Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.10.2001, Síða 4

Bæjarins besta - 31.10.2001, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2001 TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL Hafnarstræti 1 – Ísafirði Símar: 456 3940 & 456 3244 Fax: 456 4547 – Netfang: tryggvi@snerpa.is Fasteignaviðskipti í : : : i .i Fasteignir í þessari auglýsingu eru aðeins sýnishorn af söluskránni. Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni að Hafnarstræti 1 Einbýlishús / raðhús Engjavegur 24: 126,4 m² ein- býlishús á tveimur hæðum. Frábær sólbaðsaðstaða. Laust 1. ágúst 2001. Áhv. ca. 4,6 m.kr. Verð 7,5 m.kr. Hjallavegur 4: 242 m² einbýlis- hús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Fallegt útsýni. Skipti á minni eign möguleg. Tilboð óskast Hlíðarvegur 25: 152,6 m² ein- býlishús á tveimur hæðum. Húsið er mikið uppgert. Áhv. ca. 6,4 m.kr. Verð 10,2 m.kr. Hlíðarvegur 37: 185,9 m² rað- hús á þremur hæðum ásamt bílskúr og einstaklingsíbúð. Skipti á minni eign koma til greina. Verð 10,2 m.kr. Hnífsdalsvegur 10: 120,9 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt grónum garði og eignarlóð Laust fljótlega. Tilboð óskast Hrannargata 1: 238,9 m² ein- býlishús á 2 hæðum ásamt kjall- ara, háalofti og ræktuðum garði Tilboð óskast Hrannargata 8a: 78,1 m² ein- býlishús á tveimur hæðum ásamt eignarlóð. Húsið er uppgert að hluta. Verð 4,6 m.kr. Lyngholt 10: 151,3 m² einbýlis- hús á einni hæð ásamt 55,2 m² bílskúr Verð 12,9 m.kr. Seljalandsvegur 48: 188 m² ein- býlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Skipti á minni eign koma til greina. Áhv. ca. 2 m.kr. Verð 12,7 m.kr. Seljalandsvegur 72: 112 m² einbýlishús á tveimur hæðum, góður sólpallur. Verð 8,2 m.kr. Skipagata 11: 93 m² einbýlishús á tveimur hæðum (efri hæð er undir súð), allt uppgert. Húsið er í hjarta bæjarins. Ræktuð eignar- lóð. Verð 6,7 m.kr. Stakkanes 16: 226,2 m² raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Tilboð óskast Urðarvegur 33: 306,3 m² glæsi- legt einbýlishús á tveimur hæð- um ásamt bílskúr Verð 16 m.kr. Urðarvegur 64: 214 m² raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Tilboð óskast 4-6 herb. íbúðir Fjarðarstræti 14: 133,4 m² 4ra herbergja íbúð á e.h. í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr, háalofti og hluta kjallara. Tilboð óskast Fjarðarstræti 14: 100 m² falleg 4ra herbergja íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi ásamt 60m² kjallara og 27,8 m² geymsluskúr. Baklóð fylgir neðri hæðinni. Áhv. ca. 1,5 m.kr. Verð 5,8 m.kr. Fjarðarstræti 38: 3-4ra her- bergja íbúð að hluta undir risi. Íbúðin er í góðu standi. Tilboð óskast Sundstræti 22: 140m² 4-5 her- bergja íbúð á miðhæð í fjórbýlis- húsi ásamt 28 m² bílskúr. Áhv. ca. 5 m.kr. Verð 10,5 m.kr. Hlíðarvegur 33: 79,1 m² íbúð á neðri hæð í fjórbýlishúsi ásamt góðum bílskúr. Verð 6,9 m.kr. Mjallargata 1: 82,8 m² íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi, sér inngang- ur, sér geymsla. Verð 6,8 m.kr. Silfurgata 11: 56,2 m² (75m² gólfflötur, mikið rými í risi) Björt og glæsileg íbúð með frábæru útsýni. Ótrúlega hagstæð í rekstri. Áhv. ca. 3,4 m.kr. Verð 5,8 m.kr. Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 3ju hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu. Áhv. ca. 2 m.kr. Verð 5,3 m.kr. Stórholt 13: 79,2 m² íbúð á 3ju hæð til hægri í fjölbýlishúsi ásamt sér geymslu. Skoða öll tilboð. Möguleiki að taka bíl uppí. Áhv. ca. 3 m.kr. Verð 5,5 m.kr. Túngata 13: 76,1 m² íbúð á 1. hæð í þríbýlishúsi. Íbúðin er endurnýjuð að stórum hluta. Verð 5 m.kr. Túngata 13: 76,1 m² íbúð í kjallara í þríbýlishúsi. Íbúðin er í endurnýjun og telst fokheld, tilvalin fyrir þá sem vilja innrétta eftir eigin höfði. Verð 2 m.kr. 2ja herb. íbúðir Grundargata 6: 49,2 m² íbúð á 2. hæð til hægri í fjölbýlishúsi. Verð 3,5 m.kr. Mjallargata 1: 67,9 m² íbúð í góðu standi á 2. hæð í fjölbýlisi- húsi. Áhv. ca. 3,6 m.kr. Verð 6,5 m.kr. Sundstræti 24: 69 m² skemmti- leg og rúmgóð íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi. Verð 4,5 m.kr. Túngata 18: 53,4 m² íbúð á 1. hæð í nýlega uppgerðu fjölbýlis- húsi ásamt sér geymslu. Verð 4 m.kr. Súðavík Álfabyggð 3: 130,2 m² nýtt og glæsilegt einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr, sólstofu og tveim- ur sólpöllum. Verð 11.5 m.kr. Hlíðarstræti 6: 113 m² einbýlis- hús á einni hæð ásamt bílskúr Verð 7,9 m.kr. Vitastígur 25b: 101 m² fjögurra herbergja íbúð í fjölbýlishúsi. Sér inngangur. Tilboð óskast 3ja herb. íbúðir Bolungarvík Axel Jóhannsson og Ingibjörg Jónsdóttir eru nýflutt ásamt barni sínu frá Reykjavík til Ísafjarðar Hvers vegna er fólkið eigin- lega að flytjast vestur??? Þegar fólk leggur á sig mikið erfiði til að flytjast á milli staða hljóta að liggja ríkar ástæður að baki. Í ljósi mikils fólksflutnings frá Vestfjörðum á undanförnum árum hafa menn skiljanlega velt því fyrir sér hvað valdi þessu. Hvers vegna missum við fólk til Reykjavíkur og jafnvel til útlanda? Hvað er það sem höfuðborgin hefur fram yfir Vestfirði? En ekki er síður mikil- vægt að leita ástæðna þess, hvers vegna fólk flytur vest- ur – hvað er það sem Vest- firðir hafa umfram aðra staði á landinu og í heiminum og hvernig Vestfirðingar geta nýtt sér þá sérstöðu sem svæðið hefur. Upp á síðkast- ið hefur fólk tekið sig upp frá Reykjavík, Rússlandi, Bandaríkjunum, Póllandi og víðar og flutt með sitt hafur- task vestur á firði. Hvað er það sem dregur þetta fólk vestur? Hvaða kosti hafa Vestfirðir og hverjir eru gallarnir? Á krossgötum Í haust fluttust þau Axel Jóhannsson og Ingibjörg Jónsdóttir með eins árs gamlan son sinn frá Reykja- vík til Ísafjarðar. Axel ólst upp vestra en Ingibjörg í Kjósinni. Þau hafa undan- farinn áratug búið í Reykja- vík, numið þar og starfað, en eru nú komin vestur. Hvers vegna? „Við stóðum á ákveðnum krossgötum nú í haust, höfðum selt íbúð sem við áttum á Njálsgötu í Reykjavík og vorum laus og liðug í fyrsta sinn í langan tíma“, segir Axel. „Bæði vorum við farin að þrá ein- hverja tilbreytingu en ég get ekki sagt að við höfum spáð mikið í að flytja vestur. Það má segja að Jón Ottó vinur minn hafi þar verið mikill örlagavaldur. Þannig var að hann var að sækja um skóla- vist í Noregi fyrir stuttu. Ég sagði meira í gríni en í al- vöru, að ef hann fengi inni, þá skyldi ég taka á leigu íbúðina hans á Ísafirði á meðan hann væri við nám, að því gefnu að hann myndi redda mér vinnu.“ Stefnubreyting Jón Ottó fékk inni við skólann og ræddi við þá hjá 3X-Stáli ehf. á Ísafirði um vinnu fyrir Axel. „Hann hringdi í mig og nú var komið að mér að standa við stóru orðin. Ég gat fengið góða vinnu hjá 3X og var orðinn svolítið spenntur fyrir þessu.“ Ingibjörg segir þau hvort eð er hafa þurft að ákveða hvaða stefnu þau ætluðu að taka í lífinu. „Við vorum bæði í góðri vinnu, vorum komin með barn og höfðum efni á því að fara að kaupa okkur stærra húsnæði, þann- ig að við þurftum að velja. Vildum við vera í því næstu tíu árin að kaupa okkur sóf- ann og annan bíl og taka fullan þátt í lífsgæðakapp- hlaupinu? Ég held að hvor- ugt okkar hafi verið alveg tilbúið að fara strax í þennan gír og við vissum að við þyrftum að breyta eitthvað til.“ Axel og Ingibjörg kynntust þegar hún kom vestur eitt sumar að vinna í skógrækt og passa fyrir föðursystur sína. „Þá bjó ég 44.PM5 19.4.2017, 09:464

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.