Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.11.2001, Page 5

Bæjarins besta - 21.11.2001, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 5 smáar Til sölu er einbýlishúsið að Engjavegi 24, Ísafirði. Húsið er byggt árið 1947 og er 126m² að stærð, fimm herb., hæð og kjallari. Leiga kemur til greina. Húsið er laust. Upplýsingar í símum 456 4737, 464 0317 og 868 6626. Grunnvíkingar! Bingó verður í Sigurðarbúð, föstudaginn 23. nóv. kl. 20. Miðaverð kr. 1.000. Mæt- um öll. Nefndin. Til sölu eru 33" dekk og felgur. Uppl. í símum 861 6050 og 456 7424. Til sölu er 4ra herb. íbúð að Stórholti 7. Góð og vel skipulögð blokkaríbúð. Uppl. í síma 456 4640. Til leigu er 2ja herb. íbúð við Seljalandsveg. Íbúðin er öll nýuppgerð. Parket og flísar á gólfum. Upplýsing- ar í síma 894 8630. Þrír litlir og sætir kettl- ingar fást gefins. Uppl. í síma 456 5311 e. kl. 19. Slysavarnafólk í Bolung- arvík! Nú styttist óðum þar til dregið verður í ,,Lín- unni“. Þeir sem enn eiga eftir að gefa vinningar geta skilað þeim til Betu Maju, Kæju eða Ingibjargar eða komið niður í hús á mið- vikudagskvöldum. Vegna flutnings er til sölu lítill ísskápur, leðursófi og fjórir eldhússtólar. Allt á góðu verði. Upplýsingar í síma 456 7270. Súgfirðingar ath! Bingó verður haldið laugardag- inn 24. nóv. kl. 16 í Bjarna- borg. Vegleg verðlaun sem gefin eru frá Suðureyri og Ísafirði. Haustnefnd. Óskum eftir gömlum búð- arkassa, gefins eða fyrir lítinn pening. Uppl. í síma 456 3808 milli kl. 8 og 17. Nemendafélag GÍ. Til leigu er 3ja herb. íbúð á neðri hæð að Urðarvegi 49 á Ísafirði. Uppl. í síma 456 3547 eftir kl. 19. Til leigu er lítil íbúð við Urðarvegi 37 á Ísafirði. Sér- inngangur. Húsgögn og áhöld geta fylgt. Leigutími frá 1. des.-1. maí. Uppl. í síma 456 3678. Einstæða móður með tvö börn bráðvantar húsgögn í góðu ásigkomulagi s.s. koj- ur, kommúðu, eldhússtóla, helst gefins eða fyrir lítinn pening. Á sama stað er til sölu gaseldavél, tilvalin fyr- ir sumarbústaðinn. Uppl. í síma 868 2354. Til sölu eru fjögur, lítið not- uð vetrardekk. Stærð: LT 265/75 R16. Upplýsingar í síma 696 7316. Óska eftir notaðri tölvu og hljómflutningstækjum á góðu verði eða jafnvel gef- ins. Uppl. í síma 899 0724. Til sölu er efri hæðin að Smiðjugötu 7, Ísafirði, sem er þrjú herb., þvottahús, geymslur og vinnuherbergi í kjallara. Góð eldhúsinn- rétting. Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð innan- húss. Íbúðin er laus. Tilboð óskast. Uppl. gefur Guðrún í síma 564 6844. Til leigu er 2ja herb. íbúð á eyrinni á Ísafirði. Uppl. í síma 892 7911 og 865 5699. Óska eftir gönguskíðum og gönguskóm fyrir 5 og 11 ára. Uppl. í síma 456 3135. Óska eftir tölvuhátulurum, gefins eða fyrir lítinn pening. Uppl. í síma 456 7443. Tapast hefur TREK karl- mannsreiðhjól. Finnandi hringi í síma 456 7564. Til sölu eru vetrardekk á felgum, 165x13, undan Toy- ota Corolla. Upplýsingar í síma 867 1293 eða 456 3906. BB – Smáauglýsingar Aðalfundarboð Aðalfundur Sjálfsbjargar á Ísafirði og ná- grennis verður haldinn á Hótel Ísafirði, laug- ardaginn 24. nóvember nk. kl. 14:00 á 5. