Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.11.2001, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 21.11.2001, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001 Strákar vilja líka vera fínir! Viðurkenningar fyrir ljóð og smásögur Nokkur þeirra sem verðlaun og viðurkenningar fengu. Dagur íslenskrar tungu í Grunnskólanum á Ísafirði Á degi íslenskrar tungu sl. föstudag, 16. nóvember, voru kunngerð úrslit í ljóða- og smásagnakeppni sem haldin var í Grunnskólanum á Ísafirði í síðasta mánuði. Fjölmargir nemendur úr 2.-10. bekk skil- uðu sögum og ljóðum í sam- keppnina. Starf dómnefndar- innar var því afar erfitt en í henni sátu kennararnir Herdís Hübner, Rannveig Þorvalds- dóttir og Rán Höskuldsdóttir. Niðurstaðan varð sú að 18 nemendur hlutu sérstakar við- urkenningar og verðlaun sem gefin voru af Íslandsbanka, Landsbanka Íslands, Spari- sjóði Vestfirðinga, Trygginga- miðstöðinni, Vátryggingafé- lagi Íslands og Sjóvá-Al- mennum, auk þess sem allir þátttakendur fengu viður- kenningarskjöl frá skólanum. Úrval úr því efni sem barst verður gefið út innan skólans og hluti af efninu mun birtast á bekkjarsíðum á Skólatorgi GÍ á næstunni. Eftirtaldir nemendur hlutu sérstakar viðurkenningar í ljóða-og smásagnasamkeppn- inni: 2. bekkur: Rakel Ástrós Heiðarsdóttir: Sagan Einu sinni var. Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir: Sagan Hannes gerir góðverk. Anna María Stefánsdóttir: Ljóðið Vetur. 3. bekkur: Hildur María Halldórsdóttir: Sagan Gréta og Ari. Aníta Kristinsdóttir: Ljóðið Kisa. 4. bekkur: Burkni Dagur Burknason: Sagan Pönnu- kökudagur hjá Óla. Hermann Óskar Hermannsson: Ljóðið Tinni. 5. bekkur: Katrín Sif Krist- björnsdóttir: Sagan Tröllið Bölti. Bjarni Kristinn Guð- jónsson: Ljóðið Mömmuljóð. 6. bekkur: Stefán Erlings- son: Sagan Jói hrekkjusvín. Fjóla Aðalsteinsdóttir: Ljóðið Ef. 7. bekkur: Halldór Smára- son: Sagan Látinn vinur. Einar Ægir Hlynsson: Ljóðið Bara þú. 8. bekkur: Birgitta Rós Guðbjartsdóttir: Ljóðið Stundum. 9. bekkur: Hildur Dagbjört Arnardóttir: Ljóðið Bækur. 10. bekkur: Sandra Zasta- vnikovic: Sagan Lifandi hel- víti. Auður Sjöfn Þórisdóttir: Sagan Tímavélin. Kristján Óskar Ásvaldsson: Ljóðið Skúlptúr á vetrarnótt. Helgi Þór Arason: Ljóðið Þitt er val- ið. Allt frá árinu 1996 hefur verið efnt til margháttaðra við- burða á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, sem er fæðing- ardagur Jónasar Hallgríms- sonar. Hefur fólk verið hvatt til að hafa íslenskuna í önd- vegi á þessum degi, enn frekar en endranær. Skólar, fjölmiðl- ar, stofnanir og félög halda daginn hátíðlegan með ýmsu móti og beina þannig athygli þjóðarinnar að stöðu íslenskr- ar tungu og gildi hennar. Um helgina lögðu fjöl- margir leið sína í hina nýju verslun J.O.V. Föt sem opn- uð var á laugardaginn að Silfurgötu 2, Ísafirði. Hér er um að ræða verslun með fatnað fyrir bæði kynin og segist eigandinn Gróa Böðv- arsdóttir vera með föt fyrir bæði unglinga og fullorðna. Í boði er fatnaður frá Jack & Jones, Vero Moda og ONLY, hversdagsfatnaður, sparifatn- aður og skór, og segir Gróa að þarna sé um að ræða mjög góðan fatnað á sanngjörnu verði. Sérstök opnunartilboð eru í gangi og verða meðan birgðir endast. Verslunin er opin mánudaga til miðviku- daga kl. 10-18, fimmtudaga og föstudaga til kl.19 og laugardaga til kl. 17. Ný fataverslun við Silfurtorg á Ísafirði Gróa Böðvardóttir ásamt syni sínum Böðvari Sigurbjörnssyni. 47.PM5 19.4.2017, 09:486

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.