Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.10.2001, Síða 7

Bæjarins besta - 31.10.2001, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2001 7 smáar Einar K. Guðfinnsson, 1. þingmaður Vestfirðinga skrifar ,,Eðlilegt að við fáum í okkar hlut það fjármagn sem sparaast við að leggja af ferðir Breiðafjarðar- ferjunnar...“ Mikilvægur fundur Fjórð- ungssambands Vestfirðinga á föstudaginn var skilaði tilætl- uðum árangri. Menn komu hvaðanæva að úr kjördæminu og settu fram sjónarmið sín og skýrðu sín mál. Niðurstað- an var sú að halda áfram á þeirri braut sem fylgt hefur verið og vörðuð var með sam- þykkt Fjórðungsþings frá 1997 og þeirri stefnumótun sem Alþingi hefur markað með vegáætlunum allt frá ár- inu 1998. Þess vegna er það rétt og líka afar mikilvægt sem Ólaf- ur Kristjánsson formaður Fjórðungssambandsins sagði í viðtali við BB að loknum fundinum: „Ég fann að menn vilja ná samstöðu um þessi mál og gefa þannig þing- mönnum okkar Vestfirðinga sterkt vopn í hendur til að bæta samgöngur á Vestfjörð- um.“ Stefnumörkun sem skipti okkur miklu máli Það sem miklu máli skiptir í þessu sambandi er sú stað- reynd, að okkur tókst að hífa okkur upp úr því spólfari sem við vorum að mörgu leyti stödd í með vegamálin. Með vegáætlun og síðar fyrstu langtímaáætluninni sem Al- þingi samþykkti í vegamálum, var stefnan mörkuð. Þetta var til mikilla hagsbóta fyrir svæði eins og okkar, þar sem mikið var ógert í vegamálum. Það sem mestu máli skipti í því sambandi var stefnumörk- unin um að leggja sömu áher- slu á stofnbrautir frá þéttbýl- isstöðum að Þjóðvegi 1, á hringveginn svonefnda. Þar með má segja að ákveðið hafi verið að megináhersla hafi verið lögð á að gera upp- byggðan veg með varanlegu slitlagi frá þéttbýlisstöðunum á norðanverðum Vestfjörðum, í Vestur-Barðastrandarsýslu sem og við Steingrímsfjörð. Þetta skipti gríðarlega miklu máli og nú sjáum við þessa stað á ári hverju. Uppbyggingin í Djúpinu, vegurinn um Kleifaheiði, fyr- irhuguð stórframkvæmd á Klettshálsi, vegurinn í norð- anverðum Kollafirði, eru allt dæmi um framkvæmdir í þessum anda. Þess vegna mið- ar okkur nú bæði hratt og örugglega áfram. Tenging norðan- verðra Vestfjarða Eðlilegt er að menn velti fyrir sér næstu skrefum. Áfram þarf að halda. Ljúka framkvæmdum í Skötufirði og Hestfirði, ljúka tengingunni úr Mjóafirði og í Ísafjörð og taka ákvörðun um hvort leiðin skuli liggja um Arnkötludal og Gautsdal, eða suður Strandir. Hvort sem ofan á verður, er þó ljóst að unnið verður í veg- inum suður Strandir, enda hefur hann mikla og marg- háttaða þýðingu sem allir vita. Ferjupeninga í vegina Nú í vetur er líka brýnt að marka stefnu um frekari fram- kvæmdir í Austur-Barða- strandarsýslu. Þar er að mínu mati eðlilegast að ráðast í framkvæmdir á Ódrjúgshálsi og ryðja þannig úr vegi helsta farartálmanum á þessari leið, sem eftir verður þegar Kletts- hálsi verður lokið. Þar með er komin forsenda fyrir því að leggja af ferðir Baldurs um Breiðafjörð. Eðli- legt er að við njótum þess og fáum í okkar hlut það fjár- magn sem þá sparast til þess að hraða framkvæmdum um Austur-Barðastrandarsýslu. Það er augljóslega allra hagur. Okkar heimamanna með því að vegasamgöngur batna, og ríkissjóður sparar sér útgjöld, sem eru á annað hundrað milljónir á ári, í formi stofn- og rekstrarstyrkja við ferjuna. Þetta er líka í samræmi við álit fundar sveitarstjórnar- manna og sveitarstjóra Vestur- byggðar og