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Gestir frá Landssambandinu koma. Kaffiveitingar. Allir hjartanlega velkomnir. Stjórn Sjálfsbjargar á Ísafirði og nágrenni. Ásdísar Ásgeirsdóttur Pollgötu 4, Ísafirði Friðrik Jóhannsson Sigurrós Sigurðardóttir Sigríður Jóhannsdóttir Hannes Kristjánsson Viggó Jóhannsson Eydís Ósk Hjartardóttir Guðmundur Jóhannsson Kristinn Jóhannsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Fyrir um ári undirrituðu Björn Bjarnason, mennta- málaráðherra, og Margrethe Vestager, menntamálaráð- herra Danmerkur, samning milli landanna um sérstakan stuðning við dönskukennslu á Íslandi. Meðal þess sem gert er ráð fyrir í þessu samstarfs- verkefni, er að hingað komi danskir kennarar sem dvelji hérlendis um nokkurra mán- aða skeið og vinni með dönskukennurum í skólum landsins. Nú í haust komu tveir danskar konur til landsins í þessum tilgangi og fór önnur þeirra norður á Akureyri en hin, Merete Gyanda Jepsen, er nýkomin til Ísafjarðar þar sem hún mun dveljast fram í maí á næsta ári. Er ætlunin að hún fari milli grunnskólana á svæðinu og verði ákveðinn tíma í senn í hverjum skóla fyrir sig. Þar mun hún vinna með dönskukennurum að því að bæta kennsluna í dönsku með sérstaka áherslu á að efla talað mál. Merete Gyanda Jepsen er frá Gladsaxe í úthverfi Kaup- mannahafnar og hefur kennt þar í ein 20 ár. Sendikennari fer milli skóla hér vestra í vetur Stuðningur yfirvalda við dönskukennslu Líkur eru taldar á því að landnámsbærinn á Hvítanesi við Ísafjarðardjúp sé fundinn. Guðmundur Óli Kristinsson, húsasmiður frá Dröngum, gróf ásamt bræðrum sínum niður á gamlar tóftir og kom niður á átján metra langan skála með víkingaaldarsniði og langeldi. Guðmundur Óli, sem m.a. hefur unnið við skálasmíði á Grænlandi og á Eiríksstöðum í Dölum, segir lögun skálans í Hvítanesi kunnuglega. Kristján Kristjánsson, bóndi í Hvítanesi, segist ekki hafa vitað eða heyrt um vík- ingaaldarbæinn sem þeir Drangabræður komu niður á. Hann segir hins vegar að mikið sé af tóftum í Hvítanesi og hafi hann skráð niður hluta þeirra en tóftir eru reyndar víða við Skötufjörð og Hest- fjörð. Fornleifafræðingar munu rannsaka tóftirnar, væntanlega undir stjórn Steinunnar Krist- jánsdóttur fornleifafræðings. Hún á ættir sínar á þessum slóðum en móðir hennar er systir Kristjáns á Hvítanesi. Landnámsbærinn fundinn? Fornar tóftir á Hvítanesi við Ísafjarðardjúp Húseignir Héraðsskólans í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp Óvíst hvort Ríkiskaup ganga að tilboði Sverris Jóhannessonar Enn er óljóst hvort Ríkis- kaup munu ganga að tilboði Sverris Jóhannessonar í hús- eignir Héraðsskólans í Reykjanesi en honum var veittur frestur til að skila inn gögnum sem óskað var eftir. Hann kom vestur fyrr í haust og fyrir tilstilli Atvinnuþró- unarfélags Vestfjarða voru nokkrir aðilar boðaðir á fundi með Sverri þar sem hann kynnti hugmyndir sínar um nýtingu eignanna. Niðurstað- an var sú, að Atvinnuþróunar- félaginu var falið vinna frekar úr þessum hugmyndum fyrir þá aðila sem hugsanlega gætu komið að stofnun félags um uppbyggingu í Reykjanesi. Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdarstjóri Atvinnu- þróunarfélags Vestfjarða, seg- ir að tilboðsgjafinn hafi leitað til félagsins í september og óskað eftir aðstoð við að koma á fundi nokkurra aðila þar sem tilgangurinn var ekki endilega að leita eftir fjármagni, heldur að fá viðbrögð við þeim hug- myndum sem tilboðsgjafinn hafði. Að sögn Aðalsteins voru umræddir aðilar þeirrar skoðunar að þarna væri maður sem hefði skynsamlegar hug- myndir og væri að velta mál- inu fyrir sér af einhverri alvöru í stað þeirra lítt ígrunduðu til- boða sem áður höfðu komið. Fundað var í tvígang og í fram- haldi af því ákveðið að At- vinnuþróunarfélagið tæki að sér að gera drög að viðskipta- áætlun, móta