Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.04.2001, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 11.04.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 11 spurður hvort hann hafi verið góður og hvað hann hafi unnið til afreka á þeim vettvangi, svarar hann: „Það var nú ekki neitt merkilegt. Bara einhver Vest- fjarðamet. Reyndar syntum við undir Íslandsmeti í boð- sundi á aldursflokkamóti í Vestmannaeyjum árið 1988 en það var dæmt ógilt vegna þjóf- starts. Ég man það eins og það hafi gerst í gær. Reyndar unnum við það mót þrátt fyrir að þetta sund væri ógilt. Þetta var síðasta mótið sem lið Bol- víkinga vann. Eftir það fór að halla undan fæti.“ Ferð á mót hefur mikið að segja Benedikt segir að ferð á mót eins og á Innanhússmeistara- mótið í Vestmannaeyjum um daginn hafi mikið að segja fyrir hina ungu keppendur, jafnvel þótt við miklu eldri og reyndari keppinauta sé að eiga, og kannski ekki síst þess vegna. „Það er eins og vítamín- sprauta fyrir þau að kynnast þessu, sjá besta sundfólk landsins í keppni og vera með á stóru móti í öðrum lands- hluta. Stelpurnar koma tví- efldar til baka.“ Hann segir líka að frammistaða Heiðars Inga Marinóssonar á Ísafirði á þessu móti, en hann gerði sér lítið fyrir og vann fyrsta Íslandsmeistaratitil Vestfirð- inga í sundi í mörg ár, hafi mikið að segja fyrir þau yngri og hvetji þau áfram. Spilaði með Hallbirni Benedikt er hættur að spila á skemmtunum, að minnsta kosti í bili. Vinnan og þjálfun- in taka tíma hans allan. Áður lék hann á harmóniku með ýmsum grúppum. Meðal ann- ars með Hallbirni Hjartarsyni í nokkur ár ásamt fleiri Bol- víkingum, svo sem Pálma Karvelssyni frænda sínum, Sigga Lassa og fleirum. „Við spiluðum bæði fyrir norðan og héldum líka fullt af tónleikum fyrir Hallbjörn eftir að Kántrýbær brann. En ég er hættur. Þetta er erfiður bran- si.“ Hélt að það yrði lítið mál Þó að þjálfunin hjá þeim systkinum Benedikt og Sól- veigu hafi gengið vel í vetur, þá hafa þau aldrei fengist við slíkt áður. „Þetta er alveg nýtt fyrir mér en mér finnst mjög skemmtilegt að prófa þetta. Þegar ég var beðinn að koma að þjálfa, þá renndi ég blint í sjóinn. Það var á föstudegi í lok september í haust og í rauninni allt of seint til að byrja þjálfun fyrir keppnis- tímabilið. En ég samþykkti þetta og hélt að það yrði lítið mál, kannski klukkutími á dag. En svo fóru hjólin að snúast og þetta vatt upp á sig og varð miklu meira en ég hafði búist við. Ég byrjaði með alla hópana, frá þeim yngstu og upp í þá elstu en ég sá að það gekk alls ekki upp. Þess vegna fékk ég Sólveigu systur til liðs við mig og hún sér um yngri hópana, níu ára og yngri, og ferst það mjög vel. Ég hef hins vegar einbeitt mér að eldri hópunum og segja má að ég sé heltekinn af þessu. Ég hugsa helst ekki um annað þegar ég er kominn heim úr vinnunni!“ Sólveig Sigurðardóttir er þremur árum eldri en Bene- dikt bróðir hennar. Á ungum aldri var hún var líkt og hann mjög efnileg í sundinu. „Við hættum bara allt of ung“, segir hann. „Ungmenna- félagshjartað“ Ungmennafélagshjartað er ríkt og sterkt í Bolungarvík, líkt og víðar. Benedikt hefur litla sögu að segja af því, sem gerðist fyrir um tíu árum eða nokkru eftir að hann var hættur að æfa eins og fleiri sem höfðu verið í hinu öfluga liði UMFB á árunum þar á undan. „Guðmundur Hrafn Arngrímsson félagi minn, tveimur árum eldri en ég, var fenginn til að keppa á EG-móti í sundi sem hér var haldið. Hann var þá sautján ára og var hættur að æfa fyrir einu ári. Hann var eitthvert mesta afreks- mannsefni í sundi sem Vest- firðingar hafa átt. Á meðan hann keppti var hann alltaf í fyrstu sætunum. Þarna var hann skráður með annan besta tímann en því hafði hann ekki átt að venjast. Landsliðsmaður á Ísafirði var skráður með besta tím- ann. Þetta var mesta niðurlæg- ing sem Guðmundur hafði orðið fyrir, að vera skráður á eftir Ísfirðingi. Hann sýndi í þessu sundi hvað menn komast áfram á viljanum og vitneskjunni um að vera að keppa fyrir sitt félag í Bol- ungarvík. Hann var alveg snarvitlaus í lauginni og var hálfri laugarlengd á undan Ísfirðingnum í markið. Ég á þetta sund á myndbandi sem vitnisburð um það“, segir Benedikt, „hvernig ung- mennafélagshjartað getur drifið menn áfram.“ Grundvöllurinn skiptir mestu Benedikt finnst að stund- um og helsti oft hér vestra sé of lítil rækt lögð við grundvöllinn í íþróttastarf- inu, þjálfun og uppbygg- ingu yngstu flokkana. „Mér finnst það áberandi í starfi íþróttafélaga hér á Vest- fjörðum, að það sé oft eins og allt of mikið sé sparað í yngstu flokkunum. Það eru einmitt þeir flokkar þar sem síst á að spara. Ef áherslan er lögð á grunninn, þá skilar það sér þegar fram í sækir. Það er dýrt að vera að kaupa utan- aðkomandi atvinnumenn í meistaraflokkum félag- anna. Mér finnst miklu skynsamlegra að rækta upp eigin afreksmenn í íþrótt- um.“ „Það er eins og vítamín- sprauta fyrir unga fólkið að kynnast þessu, sjá besta sundfólk landsins í keppni og vera með á stóru móti í öðrum landshluta.“ hann Jónasson, Albert Högna- son og Páll Harðarson. Í fram- leiðsludeild fyrirtækisins á Ísafirði eru 25 starfsmenn og hjá dótturfyrirtækinu Stál- nausti í Reykjavík eru 6 starfs- menn. Í Kanada starfar dóttur- fyrirtækið 3X-Stal Inc. með þrjá til fimm starfsmenn, en það var stofnað í byrjun þessa árs. Loks er að nefna mark- aðsfyrirtæki í Bandaríkjunum, sem er að hluta í eigu 3X- Stáls en Lárus Guðbjartsson stjórnar. Samtals eru starfs- menn hjá 3X-Stáli eða fyrir- tækjum á vegum þess um 40 talsins. Fjölmenni var í veislunni. Höfuðstöðvar 3X-Stál ehf. eru við Sindragötu á Ísafirði. Jónas H. Pétursson, vélvirki og einn eigenda vélsmiðjunnar Þryms ehf. á Ísafirði hafði um margt að spjalla við Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. 15.PM5 19.4.2017, 09:2711

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.