Bæjarins besta - 31.10.2001, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2001 3
Vestfirðingar!
Stofnfundur krabbameinsfélags á norðanverðum Vest-
fjörðum verður haldinn á Hótel Ísafirði, sunnudaginn
4. nóvember kl. 14:00.
Erindi flytja:
Sigurður Björnsson, yfirlæknir og formaður Krabbameins-
félags Íslands og Hildur Björk Hilmarsdóttir, formaður
Krafts, stuðningsfélags ungs fólks með krabbamein.
Mætum öll á fundinn og sýnum stuðning í verki við þetta
mikilvæga málefni sem snertir allar fjölskyldur.
Sýning á Íslandsmyndum
frá árunum eftir seinni heims-
styrjöld verður opnuð í Gamla
sjúkrahúsinu á Ísafirði á laug-
ardaginn kl.14. Höfundurinn
er Hans Malmberg, einn
fremsti heimildaljósmyndari
Svía á sinni tíð. Hann gaf út
nokkrar ljósmyndabækur og
meðal þeirra er ein helguð Ís-
landi. Hún var gefin út af
sænsku útgáfufélagi árið 1951
en textinn er bæði á sænsku
og ensku. Þar er að finna
myndir úr daglegu lífi eftir-
stríðsáranna margfrægu hér-
lendis, eins og það kom
Malmberg fyrir sjónir.
Hans Malmberg tók myndir
af daglegu lífi og viðburðum í
heimalandi sínum en ferðaðist
einnig víða um heim og tók
m.a. stríðsmyndir í Kóreu og
Víetnam. Af þekktum „fyrir-
sætum“ Malmbergs má nefna
Shaw, Hemingway og sjálfan
Ho Chi Minh. Sýningin á Ísa-
firði verður opin kl. 14-16 um
helgar.
Daglegt líf á Íslandi
eftir seinna stríð
Sýning á ljósmyndum Hans Malmbergs opnuð á Ísafirði
Ein af myndum Malmbergs: Catalina-flugbátur Flugfélags Íslands á legunni á Ísafirði
árið 1949.
Ólafur Ingi Jónsson for-
vörður sagði í sjónvarpsþætt-
inum Kastljósi á mánudags-
kvöld, að hann teldi að allt að
900 fölsuð málverk eftir gam-
la íslenska meistara gætu ver-
ið í umferð. Með þessar tölur
í huga kemur upp sú spurning
hvort einhverjar af þessum
myndum hafi verið keyptar
vestur á firði.
Hlynur Snorrason, rann-
sóknarlögreglumaður á Ísa-
firði segir að ekkert mál vegna
falsaðra verka hafi komið inn
á borð lögreglunnar. Reyndar
er ekki ósennilegt að fólk leiti
beint til sérfræðinga ef það
hefur grun um vafasaman
uppruna málverks.
Þetta bendir þó til þess að
Vestfirðingar geri ekki mikið
af því að fjárfesta í dýrum
málverkum (fölsuðum eða
ófölsuðum) eftir gamla meist-
ara, – þeir kaupi sér frekar
jeppa eða þá bara kvóta.
Ekki kunnugt um föls-
uð málverk hér vestra
Fjárfesta Vestfirðingar frekar í jeppum en málverkum?
Norski togarinn Remøy
Viking, einn fullkomnasti
rækjutogari við Norður-Atl-
antshaf, kom til Ísafjarðar á
mánudag og landaði tæplega
400 tonnum til rækjuverk-
smiðjunnar Miðfells hf. Mik-
ill meirihluti hráefnisins hjá
Miðfelli eða um 80% kemur
frá erlendum veiðiskipum og
þar af bróðurparturinn frá tog-
urum norsku Remøy-sam-
stæðunnar. Vinnslan hjá Mið-
felli hf. hefur verið keyrð á
fullu allt þetta ár og hefur ekki
fallið niður vinnsla vegna hrá-
efnisskorts síðan snemma í
fyrravor.
