Vinnan - 01.12.1974, Page 15

Vinnan - 01.12.1974, Page 15
FRÆÐSLUSTARF MFA Þátttakendur í fræðsluhópi MFA um trúnaðarmanninn á vinnustað. A. Verkalýðsfélögin taki út nýja vinnu- staði og leyfi ekki vinnu nema aðstæður séu þær, sem félagið getur sætt sig við. B. Gera úttekt á öllum vinnustöðum, varðandi aðbúnað og öryggismál. T. d. með því að verkalýðsfélögin útbúi spurninga- lista fyrir trúnaðarmenn og verkafólk. Niðurstöður kannana af þessu tagi verði síðan notaðar við kröfugerð. C. Verkalýðsfélögin fái inn í næstu samninga ákvæði um heimild til að stöðva vinnu án þess að starfsmenn missi laun, ef aðbúnaði og öryggi er ábótavant að dómi verkalýðsfélags. 5. HvaSa atriSi eru mikilvæg í samskiptum trúnaSarmanns og verkalýSsfélags? — Mikilvægustu atriðin eru að verkalýðs- félagið treysti trúnaðarmanninum, þannig að hann finni að félagið standi á bak við sig og geti því starfað sjálfstæðara en ella. Þá verð- ur að teljast eðlilegt að kröfur séu mótaðar í samráði við trúnaðarmenn. Einnig ætti að setja í lög stéttarfélaganna ákvæði um reglu- lega fundi trúnaðarmanna með stjóm við- komandi félags. Mikilvægt er að félögin af- hendi trúnaðarmönnum möppur með nauS- synlegum upplýsingum, þ. e. lögum, reglu- gerðum, samningum og því sem varðar verka- lýðshreyfinguna. Æskilegt er að trúnaðarmaður skili skýrslu til félagsstjórnar um helstu ágreiningsefni á vinnustaðnum, svo hægt sé að fá yfirlit um tíðni og eðli árekstra og undirbyggja þannig kröfugerð og úrbætur. 6. A trúnaSarmaSur aS njóta umbunar fyrir störf sín. Ef svo er — á hvern hátt? — Ekki að öðru leyti en tekið er fram í svari við spurningu 3. Hins vegar ætti verka- lýðsfélag að senda trúnaðarmann á þau nám- skeið sem í boði eru hjá MFA og væntanleg- um Félagsmálaskóla, honum að kostnaðar- lausu. Verkalýðsfélögin ættu að safna trúnaðar- mönnum sínum saman til þess að þeir geti borið saman bækur sínar. T. d. væri heppi- legt að þeir kæmu saman í orlofsheimilum verkalýðsfélaganna, í nokkra daga fljótlega eftir hverja samningagerð. í þeim tilfellum ætti verkalýðshreyfingin að greiða vinnutap og uppihald. 7. HvaS er verkafólki nauSsynlegt til aS geta tekiS þátt í störfum trúnaSarmanna á vinnustaS? — Verkafólki er fyrst og fremst nauðsyn- legt að treysta samtakamætti sínum og standa þannig fast að baki trúnaðarmanni sínum. Varast ber að líta á trúnaðarmanninn, sem eitthvert afl, sem komi málum fram einn og án stuðnings verkafólksins. 8. Hvers þarf trúnaSarmaSur aS gœta í sam- skiptum viS stjórnendur fyrirtækja? — Trúnaðarmaður þarf að þekkja vel stjórnun og skipulag fyrirtækisins og gera sér grein fyrir því, til hvaða yfirmanns á að leita með viökomandi málefni. Hann verður að þekkja vel samninga, lög og reglugeröir, sem snerta verksvið hans og gæta þess að undirbúa sig vel með þau mál, sem hann vinnur að. Hann reynir að gera sér fyrirfram grein fyrir viðbrögðum yfirmanns. TrúnaSar- maSur þarf aS hafa fullt samráS viS vinnufé- laga og verkalýSsfélag. VINNAN 15

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.