hugmyndirnar og koma þeim á kynningar- form sem síðan væri hægt að fara með til fjárfesta. Segir Aðalsteinn að boltinn sé nú hjá Atvinnuþróunarfélaginu, verkinu miðar áleiðis en nokk- uð í að því verði lokið. Hann segir jafnframt að stöðugt komi til þeirra fólk sem sé með fullt af hugmynd- um varðandi staðinn og líti þá til þess að húsnæðið er fyrir hendi, heitt vatn, fallegt lands- lag o.s.frv. Þó verði ekki horft framhjá því að nánast ekkert viðhald hafi verið á þessum húseignum í fleiri ár og veru- lega kostnaðarsamt yrði að koma þeim gott horf. Vafa- laust geti þetta gengið einhver ár til viðbótar en ef menn ætla að byggja til framtíðar, þá sé þarna um að ræða verkefni upp á tugi, jafnvel hundruð milljóna. Það er síður en svo hlaupið að því að útvega slíka fjármuni og frumskilyrði að menn skilgreini hvað þeir ætla sér að gera og í þessu tilfelli er Atvinnuþróunarfélagið ein- mitt aðstoða tilboðsgjafann. Ísafjarðarhöfn meðal sýnenda á Seatrade í Hamborg í Þýskalandi Markmiðið að fá fleiri skemmtiferðaskip Rúnar Óli Karlsson, at- vinnumálafulltrúi Ísafjarðar- bæjar, er nýkominn frá sýn- ingunni Seatrade sem haldin var í Hamborg í Þýskalandi og sneri að þjónustu við skemmtiferðaskip. Aðstand- endur sýningarinnar einbeita sér að Evrópumarkaðnum og voru þarna um 300 sýnendur úr mörgum starfsgreinum sem sýndu allt frá hnífapörum upp í gervihnattadiska og stað- setningarkerfi fyrir skip. Ísafjarðarhöfn á aðild að verkefninu „North Atlantic Is- lands Cruise Project“ sem hafnir í Færeyjum, á Græn- landi og á Íslandi standa að ásamt ferðaskrifstofum og skipafélögum. Verkefni þetta hefur verið í gangi í nokkur ár og voru fulltrúar þess á sýn- ingunni en markmiðið með þátttökunni var að komast í sambönd við fleiri skipafélög og fá fleiri skip á þessar norð- lægu slóðir. Þeir voru með sameiginlegan bás á sýning- unni þar sem kynnt var hvað hafnirnar hafa upp á að bjóða en jafnframt fengu eldri við- skiptavinir nýtt kynningar- efni. Segist Rúnar Óli hafa tekið með sér nýju hafnar- bókina, geisladisk sem hann útbjó með skemmtiferðaskip- in í huga og skyggnur sem hann gaf aðilum sem hafa komið til Ísafjarðar eða hyggj- ast koma þangað. Myndirnar eru ætlaðar til sýninga um borð í skipunum meðan á ferð- inni stendur og mæltist þetta kynningarefni vel fyrir. Ísafjarðarhöfn er í samtök- unum Cruise Europe en í þeim eru hafnir alls staðar í norðan- verðri Evrópu. Ný heimasíða samtakanna, www.cruiseeu- rope.com, var opnuð sýning- unni og má þar t.d. finna upp- lýsingar um það sem er í boði fyrir skemmtiferðaskip sem koma til Ísafjarðar. Samtökin héldu fund mánudaginn 29. október þar sem m.a. var rætt um að gera könnun á áhrifum skemmtiferðaskipa á efnahag svæða í Cruise Europe sam- tökunum. Segir Rúnar Óli að þetta krefjist mikillar vinnu heima fyrir og m.a. þurfi að útbýta spurningalistum til áhafna og farþega í hverri höfn sem skipið kemur í. Á fundinum kom einnig fram að í kjölfar atburðanna 11. september hafa nokkur skipafélög orðið gjaldþrota og höfðu menn töluverðar áhyggjur af því að í slíkum tilvikum gæti verið erfitt að fá greitt fyrir hafnarþjónustu. Að sögn Rúnars Óla liggur nú fyrir að svara þeim fyrir- spurnum sem bárust á sýning- unni og vona síðan að einhver skip skili sér sumarið 2003. Eins verður skipulagður fundur með hagsmunaaðilum og öllum þeim sem koma að skipulagningu. 47.PM5 19.4.2017, 09:485

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.