Vinnan - 01.12.1974, Blaðsíða 9
ÞING OG ALYKTANIR
Þing Málm- og skipasmiðasambcmdsins.
í upphafi ályktunar þingsins um atvinnu-
og kjaramál, kemur fram að þingið fagnar
þeim árangri sem náSst hefur á undanförn-
um árum viS uppbyggingu atvinnuvega lands-
manna. Jafnframt kemur fram að þingið telur
brýna nauðsyn bera til að haldið verði áfram
að styrkja stöðu málmiðnaðar og skipasmíð
m. a. með því að þessar greinar starfi aS þeim
verkefnum, sem þær geta annað, en þau ekki
framkvæmd erlendis.
Þá segir orðrétt á ályktuninni:
„ÞingiS varar mjög alvarlega við þeim
áformum stjómvalda að draga úr framkvæmd-
um og atvinnuuppbyggingu, en það myndi
þrengja mjög kjör almenns launafólks og
hafa í för með sér atvinnuleysi, sem bitnaði
hvað harðast á þeim stóra hópi ungs fólks,
sem á vinnumarkaðinn kemur í nánustu fram-
tíð.
Sú ört vaxandi dýrtíð, sem skollið hefur yf-
ir undanfarna mánuði ógnar einnig afkomu-
möguleikum launafólks. Kjaraskerðing sem
stjórnvöld hafa framkvæmt með því m. a. að
VINNAN
breyta gerðum kaup- og kjarasamningum með
löggjöf, sem leggur bann við því að kaup-
gjald hækki í ákveðnu hlutfalli við hækk-
andi verðlag, hefur þegar haft í för með sér
lækkun kaupmáttar um 22%. Kaupmátturinn
á eftir að rýrna enn meir, ef ekkert verður að
gert.
Þingið mótmælir eindregið þeirri gerð
stjórnvalda að ógilda kjarasamninga verka-
lýðssamtakanna og skerða kaupmátt launa.
Þingið hejnir því til félaga Málm- og skipa-
smiðasambands tslands að þau búi sig undir
að taka þátt í samræmdum aögerðum verka-
lýðssamtakanna til að ná sem fyrst þeim
kaupmætti launa, sem samkomulag varð um
milli verkalýðssamtakanna og samtaka at-
vinnurekenda í febrúarlok s.l.“
Samband byggingamanna
6. þing SBM var haldið í Reykjavík 15-
17. nóv. Þingiö setti Benedikt Davíðsson,
formaður sambandsins, en þingforsetar voru
kjörnir Tryggvi Þór AÖalsteinsson og Sigur-
jón Erlingsson. Til þingsins komu 64 fulltrúar
frá 18 aðildarfélögum, sem alls eru 20 talsins.
Þingið fjallaði um kjara- og atvinnumál,
fræðslumál, iðnfræðslumál og þá var ályktað
um landhelgismál. Við upphaf þingsins á-
varpaði Rune Larsson þingfulltrúa, en hann
var gestur þingsins sem fulltrúi Norræna
bygginga- og tréiðnaðarmannasambandsins
(NBTF). Hann sagði m. a. um alþjóðlega
auðhringa:
„Sú verðbólga sem gengur yfir heiminn er
að mestu leyti afleiðing af starfi alþjóðlegra
auðhringa. Þessi alþjóðlegu fyrirtæki koma
til með að stækka mikiÖ í framtíðinni og ná
til æ fleiri staða og svæða. Á sama tíma veit
almenningur minna og minna um allt það sem
þessi fyrirtæki taka sér fyrir hendur. Ef
verkalýðshreyfingunni tekst ekki að mæta
hinum alþjóðlegu auðhringum sem alþjóðlegt
afl, er hætta á aÖ hún verði undir. Það er
m. a. með tilliti til þessa sem við verÖum að
9