Tálknafjarðar ásamt sýslumanni Vestur- Barðastrandarsýslu. Jarðgangamál Af þessu má sjá, að fram- undan eru miklar og stórstígar framfarir í vegamálum okkar. Ótalin eru þó jarðgöngin. Í áætlun Alþingis um þau eru göngin frá Arnarfirði og Dýra- firði komin á blað. Eins og ég undirstrikaði á fundi Fjórð- ungssambandsins er afar mik- ilvægt, þegar í þau verður ráð- ist, að tryggja að í sama við- fangi verði gerð örugg og góð leið vestur í Vatnsfjörð þannig að um verði að ræða eitt heild- stætt verkefni. Óhjákvæmi- legt er að leggja verulegt fjár- magn í þá leið til þess að hún verði örugglega fær á heilsárs- grundvelli. Má í því sambandi nefna möguleika á að byggja yfir veginn á kafla, með svip- uðu móti og nefnt er í skýrsl- unni um jarðgangaáætlunina. Hvað sem öllu þessu líður er eitt afskaplega þýðingarmik- ið.: Að okkur auðnist að við- halda áframhaldandi sam- stöðu og hér hefur ríkt. Hún hefur verið að skila okkur ár- angri og á slíkum framfara- brautum þurfum við að halda áfram. Áfram veginn í góðu samkomulagi Fundist hafa tvískipt gler- augu í rauðu hulstri í Álfta- fjarðarbotni. Eigandi vinsl. hringi í síma 896 0543. Óskum eftir að kaupa not- aða, ódýra þvottavél. Upp- lýsingar í síma 899 0724. Til sölu eru fjögur árs- gömul nagladekk á felg- um, 225/75 R15, 5 gata. Passa undir Suzuki jeppa. Uppl. í síma 896 0543. Til leigu eru herbergi í Hlíðunum í Reykjavík til lengri eða skemmri tíma. Sjónvarp og ísskápur eru í herbergjunum. Einnig er til leigu vel útbúin íbúð á Njálsgötu. Upplýsingar í síma 865 9637. Til sölu eru nýleg 33" nagladekk. Upplýsingar í síma 456 3286. Til sölu eru fjögur nagla- dekk, 195/65 R15. Upplýs- ingar í símum 456 3623 og 894 5023. Til leigu er 3ja herb. íbúð á Seljalandsvegi. Upplýs- ingar í síma 456 3803. Á einhver matrósakjól á 2-3 ára sem vill lána hann fyrir myndatöku. Uppl. í síma 456 7224. Til leigu er 3ja herb. íbúð í Stórholti. Lau strax. Uppl. í síma 892 5066. Til sölu er MMC Colt árg. 89. Uppl. í síma 868 6616. Til leigu er 2ja herb. íbúð við Hjallaveg á Ísafirði. Er laus. Uppl. í síma 456 3016 á kvöldin. Til sölu eru fjögur, 33" BF Goodrich vetrardekk og Prime-álfelgur. Einnig þungaskattsmælir. Upplýs- ingar í símum 456 7424 og 861 6050. Til sölu er bryggjubás við flotbryggju á Ísafirði. Uppl. í síma 456 7110. Óska eftir vel með förn- um, nýlegum barnavagni. Uppl. í síma 456 6615. Til sölu er ísskápur. Selst ódýrt. Á sama stað er til sölu fólksbílakerra. Uppl. í síma 456 3503. Til leigu er herbergi með eldunaraðstöðu og sér inn- gangi. Upplýsingar í síma 456 3448. Atvinna óskast! Ung stúl- ka óskar eftir vinnu eftir kl. 17 á daginn og um helg- ar. Allt kemur til greina. Uppl. í síma 456 3006. Öll rjúpnaveiði í landar- eign jarðanna Kleifa og Borgar í Skötufirði er öllum stranglega bönnuð, svo og öll önnur meðferð skot- vopna. Landeigendur. Tapast hafa Scarpa göngu- skór fyrir utan Bónus á Skeiði. Finnandi vinsam- lega hringi í síma 456 7450 og 893 8250. Bíll óskast fyrir lítinn pening. Þarf að vera skoð- aður 2001. Upplýsingar í síma 896 0542. Til leigu er 3ja herb. íbúð í Stórholti. Laus. Mjög góð íbúð. Upplýsingar í símum 456 6249 eða 897 6293. Til sölu er Chrysler Sara- toga, árg. 91, í toppstandi. Uppl. í síma 899 0704. Til leigu er 4ra herb. íbúð á eyrinni á Ísafirði. Uppl. í síma 861 3321. Til sölu er Mazda 323 F árg. 9. Upplýsingar í síma 867 7815. Til leigu er 3ja herb. íbúð að Urðarvegi 49, Ísafirði, neðri