Vinnan - 01.12.1974, Síða 2

Vinnan - 01.12.1974, Síða 2
ÁRSFUNDUR MFA Mörg verkefni og vaxandi Nýr starískraftur Nokkrir þátttakendur á námskeiði MFA í Vestmannaeyjum. Frá 5. ársfundi MFA 5. ársfundur MFA var haldinn | í Reykjavík 28. nóv s.l. Fundinn sátu 14 manns. Fundinum stjórn- aði Pétur Sigurðsson, Isafirði. Ritari var Tryggvi Benediktsson. Stefán Ogmundsson, formaður stjórnar MFA, flutti skýrslu um I starfsemi sambandsins milli árs- funda, þ. e. a. s. síðustu 8 mán- uði. Magnús L. Sveinsson gjald- keri MFA las og skýrði reikn- inga fyrir árið 1973. Tryggvi Þór Aðalsteinsson fræðslufulltrúi MFA ræddi um starfsemina og það sem framundan væri á næstu | mánuðum. Þá ræddi Bolli Thor- oddsen hagfræðingur ASÍ um Félagsmálaskóla alþýðu sem á- formað er að hefja störf í Ölfus- | borgum um mánaðamótin janúar- febrúar n.k. Skýrði hann frá fyr- irhuguðu námsefni og fyrirkomu- lagi á kennslu. Eftir nokkrar umræður um skýrslu formanns og félagsmálaskólann tók til máls Magnús E. Sigurðsson prentari og flutti erindi um fjögurra vikna námsferð til Svíþjóðar, sem hann og Tryggvi Þór voru nýkomnir úr. Ferð þessi og námsdvöl var í boði sænska menningar- og fræðslusambandsins ABF, til að kynuna fulltrúum frá MFA starf- semina á hinum ýmsu sviðum og stöðum. Skýrði Magnús frá til- högun þessarar ferðar, starfsemi ABF og uppbyggingu. I skýrslu formanns kom m. a. fram, að frá því í byrjun apríl, að síðasti ársfundur var haldinn, hefur MFA staðið að 4 námskeið- um, þar af þremur utan Reykja- víkur, á Siglufirði, Raufarhöfn og í Vestmannaeyjum. Námskeið- in sóttu 66 manns frá mörgum verkalýðsfélögum. Fjórir fræðslu- hópar hafa starfað á þessu tíma- bili, 5 til 6 kvöld hver hópur, og hafa um 80 manns tekið þátt í þeim. Á námskeiðunum og í fræðsluhópunum hefur verið fjall- að um allfjölbreytt efni; má þar t. d. nefna: Trúnaðarmaðurinn á vinnustað, Kjarabarátta og samn- ingagerð, Heilbrigði og öryggi á vinnustað, Launalcerfi og bónus, Notkun hjálpár- og kennslutækja í félagsstarfi, Hagnýtingu bóka- safna, Fjármál og bókhald verka- lýðsfélaga, Ræðuflutning og fund- arstörf. Auk annarra verkefna MFA gat formaður um fyrirhug- aða breytingu á Bréfaskóla SlS og ASÍ, útgáfu Vinnunnar, sam- skiptin við útlönd, Félagsmála- skóla alþýðu og margt fleira. Hann sagði í lok ræðu sinnar: „Um aukið starf MFA í næstu framtíð vil ég vera fáorður. Verk- efnin eru mörg og vaxandi en um lausnir þeirra ræðst fyrst og fremst af þeim f járhagsmögu- leikum, sem fyrir hendi verða. Hjörleiíur Sigurðsson talar við opn- un syningar í Vestmannaeyjum á verkum úr saini Listasains ASÍ. Ég ætla ekki að fara hér með neitt svartsýnishjal, en ég vil full- yrða, að þótt að þrengi höfum við síst af öllu efni á því að draga úr fræðslustarfi verkalýðshreyf- ingaiinnar. Þessvegna ber okkur að mæta öllum erfiðleikum á því sviði með auknum þrótti og sækja hann í eigin barm.“ I október s.l. var Guðbjörg Gunnarsdóttir ráðin til starfa á skrifstofu ASÍ. Guðbjörg starfar þar sem skrifstofustúlka við al- menn skrifstofustörf. Hún er fædd á Akureyri 1949. Guðbjörg er gagnfræðingur frá verslunardeild Gagnfræðaskólans við Lindar- götu. Að námi loknu starfaði hún hjá Útvegsbanka íslands og allt til þess tíma að hún hóf störf sín hjá Alþýðusambandinu. 2 VINNAN

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.