Bæjarins besta - 21.11.2001, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Stakkur skrifar
Enn af brottkasti Netspurningin
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls
ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Netspurningin er birt viku-
lega á bb.is og þar geta
lesendur látið skoðun sína
í ljós. Aðeins er tekið við
einu svari frá hverri tölvu.
Niðurstöðurnar eru síðan
birtar hér.
Spurt var:
Tekst KFÍ að
vinna sér sæti
í úrvalsdeild
að nýju í vor?
Alls svöruðu 320.
Já sögðu 140 eða 43,75%
Nei sögðu 150 eða 46,88%
Hlutlausir voru
30 eða 9,38%
GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
Óskum eftir að ráða starfsfólk til eftir-
talinna starfa frá og með 1. janúar nk.
Skólasafnvörð/skrifstofuaðstoð frá
áramótum til loka maímánaðar. Um
er að ræða 86,25% starf með blönduð-
um verkefnum frá kl. 9 til 16:30 dag-
lega nema á föstudögum, til kl. 16.
Starfsmann á Dægradvöl. Um er að
ræða 50% starf við heilsdagsvistun.
Vinnutími er frá kl. 12:00 til 15:00.
Matráðskonu/matráð í mötuneyti
nemenda. Um er að ræða 85% starf
sem felst í undirbúningi og sölu á létt-
um málsverðum fyrir nemendur í 7.-
10. bekkjar.
Skólaliða í 100% starf. Um er að
ræða blönduð störf við ræstingu,
gæslu og aðstoð í mötuneyti o.fl.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri,
Kristinn Breiðfj. Guðmundsson. Um-
sóknarfrestur er til 30. nóvember
2001. Skólastjóri.
RÁNARGATA 11 Á FLATEYRI
Til sölu er húseignin Ránargata 11 á
Flateyri. Húsið er byggt árið 1946 úr
steinsteypu. Húsið er ein hæð, 158m²
ásamt kjallara sem er 80,8m².
Húseignin verður seld í því ástandi
sem hún er nú í. Húsið er í útleigu sem
íbúðarhúsnæði. Ef til sölu kemur er af-
hendingartími bundinn við venjulegan
uppsagnarfrest húsaleigusamninga, ná-
ist ekki samkomulag um annað.
Þeir sem hafa áhuga sendi inn skriflegt
kauptilboð á skrifstofu Ísafjarðarbæjar
að Hafnarstræti 1, Ísafirði, í síðasta
lagi þann 30. nóvember nk. Ísafjarðar-
bær áskilur sér rétt til að taka hvaða til-
boði sem er eða hafna öllum.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu Ísafjarðarbæjar á Ísafirði.
Augnlæknir á Ísafirði
Augnlæknir verður með móttöku á Ísafirði
dagana 26.-30. nóvember.
Tímapantanir frá og með fimmtudeginum
22. nóvember í síma 450 4500, á milli kl.
08:00 og 16:00 alla virka daga.
Árangur vestfirskra grunnskólanemenda á samræmdum prófum
„Markmiðið að vera hvergi
undir landsmeðaltali“
– segir Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson, skólastjóri á Ísafirði
Niðurstöður úr samræmd-
um könnunarprófum í 4. og 7.
bekk grunnskóla í íslensku og
stærðfræði sýna vestfirsk ung-
menni eru um miðjan hóp
miðað við jafnaldra sína ann-
ars staðar á landinu. Þetta sést
á nýbirtum niðurstöðum frá
Námsmatsstofnun. „Í heildina
geta Vestfirðingar verið
þokkalega sáttir við niður-
stöðuna, sérstaklega ef miðað
er við árangur fyrri ára. Mark-
miðið er auðvitað að vera
hvergi undir landsmeðaltali
og fyrr verðum við ekki
ánægðir“, segir Kristinn
Breiðfjörð skólastjóri Grunn-
skólans á Ísafirði.
Í stærðfræði voru Vestfirðir
í fjórða til fimmta sæti af níu
kjördæmum, í báðum árgöng-
um. Nemendur frá Norður-
landi eystra stóðu sig best í 4.
bekk og skutu þar með aftur
fyrir sig skólum á höfuðborg-
arsvæðinu miðað við árið áð-
ur. Í 7. bekk stóðu skólar í
Reykjavík og nágrenni sig
best eins og í fyrra. Í íslensku
voru nemendur 4. og 7. bekkja
í vestfirskum skólum rétt um
meðaltal, eins og í stærðfræð-
inni. Í móðurmálinu stóðu
nemendur frá Reykjavík og
nágrenni sig best, eins og í
fyrra. Áberandi er hve nem-
endur á Suðurnesjum standa
sig verr í íslensku en jafnaldrar
þeirra á öðrum svæðum.
Meðaleinkunn 140 nem-
enda á Vestfjörðum í 4. bekk
var 6,3 í stærðfræði, sem er
sama og landsmeðaltal, en 6,1
í íslensku, sem er nokkuð und-
ir landsmeðaltali. Stóðu þau
sig betur í stærðfræði en ár-
gangurinn í fyrra en örlítið
slakar í íslensku. 121 nemandi
7. bekkjar á Vestfjörðum fékk
að meðaltali einkunnina 6,3 í
stærðfræði og 6,6 í íslensku
sem er 0,1 undir landsmeðal-
tali í hvorri grein, og stóðu sig
betur en jafnaldrar þeirra í
fyrra í stærðfræði.
