Vinnan - 01.12.1974, Blaðsíða 17
ASV MÓTMÆLIR
Áskrifendur athugið
Þeir sem hafa fengið senda gíróseðla
vegna áskriftargjalds 1973,
og hafa ekki enn sent greiðslu,
eru vinsamlegast beðnir að gera það sem allra fyrst.
RITNEFND
Genfarskóli
Námskeið norræna verkalýðsskólans í Genf verður haldið
dagana 24. maí—11. júlí 1975.
Umsóknir sendist MFA, Laugavegi 18, VI. hæð, fyrir 20. janúar.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
æfinga og undirbúnings. Okkar tónleikar eru
aðallega ætlaðir meðlimum verkalýðsfélag-
anna, enda sendum við öllum verkalýðsfélög-
um í borginni miða, þar sem við bjóðum þeim
ókeypis á tónleikana. Við reynum sem sagt að
standa okkur sem „lúðrasveit verkalýðsins“.
A sama hátt væntum við þess að verkalýðs-
félögin styrki okkur og styðji, eins og þau
hafa gert. Komið hefur fyrir að við bregðum
fyrir okkur betri fætinum og skreppum út úr
bænum með hljóðfærin. Við höfum til að
mynda fyrir atbeina Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu þeytt hornin við Olfusborgir
og í landi prentara austur í Laugardal, þar
sem þeir eiga sín orlofshús. Það hefur verið
skemmtilegt, enda vel þegið.
Þið hafið eignast nýtt húsnæði. Bætir
það ekki aðstöðu lúðrasveitarinnar frá
því sem áður var?
Jú, við höfum eignast húsnæði í Skúla-
túni 6, sem breytir aðstöðu sveitarinnar geysi-
lega til hins betra. Reyndar er þetta húsnæði
aðeins fokhelt, en kemst vonandi fljótlega
VINNAN
í gagnið. Ég vil taka það skýrt fram að okkur
hefði reynst þetta ókleift ef verkalýðsfélögin
hefðu ekki brugðist eins vel við og raunin
varð. Fremst í broddi fylkingar var MFA,
sem réði úrslitum um að þetta var hægt með
einstaklega góðri fyrirgreiðslu. Það er ekkert
launungarmál að við leggjum afar mikið
traust á verkalýðsfélögin á komandi árum, því
við sjáum fram á erfiðan róður við allar af-
borganir o. þ. h. Reyndar hefðum við aldrei
farið út í þessi húsnæðiskaup, ef við værum
ekki viss um að verkalýðsfélögin ætla sér
ekki að láta Lúðrasveit verkalýðsins líða
undir lok. I trausti þess réðumst við í þetta,
sem ég er sannfærður um að mun efla sveit-
ina að miklum mun á næstu árum.
Hvenær megum við eiga von á næstu
tónleikum?
Ja, það fer nú eftir því hvað við verðum
dugleg að ganga frá nýju húsakynnunum,
sem við erum að vinna í um þessar mundir.
En vonandi er ekki of mikið sagt, þegar ég
segi að næstu tónleikar verði seinna í vetur,
skömmu eftir áramót.
A. S. V.
mótmœlir
Sambandsstjórn Alþýðusambands
Vestfjarða, en í henni eiga sœti, auk
stjórnar sambandsins, formenn allra
aðildarfélaga sambandsins, hélt fund á
Isafirði 3. nóv. Aðalviðfangsefni fund-
arins var að ræða kjara- og kaupgjalds-
málin, orlofsmál og fjármál sambands-
ins.
Eftirfarandi ályktun var gerð sam-
hljóða um kjaramálin:
„Sambandsstjórnarfundur ASV hald-
inn 3. nóvember 1974 mótmælir harð-
lega því gerræði stjórnvalda að rifta
nýgerðum samningum verkalýðsfélag-
anna með bráðabirgðalögum og ráðast
með því á samningsrétt verkafólks í
landinu. Láglaunabæturnar hrökkva
hvergi til að vega á móti þeim gífur-
legu verðhækkunum á nauðsynjavörum
og þjónustu, sem yfir hafa dunið síðan
bráðabirgðalögin gengu í gildi og þeim
fyrirsjáanlegu hækkunum sem framund-
an eru. Jafnframt mótmælir fundurinn
því að verst settu þegnar þjóðfélagsins,
elli- og örorkulífeyrisþegar, sem ekki
hafa aðrar tekjur en bætur almanna-
trygginga, skuli ekki fá tilskylda krónu-
upphæð í láglaunabætur og aðrir laun-
þegar.
Fundurinn mótmælir einnig harð-
lega bráðabirgðalögum um ráðstafanir
í sjávarútvegi frá 20. september s.k, þar
sem skert eru samningsbundin hluta-
skipti sjómanna með því að taka stóran
hluta af óskiptu aflaverðmæti til fjár-
festingasjóða útgerðarmanna. Einnig
með því að rýra mjög ákvörðunarrétt
verðlagsráðs sjávarútvegsins, með á-
kvæðum um að fastbinda verð sjávaraf-
urða.
Fundurinn skorar á félaga verkalýðs-
hreyfingarinnar að standa einhuga sam-
an um aðgerðir til að rétta hlut laun-
þega. Byrjað verði sem fyrst að skipu-
leggja samstöðuna og afla þeirra gagna
og upplýsinga sem nauðsynlegt er í
þeirri baráttu sem framundan er.“
17