hæð. Upplýsingar í síma 456 3547 e. kl. 19. Til leigu er 2ja herb. íbúð við Seljalandsveg á Ísafirði. Uppl. í síma 894 8630. BB – Smáauglýsingar Háskóli Íslands með námskeið fyrir börn á landsbyggðinni Tíu ára börn í háskólanámi Hópur 10 ára barna stund- aði síðustu vikurnar háskóla- nám í spænsku í Menntaskól- anum á Ísafirði. Námskeiðinu lauk á laugardag en að því stóð Háskóli Íslands í sam- vinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða og grunnskólana í Ísafjarðarbæ og í Súðavík. Námskeiðið, sem stóð í þrjár vikur, byrjaði 3. október með 4 tíma kennslu en næstu vikur unnu nemendur verkefni sem kennarinn sendi þeim á Netinu og eins var kennt í gegnum fjarfundabúnað. Námskeiðinu lauk síðan með öðrum fjórum tímum í kennslu á staðnum. Var markmiðið að virkja nemendur og kenna þeim gagnlegan orðaforða sem ger- ir þeim kleift að þekkja ákveð- na hluti, svo sem nöfn daga og mánuða, geta sagt hvað klukkan er og skilja algeng orðatiltæki. Lögð var áhersla á málnotkun í daglegu lífi og sagt frá menningu og sögu viðkomandi þjóðar. Leikir, sögur, söngvar og annað sem höfðar til barna spiluðu líka stórt hlutverk í kennslunni. Kennari var Guðrún H. Tuli- níus, og kom hún frá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í er- lendum tungumálum, sem ný- verið var stofnuð við Háskóla Íslands. Háskóli Íslands er níræður á þessu ári og hefur haldið upp á þau tímamót með ýms- um hætti. Eitt af markmiðum afmælishátíðarhaldanna er að efla tengsl við landsbyggðina og í framhaldi af því var ákveðið að bjóða upp á tungu- málanámskeið fyrir börn yng- ri en þau sem þegar læra tungumál í skólum, eða á aldr- inum 7-11 ára, en í ár er einnig evrópskt tungumálaár. Er þarna um að ræða tungumála- námskeið í dönsku, ensku, frönsku, spænsku og þýsku á einum 14 stöðum á lands- byggðinni. Fyrsta námskeiðið hófst 29. september í Reykja- nesbæ þar sem Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrv. forseti Ís- lands, kenndi fyrstu kennslu- stundina í frönsku. Spænskunemendurnir í síðustu kennslustundinni á laugardag ásamt Guðrúnu H. Tulinius, Ólafíu Aradóttur frá Skólaskrifstofu Ísafjarðarbæjar og spænskum aðstoðarkennara. Samfylkingarfélög stofnuð í Ísafjarðarbæ og Bolungarvík Lárus og Soffía kjörin formenn Jafnaðarmenn í Ísafjarð- arbæ og Bolungarvík stofn- uðu á laugardag Samfylk- ingarfélög á báðum stöðum. Markmið félaganna er að standa að framboði til bæjar- stjórna í kaupstöðunum í vor, svo og að stuðla að fram- gangi jafnaðarstefnunnar á þessu svæði. Að sögn Karls V. Matthíassonar, 2. þing- manns Vestfirðinga, ríkti ein- drægni á fundunum og kvaðst hann mjög ánægður með þá baráttugleði og sóknargleði sem einkenndi þá. „Það er greinilegt að sveit- arstjórnarkosningarnar nálg- ast og menn stefna ótrauðir á breytingar í vor. Svo er líka ánægjulegt að sjá ný andlit fóks sem hefur áhuga fyrir þjóðmálum. Þetta er fólk sem langar til að móta samfélag sitt til betra horfs. Samfylk- ingin tekur vel og fagnandi á móti því fólki.“ Lárus G. Valdimarsson var kosinn formaður Samfylking- arfélags Ísafjarðarbæjar og með honum í stjórn voru kosin þau Bryndís G. Frið- geirsdóttir, Guðrún Finn- bogadóttir, Jón Arnar Gests- son og Sæmundur Kr. Þor- valdsson. Soffía Vagnsdóttir var kosin formaður félagsins í Bolungarvík og með henni í stjórn þeir Karvel Pálma- son og Lárus Benediktsson. 44.PM5 19.4.2017, 09:467

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.