Vinnan - 01.07.1962, Side 8
innan
FYRSTA LISTASAFNIEIGU ALÞÝÐUSAMTAKA í EVRÓPU
iálið er nú í höndum íslenzkrar alþýðu. Listasafn Alþýðu-
samhandsins verður smiðja íslenzkra menningarverðmæta
— lifandi tengiliður milli íslenzkrar þjóðar og listmenn-
ingar hennar. —
Nefur þú gerzt áskrifandi að listaverkabókinni?
ARIÐ 1878 flutti blað eitt í Berlín
þá fregn, að verkamaður hefði komið
inn á skrautlegt veitingahús, setzt þar
við borð — og pantað glas af kampa-
Alþýðusambandið eignast
dýrmætan listfjársjóð.
Árið 1961 gerðist sá höfuðatburður
í sögu íslenzkra alþýðusamtaka, að
víni. Hið þýzka blað lýsti vandlæt-
ingu sinni með sterkum orðum, og var
hneyksli þetta lengi í minnum haft.
Betri borgurum í höfuðborg þýzka
keisaraveldisins þótti það óheyrilegt,
að erfiðismenn skyldu krefjast þess að
sitja jafnréttháir til borðs með stólp-
um þjóðfélagsins.
Nú á dögum þætti slíkur atburður
ekki slíkt tiltökumál. Erfiðismenn
hafa beitt samtökum sínum fyrir sig
og öðlazt meiri rétt á ýmsum sviðum
þjóðlífs og menningar. Listir og
mennt voru áður einkaeign hinna betri
borgara. Nú lætur allur almenningur
sig þau mál skipta. Aukin menntun og
frístundir gefa iafnvel erfiðismönn-
um færi á að njóta fagurra lista í
miklu ríkara mæli en áður var.
Á okkar dögum hafa samtök erfið-
ismanna í heiminum breytt allri ásýnd
jarðhnattarins. Barátta þeirra sam-
taka miðar ekki aðeins að því að bæta
hag vinnandi fólks á líðandi stund,
hún er hið mikla endurnýjandi afl
hvers þjóðfélags um sig. Mannlegri
heimur, uppspretta aukinna mann-
legra verðmæta er stefnumið þeirrar
baráttu. Án vinnu erfiðismanrianna
hryndi öll þjóðfélagsbyggingin í rúst.
Smám saman gera þeir sér ljóst, að
þeir eiga þennan heim, að þeir eiga
rétt til að njóta allra afurða anda og
efnis, sem þeir skapa og gefa öllu
mannlífinu inntak og gildi.
þau urðu eigendur að dýrmætasta
málverkasafni, sem til er í óopinberri
eigu á íslandi, safni Ragnars Jóns-
sonar. Frá þeim atburðum hefur áður
verið skýrt í Vinnunni (4.—7. hefti
1961).
Vandi lagður á herðar
verkalýðssamtakanna.
Sýning á hluta verkanna var opnuð
í Listamannaskálanum í Reykjavík
þann 1. júlí 1961, og var Alþýðusam-
bandinu þá afhent safnið til eignar.
Með því hlotnaðist Alþýðusamband-
Bygging safnhúss —
áskriftasöfnun.
Á næsta ári mun bókaútgáfan
Helgafell gefa út mikla listsögu- og
listaverkabók, og hefur forst óri út-
gáfunnar, Ragnar Jónsson, ánafnað
listasafni ASí 5G00 eintök af henni.
Þessi bók verður í stóru broti, og
stærsta listaverkabck, sem enn hefur
komið út á íslenzku, um 400 síður.
Þessi bók mun ekki aðeins flytja end-
urprentanir af rúmlega eitt hundrað
íslenzkum málverkum, heldur einnig
sögu íslenzkrar myndlistar frá upp-
hafi til vorra daga, skráða af Birni
Th. Björnssyni. Þetta verður fyrsta
íslenzka myndlistarsagan, sem út
kemur. Bókin verður því ekki aðeins
lykill að safni Alþýðusambandsins,
heldur að íslenzkri myndlist yfirleitt.
Framgangur þessa mikla metnaðar-
máls alþýðusamtakanna, bygging
húss fyrir Listasafn ASí, er í höndum
íslenzkrar alþýðu og undir menning-
aráhuga hennar kominn.
Áskriftasöfnun að þessari bók er
þegar hafin, og undir henni er það
komið, hversu fljótt verður hægt að
hefjast handa um byggingu safnhúss.
Hvert verkalýðsféiag verður að leggja
stein í bygginguna með því að safna
nægilega mörgum áskrifendum á sínu
félagssvæði, til þess að upplagið verði
selt upp fyrir mitt ár 1963. Þá verður
hægt að hefja framkvæmdir þegar á
næsta ári. Hvert eintak verður tölu-
sett og með árituðu nafni kaupand-
ans. Auk þess verður prentuð skrá yf-
ir nöfn áskrifenda aftan við bókina.
Verð bókarinnar — 1500 krónur —
er kostnaðarverð, og verður aldrei
hægt að fá hana á lægra verði, þótt
inu ekki aðeins mikill heiður, að vera
falin varðveizla svo verðmæts fjár-
sjóðar íslenzkrar listmenningar, því
var einnig lagður mikill vandi á herð-
ar. Brýna nauðsyn bar til þess að
reisa sérstakt hús yfir safnið. En
hvaða ráð voru til þess?
seinna verði prentað annað upplag af
henni. Athygli skal vakin á því, að
sérhver áskrifandi getur greitt bók-
ina með afborgunum, t. d. 100 krón-
um á mánuði. Þetta fyrirkomulag
ætti að gera mönnum kleift að eign-
ast þessa bók á auðveldan hátt.