Bæjarins besta - 21.11.2001, Síða 1
Barátta í
Bolungarvík
– rætt við Ólaf Kristjánsson, bæjarstjóra
um atvinnumál liðinna ára og stöðuna í
dag, einkum í ljósi fólksfækkunar og
Orkubúspeninga. Sjá nánar miðopnu
Miðvikudagur 21. nóvember 2001 • 47. tbl. • 18. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Sjálfstæðisflokkurinn í Ísafjarðarbæ
Viðhefur prófkjör
fyrir kosningarnar
Fulltrúaráð sjálfstæðisfé-
laganna í Ísafjarðarbæ hefur
samþykkt að viðhaft skuli
prófkjör vegna framboðs til
bæjarstjórnarkosninganna í
vor. Prófkjörið verður hald-
ið laugardaginn 19. janúar
en framboðsfrestur í kjörinu
er til 3. janúar.
Þátttaka í prófkjörinu er
heimil félagsbundnu sjálf-
stæðisfólki í Ísafjarðarbæ
og þeim ófélagsbundnum
sem undirrita stuðningsyfir-
lýsingu við Sjálfstæðis-
flokkinn. Formaður full-
trúaráðsins í Ísafjarðarbæ og
jafnframt formaður kjör-
nefndar er Unnur Brá Kon-
ráðsdóttir, lögfræðingur á
Ísafirði.
Unnur Brá Konráðsdóttir.
Veltitankur settur í Júlíus Geirmundsson ÍS
Dregur mjög úr hreyfingum
Þegar Júlíus Geirmundsson
ÍS, frystitogari Hraðfrysti-
hússins-Gunnvarar hf. í Hnífs-
dal, kom til Ísafjarðar úr túr í
síðustu viku var ráðist í að
koma fyrir veltitanki um borð
í skipinu. Sverrir Pétursson
útgerðarstjóri segir að þarna
sé um andveltigeymi að ræða
sem þjóni þeim tilgangi að
róa hreyfingar skipsins úti á
sjó. Tankurinn er um níu tonn
að þyngd og er hægt að dæla
inn í hann allt að 20-30 tonn-
um af sjó og stórdregur þá úr
hreyfingum skipsins.
Góð reynsla er af svona
veltitönkum og eru mörg skip
komin með þennan útbúnað.
Sverrir segir að nokkurn tíma
taki að koma tanknum fyrir
og festa hann niður og fyrirséð
að ekki náist að fulltengja
hann fyrr en næst þegar skipið
verður í höfn.
Tankurinn er smíðaður hjá
Velasalan Nauta í Póllandi.
Hann var fluttur til landsins
með ísfisktogaranum Fram-
nesi ÍS 708 sem einnig er í
eigu Hraðfrystihússins-Gunn-
varar hf., og kom fyrir stuttu
heim eftir viðgerðir í Póllandi.
Sverrir segir með veltitankin-
um stórbatni vinnuaðstaða um
borð og vinnslan batni og ár-
angurinn sé betri afurðir.
Veltitankurinn hífður um borð í Júlíus Geirmundsson.
47.PM5 19.4.2017, 09:481