Horfurnar eru áfram góðar
því að nú þegar er tryggt hrá-
efni til vinnslu hjá Miðfelli
fram í mars á næsta ári. Um
27 manns starfa í vinnslunni,
auk þriggja í skrifstofustörf-
um og fólks í hlutastörfum. Á
síðasta ári greiddi fyrirtækið
120 milljónir króna í laun.
– hráefni til vinnslu hjá fyrirtækinu þegar tryggt fram í mars
Remøy Viking landaði nær
400 tonnum hjá Miðfelli hf.
Eitt fullkomnasta rækjuveiðiskip við Norður-Atlantshaf
Remøy Viking í höfn á Ísafirði á mánudag.
Vatnsaflsvirkjun Dalsorku í Súgandafirði
Stefnt að gangsetn-
ingu um áramót
Virkjunarframkvæmdir í
botni Súgandafjarðar ganga
vel og stefnt er að því að
Dalsorka gangsetji hina
nýju vatnsaflsvirkjun um
áramótin. Rafstöðvarhúsið
er fullbúið utan og verið er
að leggja síðustu hönd á frá-
gang innanhúss. Þar verða
sambyggð túrbína og rafall
auk spennis. Í sumar var
lögð nær tveggja km löng
aðfallslögn að virkjunarhús-
inu. Hún er niðurgrafin og
munu því sjást lítil ummerki
þessara framkvæmda.
Rörin eru smíðuð í Þýska-
landi en túrbínan og rafallinn
koma frá Austurríki og er
reiknað með að tækjabúnaður-
inn komi í desember. Þá er
búið að leggja jarðstreng frá
stöðvarhúsinu að háspennu-
línu Orkubús Vestfjarða sem
mun kaupa rafmagnið. Hita-
stig vatnsins úr göngunum er
8°C og verður það um þriðj-
ungur af vetrarrennslinu
þannig að það ætti aldrei
að frjósa.
Á bæjunum í botni Súg-
andafjarðar er löng hefð
fyrir rafmagnsframleiðslu.
Birkihlíð og Botn hafa al-
drei tengst dreifikerfi raf-
veitna heldur fengið raf-
magn frá 30 kW heimaraf-
stöð.
Úthlutun úr Styrktarsjóði Eignarhaldsfélags BÍ
Stjórn Eignarhaldsfélags
Brunabótafélags Íslands
(EBÍ) úthlutaði úr Styrktar-
sjóði EBÍ fyrir árið 2001
fyrr í þessum mánuði. Í bréfi
til bæjaryfirvalda í Ísafjarð-
arbæ segir m.a.: „Því miður
reyndist ekki unnt að þessu
sinni að styrkja verkefni
sveitarfélagsins vegna
kynningar á vímuvarna-
stefnunni VáVest á norðan-
verðum Vestfjörðum.“
Nú var úthlutað úr sjóðnum
í sjötta skipti frá því að hann
tók til starfa árið 1996. Ísa-
fjarðarbær hefur einu sinni
fengið styrk til verkefnis. Það
var árið 1999 þegar veittur
var styrkur að fjárhæð kr.
400.000 til kynningar og
framkvæmdar jafnréttisáætl-
unar Ísafjarðarbæjar. Þrjú
sveitarfélög á landinu eiga
stærri hlut í EBÍ en Ísa-
fjarðarbær: Reykjanesbær,
Akureyri og Kópavogur.
Meðal þeirra sem fengu
styrk að þessu sinni var Ak-
ureyrarbær sem fékk kr.
400.000 vegna viðhorfs-
könnunar á þeirri þjónustu
sem í boði er á menningar-
sviðinu á Akureyri. Alls
voru 12 styrkir veittir við
úthlutun 2001.
Beiðni vegna
VáVest synjað
44.PM5 19.4.2017, 09:463