyrsta árið. Þegar ég hafði verið að stúdera lög í þrjú ár og hafði bara lokið einu námsári, ákvað ég að söðla um og fór í sagnfræði. Mér sóttist sagnfræðin ansi vel og kláraði BA-námið, auk þess sem ég lauk uppeldis- og kennslufræði til kennslu- réttinda. Núna er ég að taka mastersnámið utan skóla og er einmitt byrjuð að leggja drög að ritgerðinni. Þegar ég var í námi vann ég með Elísabetu Gunnarsdóttir arkitekt að húsakönnun á Ísa- firði. Við athuguðum sögu húsanna og þróun byggðar á Eyrinni. Þegar ég flutti aftur heim að námi loknu fékk ég vinnu á Bókasafninu og skjalasafninu, hálfan daginn á hvorum stað, auk þess að ljúka við húsakönnunina. Vinnufyrirkomulagið hjá mér hefur verið svo til óbreytt síðan ég flutti aftur vestur. Að vísu vinn ég núna fullan vinnudag á skjalasafninu og er því sjaldan á vakt á bóka- safninu.“ Hefur vanist því að búa í safngrip Jóna Símonía býr í Faktors- húsinu í Neðstakaupstað. „Ég var eins og áður sagði að leysa Jón Sigurpálsson af á Byggða- safninu. Hann bjó þá í Fakt- orshúsinu en ég í í foreldra- húsum. Þegar Jón flutti inn á Kúabú sótti ég um að fá húsið í Neðsta á leigu og fékk það. Það tók mig nokkurn tíma að venjast því að búa í safn- grip. Á sumrin koma margir ferðamenn að skoða og kíkja þá gjarnan á glugga. Í fyrstu varð mér nokkuð um þegar ég sat á kvöldin í stofunni og var að horfa á sjónvarp og tók svo allt í einu eftir því að einhver túristi var að horfa inn um gluggann. Núna er ég búin að venjast því að lifa hálfopin- beru lífi á sumrin og finnst mjög gott að búa í Neðsta- kaupstað.“ Steikingatólg og vítissóti Heyrst hefur að Jóna búi til sínar eigin sápur. Hvernig kom það til? „Þó karlinn minn komi oft drullugur heim úr vinnunni varð hann ekki kveikjan að því að ég fór að búa til mínar eigin sápur. Ég keypti oft kaffisápur sem seld- ar voru í Kaffitári í Reykjavík. Þar er kona sem lifir á því að búa til þessar sápur. Kaffið er mjög lykteyðandi og svínvirk- ar þegar maður hefur til dæmis verið að skera lauk. Ég las innihaldslýsinguna á sápunni og sá að það væri nú sennilega ekki svo erfitt að búa þetta til. Við tókum okkur saman fjórar vinkonur í saumaklúbbnum og reyndum að búa til sápu. Þetta var mikið ævintýri og við þurftum að prófa okkur nokkuð áfram. Sápa er gerð þannig að blandað er saman tólg og einhverri annarri feiti, í okkar tilfelli kókosfitu og olíu. Þessi blanda er vermd upp í ákveðin hita og þá settur vítissóti saman við. Svo getur maður sett hvað sem er í sáp- una, kaffi, haframjöl eða ilm- olíur. Síðan er beðið í nokkrar vikur eftir því að vítissótinn hreinsi sig út úr sápunni.“ Alltaf mikið fyrir dútl Jóna býr líka til sín eigin páskaegg. „Það er nokkuð langt síðan að ég eignaðist mót fyrir páskaeggja. Ég var búin að fá leiða á verksmiðju- framleiddum páskaeggjum. Mér fannst þau öll vera ná- kvæmlega eins og fannst framleiðendurnir heldur nískir á innmatinn. Ég ákvað því fyrir nokkru að prófa að búa til mín eigin egg. Að mörgu þarf að gæta þeg- ar búið er til páskaegg. Eftir miklar prófanir komst ég að því að heppilegast var að nota ákveðna blöndu af rjóma- súkkulaði og súkkulíki. Það tók mig síðan svolítinn tíma að finna rétta þykkt í eggin. Mesta vandamálið er þó ef- laust að ná súkkulaðinu úr mótunum þegar það hefur harðnað. Það vill oft springa og þá er ekkert annað að gera en að steypa upp á nýtt. Páska- eggjaframleiðsla getur tekið mikinn tíma en þar sem ég hef alltaf verið mikið fyrir svona sérstakt dútl kemur tím- inn ekki í veg fyrir fram- kvæmdir.