Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.11.2001, Qupperneq 3

Bæjarins besta - 21.11.2001, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 3 Kveikjum í konum! Landssamband framsóknar- kvenna og framsóknarkonur á Vestfjörðum bjóða þér í létt kaffispjall sunnudaginn 25. nóvember nk. kl. 13-16 á Hótel Ísafirði. Gestur fundarins verður Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra. Allar konur sem hafa áhuga á að bæta samfélagið og auka áhrif kvenna eru hvattar til þess að líta inn og fá sér tíu dropa. Landssamband framsóknarkvenna. Jólin eru komin í Föndurkistuna! Námskeiðin eru í fullum gangi. Örfá sæti laus í keramikmálun og í þrívídd. Leirpottarnir, plastrammarnir og garnið er loksins komið. Einnig gifsmótin vinsælu. Ráðstefna um bætta umgengni við fiskistofnana við Ísland Ákveðið hefur verið að efna til ráðstefnu á Ísafirði, um bætta umgengni við fiskistofnana umhverfis Ísland. Ráð- stefnan verður haldin í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, þann 25. nóvember næstkomandi og hefst kl. 13.00. Í undirbúningshóp fyrir ráðstefnuna eru Eiríkur Finnur Greipsson, sparisjóðsstjóri, Guðmundur Halldórsson, skip- stjóri og Halldór Halldórsson, bæjarstjóri. Meðal frummælenda verða: · Jón Kristjánsson, fiskifræðingur · Magnús Þór Hafsteinsson, fiskifræðingur og fréttamaður · Óli Olsen, togaraútgerðarmaður í Færeyjum · Auðunn Konráðsson, formaður Útróðrabátafélags Færeyja · Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar · Ólafur Karvel Pálsson, fiskifræðingur Hafrannsókna- stofnunar · Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráð- herra Að loknum framsögum verða pallborðsumræður og fyrir- spurnir úr sal. Viðfangsefni ráðstefnunnar verður fyrst og fremst með áherslu á umræðu sem leitt getur til „betri umgengni við fiskistofnana.“ Fjölmargir aðilar hafa þegar samþykkt að taka þátt í ráð- stefnunni eða að styðja hana. Því má reikna með að þátttaka í henni verði víðtæk. Ráðstefnu þessari er ætlað leggja lóð á vogarskál leitarinnar að þolanlegum sáttum um stjórn fiskveiða, á grundvelli þess að aðilar með ólíka hagsmuni og ólíkar skoðanir hafi nokkurn skilning á sjónarmiðum hvors annars. Frummælendur hafa meðal annars verið valdir með tilliti til þess að kalla fram mál- efnalega umræðu um árangur af núverandi fiskveiðistjórn- unarkerfi Íslendinga og þeirrar leiðar sem frændur okkar og nágrannar Færeyingar hafa fetað. Undirbúningshópurinn vill bjóða öllum þeim, sem áhuga hafa málefnalegri umræðu um bætta umgengni um auðlindir hafsins, að koma á þessa ráðstefnu, sunnudaginn 25. nóvember 2001. Það ætti enginn áhugamaður um sjávarútveg að láta þessa ráðstefnu fram hjá sér fara. Réttur er áskilinn til breytinga á dagskrá. 47.PM5 19.4.2017, 09:483

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.