Grunnskólinn á Ísafirði
kom vel út í 7. bekk, sérstak-
lega í stærðfræði. „Við erum
mjög sátt við niðurstöðu 7.
bekkjar, sem var vel yfir lands-
meðaltali í stærðfræði, sér-
staklega þar sem hann hefur
bætt sig mikið frá því fyrir
þrem árum. Hins vegar er
fjórði bekkur undir landsmeð-
altali og úr því þarf að bæta,“
sagði Kristinn Breiðfjörð um
útkomu Grunnskólans á Ísa-
firði, en skólinn á tæplega
helming nemenda á Vestfjörð-
um sem tóku könnunarprófin.
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli
Landsbankans á Ísafirði og Sundfélagsins Vestra. Samn-
ingurinn kveður á um víðtækt samstarf og tekur til aug-
lýsinga, þjónustu og viðskipta. Með þessu móti vill bank-
inn styrkja stöðu sundíþróttarinnar í bæjarfélaginu og
verðlauna Sundfélagið Vestra sem hefur átt mjög góðu
gengi að fagna síðustu misseri. Á myndinni eru Bryn-
jólfur Þór Brynjólfsson, útibússtjóri Landsbankans á
Ísafirði, og Gestur Ívar Elíasson, formaður Sundfélagsins
Vestra, við undirritun samningsins í gær. Fyrir aftan þá
eru Helga S. Snorradóttir og Hafsteinn Sigurðsson frá
Landsbankanum og Margrét Eyjólfsdóttir og Halldóra
Karlsdóttir frá Sundfélaginu Vestra.
Landsbankinn styrkir
Sundfélagið Vestra
Enn er fjallað um brottkast í fjölmiðlum og nú kemur skipstjórinn af Bjarma
BA fram á völlinn og kveðst hafa sviðsett brottkastið eins og það kom fram í
Morgunblaðinu og Sjónvarpinu. Ef satt er, þá er það vont, sérstaklega fyrir þá
fréttamenn er tóku þátt í atburðunum. Ef satt reynist rýrir það traust almennings
á fréttamönnum. Það vekur óneitanlega athygli hve sein lögregla er að taka á
klárum lögbrotum sem höfð hafa verið fyrir augum þjóðarinnar í fjölmiðlum
ítrekað undanfarna daga. Og það vekur líka athygli að tilraunir sýslumannsins á
Ísafirði í þá veruna að fá allar kvikmyndirnar sem teknar voru af brottkastinu í
sínar hendur virðast ekki bera neinn árangur. Þeir töku- og
fréttamenn er hlut eiga að máli neita að afhenda þær, að eigin
sögn. Í fjölmiðlum bera þeir fyrir sig trúnaði við skipstjórann.
Hann kveður á hinn bóginn í Fiskifréttum þennan sama trúnað
hafa verið brotinn á sér. Virðist í uppsiglingu eins konar fjölmiðlaklandur, því
hver ber annan sökum, fréttamenn á vettvangi og skipstjórinn á hinu umdeilda
skipi.
Málið er rætt á Alþingi og er merkilegasta niðurstaðan, en um leið sjálfsögð,
að þingmenn eru allir óánægðir með brottkast afla af íslenskum fiskiskipum.
Fiskurinn í sjónum er sameiginleg auðlegð íslensku þjóðarinnar. Veruleiki hins
raunverulega heims er sá, að aldrei hefur tekist að deila út veraldlegum gæðum
svo öllum líki. Um fátt hefur orðið heitari pólitísk umræða síðasta áratuginn en
kvótakerfið og kosti þess og einkum galla. Helst verður því jafnað við heita póli-
tíska umræðu um veru varnarliðsins á Íslandi á 6. og 7. áratugnum.
Sjávarútvegsráðherra hefur gagnrýnt lögreglu fyrir linkind við rannsókn brota
á lögum um fiskveiðar. En Fiskistofa hefur loks tekið ákvörðun um að hafa eftir-
litsmenn um borð í Báru ÍS og Bjarma BA á kostnað útgerðarinnar, sem mun
verða að greiða laun þeirra auk annars kostnaðar. Það verður þeim sjálfsagt nægi-
lega þungbært. Eftir stendur þó að taka verður á meintum lögbrotum. Þeir eru
bornir sökum, skipstjórarnir á Báru ÍS og Bjarma BA, og eiga rétt á því að mál
þeirra verði rannsökuð og hið sanna komi í ljós. Hver raunveruleg sekt þeirra er
mun væntanlega skýrast við rannsókn málsins.
Síðast en ekki síst á almenningur, kjósendur á Íslandi,
rétt á því að fá upplýst með óyggjandi hætti hvort það sé stað-
reynd, að sumir skipstjórar leyfi sér þessa umgengni um auð-
lindina, fiskimiðin. Við það verður ekki unað að skipstjórar skipanna sem hér
hafa verið nefnd verði tvísaga í fjölmiðlum og segi fyrst að svona séu staðreyndir
og dragi síðar í land og lýsi því yfir að um sýndarmennsku sé að ræða.
Með því er orðið til tvenns konar brottkast. Í fyrsta lagi hið umdeilda brottkast
fisks úr afla skipanna á Íslandsmiðum. Í öðru lagi má segja, ef satt reynist um
sýndarmennsku, að skipstjórarnir hafi kastað brott fréttamönnunum, sem hafi þá
í raun látið nota sig til vondra verka. Fjölmiðlungar sem taka þátt í tilbúningi
frétta hafa ekki verið hátt skrifaðir. Þeim er í raun kastað brott. Allir hafa hag af
því að hið sanna komi í ljós.
47.PM5 19.4.2017, 09:4812