“ Byggingarframkvæmdir sem eiga sér engan sinn líka hér á landi? Ævintýrahöllin Snjóbakki hjá Sólbakka ofan Flateyrar Þegar leið á tíunda tímann á föstudagskvöld byrjaði fólk að streyma til teitis í nýju húsi rétt ofan við Flateyri. Teitið var haldið til heiðurs Teiti Ein- arssyni frá Sólbakka á Flateyri (syni Einars Odds) og honum í kveðjuskyni, en Teitur var á förum til Úganda. Nýja húsið stendur rétt hjá Sólbakka og heitir Snjóbakki. Þar er vold- ugur skafl og hafa röskir menn á Flateyri gert þar mikil húsa- kynni á skömmum tíma og eftir fyrirfram gerðri teikn- ingu. Skammt inn af fordyri er bar sem nefnist Einarsbar. Hægt er að fara tvær leiðir niður í setustofu en sætin eru höggvin í veggina. Skammt frá barnum er gengið upp í virkisturn. Um allt hús eru holur í veggi fyrir kerti í ál- formum. Í samkvæminu log- aði á þeim tugum saman og herbergi og gangar líktust helst ævintýrahöll eða sviðs- mynd í Stjörnustríði. Ekki var mjög hlýtt inni þegar teitið hófst en það fór að lagast þeg- ar fólki fjölgaði. Um fimmtán manns munu hafa lagt hönd að verki við þetta hús. Einkum voru notað- ar skóflur en einnig vélsög, sem mun vera nýmæli í snjó- húsagerð hérlendis. Þrátt fyrir óteljandi kertaljós er eldhætta í húsinu talin hverfandi lítil. Barinn Einarsbar er hann formlega apótek. Eina framlag Lýðs Árnasonar læknis á Flat- eyri til hússins var sú tillaga að þar yrði apótek. Lyfin sem þar fást eru mjög á eina lund, öll til notkunar innvortis og öll í vökvaformi. Læknirinn hefur látið þess getið, að þegar Vagninum fræga á Flateyri var lokað um skeið á sínum tíma, þá versnaði mjög heilsufar í plássinu. Helst verður fundinn einn alvarlegur galli á þessu annars ágæta húsi. Sá galli kemur fram þegar vorar og kemur jafnframt í veg fyrir að sú hug- mynd verði að veruleika, að hægt verði að nota húsið sem sumarbústað. Nokkrir gestanna í forstofunni, þeirra á meðal Lýður Árnason læknir. Árangur Heiðars Marinóssonar kom mest á óvart á Opna Sjálandsmótinu Sigraði í 50 m skriðsundi og bætti piltametið sem Örn Arnarson átti – fær mjög lofsamlegan vitnisburð frá fyrrverandi landsliðsþjálfara Heiðar Ingi Marinósson frá Vestra á Ísafirði sigraði í 50 m skriðsundi á Opna Sjá- landsmótinu í sundi um helgina. Íslenska unglinga- landsliðið, sem Heiðar Ingi var valinn í að loknu Innan- hússmeistaramóti Íslands í sundi í síðasta mánuði, fór til keppni á mótinu. Heiðar Ingi bætti þarna piltametið sem ekki ómerkari sundmaður en Örn Arnarson átti áður. Þess má geta, að á þessu sama móti setti Örn tvö ný Íslands- met. Keppinautar Heiðars Inga í 50 m skriðsundinu voru 36 sundmenn frá Norðurlöndum og Þýskalandi. Guðmundur Harðarson, fyrrum landsliðs- þjálfari í sundi, segir að á þessu móti hafi árangur Heið- ars Inga komið mest á óvart. „Pilturinn er langur og mjór, syndir tæknilega vel og sýnir mikið keppniskap. Þar virðist vera mikið efni á ferðinni“, sagði Guðmundur. Auk hins frábæra árangurs í 50 m skrið- sundi var 100 m skriðsundið líka mjög gott hjá Heiðari. Heiðar Ingi Marinósson. Fjórtánda verslun fyrirtækisins en sú áttunda á landsbyggðinni Húsasmiðjan opnaði á mánudagsmorgun verslun að Mjallargötu 1 og timbur- sölu að Árnagötu 1 á Ísa- firði. Þetta er fjórtánda Húsasmiðjuverslunin og sú áttunda utan höfuðborgar- svæðisins. Eins og kunnugt er keypti Húsasmiðjan versl- unina Metró-Áral af Alfreð Erlingssyni og fjölskyldu hans. Alfreð á enn húsnæðið í félagi við aðra en Húsa- smiðjan mun hafa það á leigu. Stjórnendur Húsa- smiðjunnar segjast binda miklar vonir við þessa nýju verslun á Ísafirði og vona að henni verði vel tekið. Á vormánuðum stendur til að Húsasmiðjan opni tvær verslanir til viðbótar, aðra á Egilsstöðum en hina á Selfossi. Húsasmiðjan opnar á Ísafirði Húsasmiðjan á Ísafirði. Gleðilega páskahátíð! 15.PM5 19.4.2017, 09:277

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.